Erum við tilbúin í nýja kökutísku?

Litríkar kökur úr mús og ávaxtahlaupi fá óvenjulega lögun hjá Lili Song, sem nálgast eftirréttagerð eins og listsköpun. Samsett mynd/Sjáskot Instagram

Litríkar kökur úr hlaupi með óvenjulega lögun hafa vakið athygli á samfélagsmiðlum. Gamalkunnugur eftirréttur fær þar nýtt líf þegar hlaup og mús verða að kökum sem minna á ætileg listaverk.

Ein þeirra sem leika sér með þessa hugmynd er Lili Song, sem starfar í New York og birtir sköpunarverk sín á Instagram-reikningnum @likelysong. Í einni færslunni sýnir hún köku sem hún kallar „bubble mousse jelly cake“, þar sem ólík bragðtilbrigði koma saman.

Jarðarber, mangó og matcha

Í lýsingu Song kemur fram að kakan innihaldi jarðarberjamús með jarðarberjahlaupi, mangómús, matchamús og hindberja- og sítrónuhlaup.

Tilefnið var heimsókn vina. Song segir köku úr hlaupi ómissandi þegar vinir komi í heimsókn og kveðst þegar vera að undirbúa fleiri skemmtilegar útfærslur á eftirréttum.

Á vef sínum lýsir hún verkum sínum sem sköpun á mörkum eftirrétta og skúlptúra. Ávextir, matarlím, sykur og rjómi eru meðal þeirra hráefna sem hún vinnur með.

Gamalt hlaup fær nýtt líf

Kakan fellur að breiðari tískubylgju í eftirréttagerð, þar sem útlit, áferð og óvænt framsetning fá aukið vægi.

Matar- og lífsstílsmiðillinn Falstaff fjallaði í nóvember 2025 um endurkomu hlaupeftirrétta á Instagram og TikTok. Þar var bent á hvernig skærir litir, lagskipting og listræn framsetning hefðu gert gamalkunnan eftirrétt að eftirsóttu myndefni.

Útfærsla Song sameinar mús og hlaup og sýnir hversu langt má fara með kunnugleg hráefni þegar hugmyndaflugið fær að ráða.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅