Stórsigur heimamanna í Kórnum

Gunnar Dan Hlynsson skoraði fjögur mörk af línunni fyrir HK.

Gunnar Dan Hlynsson skoraði fjögur mörk af línunni fyrir HK. mbl.is/Anton Brink

HK vann stórsigur á Selfoss 34:22 í níundu umferð úrvalsdeildar karla í handbolta í Kórnum í kvöld. 

HK er í 10. sæti með sex stig en Selfyssingar eru með eitt stig á botni deildarinnar.

Selfoss byrjaði leikinn mun betur og skoraði fyrstu þrjú mörk leiksins og komst fimm mörkum yfir 6:1. HK skoraði svo næstu sex mörk og breyttu stöðunni í 7:6 sér í vil. 

Heimamenn sigldu svo fram úr þegar leið á fyrri hálfleik og voru sex mörkum yfir í hálfleik 16:10.

HK var með öll tök á leiknum í síðari hálfleik og bættu jafnt og þétt í forskotið og vann að lokum tólf marka sigur. 

Kári Tómas Helgason og Andri Þór Helgason voru markahæstir heimamanna með sjö mörk og Alex Máni Oddnýjarson og Örn Alexandersson gerðu fimm.

Þá varði Brynjar Vignir Sigurjónsson vel í markinu, 13 skot, og var með 38% markvörslu.

Ragnar Hilmarsson var markahæstur hjá Selfossi með fimm mörk og Anton Breki Hjaltason og Trausti Sigurberg Traustason skoruðu báðir fjögur. 

Ragnar Hilmarsson var markahæstur hjá Selfoss með fimm mörk.

Ragnar Hilmarsson var markahæstur hjá Selfoss með fimm mörk. mbl.is/Anton Brink

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅