Hver verður Íslandsmeistari?

Mynd: Rafíþróttasamband Íslands

Það verður sannkölluð Counter-Strike-veisla í Next Level Gaming í Egilshöll laugardaginn 21. nóvember þegar úrslit Íslandsmeistaramóts Ljósleiðaradeildarinnar ráðast. Þetta kemur á esports.is.

Lið Dusty er komið í úrslitaleikinn þar sem það mætir annaðhvort Þór Akureyri eða Þór Þorlákshöfn. Úrslitaviðureignin hefst klukkan 18 og verður leikin samkvæmt BO5-fyrirkomulagi. Það lið sem fyrr vinnur þrjú kort verður Íslandsmeistari.

Upphitun fyrir úrslitaleikinn hefst kl. 17:15 þar sem lýsendur mótsins fara yfir viðureignina, meta möguleika liðanna og spá fyrir um úrslitin.

Fjölbreytt dagskrá fyrir gesti

Dagskráin hefst kl. 13:00 með Wingman-móti á vegum Next Level Gaming þar sem keppt verður um glæsilega vinninga. Enn eru nokkur laus sæti í mótið og fer skráning fram á Scrim.is.

Gestum gefst einnig kostur á að taka þátt í sérstakri Counter-Strike-áskorun þar sem vinningar frá Lenovo og Red Bull verða í boði, meðal annars Lenovo Legion-tölvuskjár.

Lukkuhjól Red Bull verður jafnframt á staðnum þar sem þátttakendur geta unnið drykki, ýmsan varning og jóladagatöl. Þeir heppnustu geta jafnvel farið heim með heilan kassa af Red Bull.

Boðið verður upp á tilboð á barnum og sérstakt tilboð á mat frá Shake and Pizza.

Íslandsmeistarar krýndir í lok kvölds

Að úrslitaleiknum loknum verður Íslandsmeistarabikarinn afhentur sigurliðinu. Þá verða einnig veitt sérstök verðlaun fyrir besta leikmann mótsins (MVP) í boði Next Level Gaming.

Allir áhugamenn um Counter-Strike eru hvattir til að mæta í Egilshöll og fylgjast með þegar Íslandsmeistarar haustsins verða krýndir.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab