Loksins verður hægt að loka Cheerios pokanum
Cheerios í endurlokanlegum pokum fór í sölu í netverslun Walmart í Bandaríkjunum 27. október. Óvíst er hvenær nýju umbúðirnar verða fáanlegar hér á landi. Ljósmynd/General Mills
Það kannast margir við að rúlla morgunkornspokanum saman, festa hann með klemmu eða hella innihaldinu í annað ílát. Nú hefur Cheerios tekið höndum saman við Ziploc og kynnt poka sem hægt er að loka aftur inni í kassanum. Þetta kemur fram í frétt The Washington Post.
Nýju umbúðirnar voru kynntar í Bandaríkjunum 27. október og verða fáanlegar fyrir bæði upprunalegt Cheerios og Honey Nut Cheerios.
Markmiðið að halda morgunkorninu fersku
Lokunin nær yfir hluta af efri brún pokans. Því þarf aðeins að opna hann til að hella morgunkorninu í skál, sem á að draga úr því að það fari út fyrir.
Að því loknu er pokanum lokað aftur inni í kassanum. Samkvæmt framleiðandanum er markmiðið að halda morgunkorninu fersku lengur.
Neytendur hafa lengi kallað eftir lausn
General Mills segir fyrirtækinu berast árlega hundruð þúsunda beiðna, athugasemda og viðbragða um lokun morgunkornspoka.
Í könnun sem fyrirtækið vísar til sögðust 90 prósent þeirra sem borða morgunkorn grípa til viðbótarráðstafana til að varðveita ferskleikann, svo sem að brjóta pokann saman, rúlla honum upp, nota klemmu eða færa innihaldið í annað ílát.
Nýju umbúðirnar eru fyrst fáanlegar í netverslun Walmart. Áætlað er að þær komi í fleiri verslanir í Bandaríkjunum á næstu mánuðum. Óvíst er hvenær nýju umbúðirnar verða fáanlegar hér á landi.
„Það er gaman að fylgjast með fréttum af morgunkorninu sem allir þekkja. Það er ekki vitað hvenær við munum sjá þessar breytingar hér á landi en vonandi í náinni framtíð,“ segir Snorri Valur Steindórsson, vörumerkjastjóri Cheerios fyrir Nathan á Íslandi.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/78/1687801.jpg)