Styrmir drjúgur í háspennuleik
Styrmir Snær Þrastarson átti góðan leik fyrir Rapid Búkarest þegar liðið vann Corona Brașov, 89:87, á útivelli í rúmensku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.
Styrmir skoraði sextán stig og var næststigahæstur hjá Rapid ásamt Munis Tutu. Hann tók einnig fjögur fráköst, stal tveimur boltum og varði eitt skot á 36 mínútum.
Rapid hefur unnið fjóra leiki og tapað fjórum í deildinni á tímabilinu og er í fjórða sæti.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗