Uppsagnir hjá embætti ríkislögreglustjóra
Að sögn Rannveigar hefur stöðugildum verið fækkað um 17 í heildina. mbl.is/Árni Sæberg
Embætti ríkislögreglustjóra sagði upp fjórum starfsmönnum í dag og dró eina tímabundna ráðningu til baka.
Störfin sem lögð voru niður voru sérfræðingastörf.
Þetta segir Rannveig Þórisdóttir, sviðsstjóri þjónustusviðs hjá embættinu, í samtali við mbl.is en RÚV greindi fyrst frá.
Að sögn Rannveigar hefur stöðugildum verið fækkað um 17 í heildina.
Rekstrarfé nægir ekki
„Þetta eru bara fjárheimildir og við erum að reyna að koma saman rekstraráætlun og það er bara þannig að við erum með rekstrarfé sem nægir ekki fyrir þessu þannig að við þurfum þá að draga saman,“ segir Rannveig spurð hver ástæða uppsagnanna sé.
Hún segir fleiri uppsagnir ekki fyrirséðar sem stendur.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗