Trump blæs til blaðamannafundar
Erlent | AFP | 19.11.2026 | 17:29
Trump átti þríhliða viðræður við Xi Jinping, forseta Kína, og Vladímír Pútín, forseta Rússlands í gær. AFP
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur blásið til blaðamannafundar sem fram fer í Hvíta húsinu í Washington á morgun við heimkomuna frá Kína, þar sem hann átti þríhliða viðræður við Xi Jinping, forseta Kína, og Vladímír Pútín, Rússlandsforseta.
„Þetta var frábær og afar þýðingarmikil ferð. Ég mun halda blaðamannafund á morgun klukkan 12 á hádegi í Hvíta húsinu,“ skrifaði Trump í færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social.
„Einnig verður fjallað um viðskiptasamningana við Taíland, Filippseyjar og fleiri,“ skrifaði hann.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗