Verkfalli flugmanna frestað
Innlent | mbl | 19.11.2026 | 18:07
Verkfallið átti að hefjast á miðnætti. mbl.is/Árni Sæberg
Verkfalli Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA), sem átti að hefjast á miðnætti, hefur verið frestað.
Þetta kemur fram í tilkynningu Icelandair en þar segir að félagið hafi samþykkt ákvörðun FÍA að fresta verkfallinu um þrjár vikur, eða til 00:01 þann 10. desember.
„Eftir fund hjá Ríkissáttasemjara í dag sammæltust aðilar um grundvöll fyrir áframhaldandi viðræðum með það að markmiði að ná samningum sem fyrst,“ segir í tilkynningunni.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗