Velja ódýrara en kaupa ekki minna
Verð á tæplega þriðjungi vara í verðmælingu ASÍ í Bónus lækkaði frá ágúst til nóvember. Dagvöruvísitalan fyrir verslunina hækkaði þó um 0,49% á sama tíma. mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir
Viðskiptavinir dagvöruverslana Haga velja í auknum mæli ódýrari vörur og nýta sér tilboð, að sögn Finns Oddssonar, forstjóra Haga. Hann segir þó ekki hafa dregið úr magni seldrar dagvöru.
Í svari við fyrirspurn mbl.is eftir peningamálafund Viðskiptaráðs í dag segir Finnur að ein skýringin kunni að vera sú að kaup á nauðsynjavörum séu síður viðkvæm fyrir breytingum í efnahagslífinu en ýmis önnur innkaup.
„Við sjáum frekar einhverjar breytingar í kauphegðun, þar sem heimilin nýta sér tilboð og hagkvæmari valkosti í auknum mæli.“
Finnur Oddsson, forstjóri Haga, segir viðskiptavini í auknum mæli velja ódýrari vörur. Enn séu þó engin skýr merki um að heimilin ætli að draga úr matarinnkaupum fyrir jólin. Ljósmynd/Aðsend
Nær þriðjungur vara lækkaði en vísitalan hækkaði
Spurður hvort birgjar hafi boðað verðhækkanir fyrir jól segir Finnur að undanfarnar vikur hafi flestir birgjar innfluttra vara lækkað verð. Sterkt gengi krónunnar eigi þar hlut að máli. Að sögn Finns hafa um 2.300 vörur lækkað í verði í Bónus frá því í október.
Finnur segir að hægt hafi á verðhækkunum á matvöru undanfarna mánuði. Að hans sögn hefur matvöruverð hækkað um tæp 4% á tólf mánuðum og því minna en almennt verðlag. Hann segir betri innkaupskjör og fjölgun ódýrari valkosta einnig hafa haft áhrif.
Verðlagseftirlit ASÍ mældi verðþróun yfir lengra tímabil, frá ágúst til nóvember. Í Bónus lækkaði verð á 31,4% vara í mælingunni en dagvöruvísitala verslunarinnar hækkaði um 0,49%.
Dagvöruvísitala ASÍ hækkaði í heild um 0,33% á tímabilinu. Hækkun á kjötverði, einkum nautakjöti, skýrði meira en helming hækkunar vísitölunnar. Mjólkurvörur hækkuðu einnig í verði en verðlækkanir voru einkum á innfluttum vörum.
Ekki merki um samdrátt fyrir jólin
Finnur segir enn snemmt að spá fyrir um jólaverslunina. Hagar sjái þó engin skýr merki um að heimilin ætli að draga sérstaklega úr matarinnkaupum fyrir hátíðarnar. Hann býst við að neytendur verði áfram meðvitaðir um verð og nýti sér tilboð.
Telur svigrúm skapast til vaxtalækkana
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað í gær að halda stýrivöxtum óbreyttum í 8%. Finnur segir stöðu bankans vandasama. Hægt hafi á hagkerfinu á sama tíma og verðbólga sé enn mikil. Hann telur þó jákvætt að bankinn sjái fram á hraðari hjöðnun verðbólgu á næsta ári.
„Ég hef fulla trú á því að það gangi eftir og að það muni hratt skapast svigrúm til að lækka vexti sem fyrst og sem hraðast.“
Spurður um áhrif hárra vaxta á rekstur Haga segir Finnur að þeir geri félagið vandlátara við val á fjárfestingum.
„Vaxtastigið hefur verið hátt lengi og við erum orðin vön því að vanda valið og gera skýra kröfu um að fjárfestingar skili sér.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
