Úrslitum breytt - HK skráði rangan leikmann á skýrslu

HK skráði rangan leikmann á leikskýrslu á föstudag og tapar leiknum gegn KA/Þór því 10:0. mbl.is/Ólafur Árdal

Úrslitum leiks HK og KA/Þórs í úrvalsdeild kvenna í handbolta á föstudag verður breytt í 10:0 sigur KA/Þórs.

Handkastið greinir frá.

KA/Þór vann leikinn í Kórnum 27:24 eftir að staðan var jöfn í hálfleik, 11:11. Leikurinn var mikilvægur í botnbaráttunni en bæði lið voru með tvö stig fyrir leikinn.

Ástæða breytingarinnar er sú að HK tefldi fram leikmanni sem var ekki skráður á leikskýrslu. Tinna Ósk Gunnarsdóttir lék með HK og skoraði fimm mörk en samkvæmt opinberri leikskýrslu HSÍ var hún ekki skráð til leiks. Þess í stað var Tinna Dröfn Hauksdóttir skráð á skýrsluna og mörkin fimm skráð á hana.

Samkvæmt heimildum Handkastsins var KA/Þór tilkynnt eftir leikinn að úrslitunum yrði breytt vegna mistaka við skráningu leikmanna. Tinna Dröfn var hins vegar ekki í leikmannahópi HK í leiknum.

Breytingin hefur ekki áhrif á stigaskiptinguna þar sem KA/Þór vann leikinn. Liðið er því með fjögur stig en HK áfram með tvö.

Hún gæti hins vegar haft áhrif á innbyrðisstöðu liðanna þegar tímabilinu lýkur, þar sem KA/Þór fengi tíu marka sigur í stað þriggja marka sigurs ef liðin enda jöfn að stigum.

Mistök við skráninguna gætu því reynst HK dýrkeypt í botnbaráttunni.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅