„Það er ótrúlegt hvað móðir mín getur verið sannfærandi“
„Árið 2019 fékk ég hjartaáfall sem varð til þess að ég endurskoðaði líf mitt aðeins,“ segir Ívar Örn Hansen matreiðslumaður. Hann starfar meðal annars sem einkakokkur fyrir viðskiptavini Nordic Luxury. Samsett mynd/Eva Schram/Nordic Luxury
Ívar Örn Hansen var átján ára, vann í Hagkaup og fannst lífið ekki stefna í rétta átt þegar móðir hans tók upp símann. Símtalið varð upphafið að matreiðsluferli sem hefur síðan leitt hann um eldhús veitingastaða og hótela, í einkakokkamennsku og matvælaframleiðslu. Leiðin að útskrift var þó lengri en hann hafði ætlað.
Móðir hans hringdi í Brynjar Eymundsson, eiganda Veislunnar, sem varð síðar meistari Ívars. Hún þekkti til hans úr veisluþjónustu og vissi að sonurinn hafði lengi haft áhuga á matreiðslu.
„Hún vissi alveg að mig langaði að læra matreiðsluna. Ég var búinn að tala um það frá því ég var tólf ára,“ segir Ívar.
Hann tekur undir að þetta símtal hafi dugað til að koma honum af stað.
„Já, það er ótrúlegt hvað móðir mín getur verið sannfærandi.“
Átján ár á milli upphafs og útskriftar
Ívar hóf námið árið 1998 en hætti árið 2001, þegar rúmt ár var eftir. Hann hélt þó áfram að starfa sem kokkur, á veitingastöðum og hótelum, og ástríðan fyrir matreiðslunni hvarf ekki.
Árið 2014 ákvað hann að ljúka því sem hann hafði byrjað á. Hann fór í raunfærnimat hjá Iðunni fræðslusetri og komst að því að reynslan úr eldhúsunum nýttist við að klára námið. Eftir voru tvær annir í skóla.
Vorið 2016 útskrifaðist hann sem matreiðslumaður, átján árum eftir að hann hóf námið.
„Ég held að það sé bara mikilvægt fyrir alla að eiga sér drauma og markmið og að framfylgja þeim.“
Ívar Örn og eiginkona hans Þórey Hafliðadóttir eru matvælaframleiðendur og gera m.a. hrekkjavökusultu undir vörumerkinu Helvítis. Ljósmynd/Aðsend
Spurningar sem skipta máli
Árið 2020 hóf Ívar störf sem einkakokkur hjá Nordic Luxury. Tveimur árum síðar fór hann að vinna meira sjálfstætt. Þar fann hann starfsvettvang sem sameinaði matreiðsluna og ánægjuna af því að kynnast fólki.
Hann segir verkefnin krefjast annars og meira en að kunna að elda. Einkakokkur þurfi að lesa gestina, skilja óskir þeirra og finna hvað hentar hverju sinni. Samtalið geti byrjað á einföldum spurningum.
„Hvernig hefurðu það? Hvernig svafstu? Hvað eruð þið að fara að gera í dag?“
Eitt verkefni situr sérstaklega í honum. Hann eldaði fyrir átta konur frá Kúveit í fimm daga og spurði hópstjórann hvað fólk borðaði þar til hátíðabrigða. Svarið var machboos, en hún varaði hann við því að rétturinn tæki átta klukkustundir í eldhúsinu.
Ívar lét það ekki aftra sér. Hann leitaði að uppskriftum, bar þær saman og mótaði eigin útfærslu. Sjö klukkustundum síðar bar hann réttinn fram. Að hans sögn voru einu athugasemdir gestanna að hrísgrjónin væru örlítið ofsoðin. Að öðru leyti minnti maturinn þær á eldamennsku ömmu.
Það eru slík augnablik sem hann sækist eftir. Hann segir ótrúlega spennandi einstaklinga koma til Íslands og vilja hafa einkakokk og í því starfi finnur hann sig vel.
Fékk hjartaáfall sem breytti lífinu hans
Ívar segist hafa verið feimnari og meira til baka áður fyrr.
„Árið 2019 fékk ég hjartaáfall sem varð til þess að ég kannski endurskoðaði líf mitt aðeins,“ segir hann og bætir við:
„Mér hafði ekki liðið vel fyrir þennan tíma. Ég hafði lítið hreyft mig, reykt og borðað óhollt. Ég léttist um tæp fimmtíu kíló í kjölfarið en stærsta breytingin var án efa viðhorfið mitt til tilverunnar.“
Ívar lýsir því að eftir hjartaáfallið hafi hann farið að finna fyrir þakklæti með öðrum hætti en áður.
„Upp frá þessu byrjaði ég að finna raunverulegt þakklæti fyrir að vera hreinlega á lífi. Ég hætti að reyna að stjórna öllu, varð frjálsari og leyfði lífinu og tækifærunum að koma meira til mín.“
Hefði ekki klæðst gulum buxum
Í samtali okkar tengir Ívar aukið sjálfstraust meðal annars við sjálfstæða reksturinn og matreiðsluþætti sem hann gerði sem komu út vorið 2022.
„Ég held að blómið mitt hafi kannski blómgast þá.“
Hann tekur þó fram að margt hafi komið þar saman. Hann geti ekki bent á eina einfalda skýringu á því hvers vegna honum hafi farið að líða betur með að láta á sér bera.
Báðar hliðarnar séu enn til staðar; hann geti verið bæði hlédrægur og opinn í samskiptum. Nú hafi hann hins vegar meira gaman af því en áður að stíga fram. Til marks um breytinguna nefnir hann klæðaburðinn.
„Fyrir fimm árum hefði ég ekki látið sjá mig í gulum buxum,“ segir Ívar.
Aðspurður hvort vitundin um að lífið væri ekki endalaust hefði átt þátt í að hann þyrði frekar að prófa það sem hann langaði til, tekur hann undir það.
„Já, það er partur af þessu líka.“
Ívar segir að margt hafi breyst hjá honum á undanförnum árum. Þessi mynd er tekin á Sæta svíninu. Ljósmynd/Aðsend
Eiginkona hans, Þórey Hafliðadóttir, er margmiðlunarhönnuður. Saman sinna þau matvælaframleiðslu og þessa dagana er mikið að gera við sultugerðina, meðal annars við svörtu Helvítis hrekkjavökusultuna með graskerskryddi. Þau vinna bæði hálft starf annars staðar samhliða framleiðslunni.
„Verkaskiptingin okkar á milli er mjög skýr. Þórey hannar og ég elda.“
Þótt verkefnin séu fjölbreytt segir Ívar bragðið alltaf vera aðalatriðið. Reynslan hafi kennt honum að finna hvað vanti, hvort sem það er sæta eða sýra. Við pottana fær hann enn útrás fyrir ástríðuna sem kviknaði löngu áður en móðir hans hringdi símtalið góða um árið.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/79/1687948.jpg)



