Mætir til starfa aftur á morgun - Fékk krampakast fyrir mánuði
Vincent Kompany, knattspyrnustjóri Bayern München, er að snúa aftur til starfa eftir að hafa hnigið niður á æfingasvæði félagsins þann 23. október síðastliðinn.
Kompany, sem er fertugur, fékk krampakast þegar hann fylgdist með leik U23 ára liðs Bayern og fór úr axlarlið við fallið.
Rannsóknir á sjúkrahúsi leiddu í ljós ertingu í heilahimnum sem var talin orsök veikindanna.
Kompany hefur síðan jafnað sig heima fyrir og gengist undir aðgerð á öxl.
Jan-Christian Dreesen, framkvæmdastjóri Bayern, staðfesti að Belganum liði vel og að hann væri væntanlegur aftur á hliðarlínuna gegn Köln á föstudaginn.
„Vincent er í góðu ásigkomulagi. Ég hitti hann í dag. Ertingin í heilahimnunum er gengin til baka og hann hefur þegar farið í axlaraðgerð,“ sagði Dreesen.
Kompany hefur misst af fimm leikjum Bayern á meðan Aaron Danks, aðstoðarmaður hans, hefur stýrt liðinu.
Bayern hefur staðið sig vel í fjarveru Kompany og er endurkoma hans kærkomin fyrir annasaman kafla fram undan.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗