Nýr veitingastaður opnaður á Selfossi

Björgvin Jóhannesson hótelstjóri, Hlynur Friðfinnsson framkvæmdastjóri og Andri Björn Jónsson yfirkokkur við opnun Óss á Hótel Selfossi. Gestir fengu að smakka valda rétti af nýja matseðlinum. Samsett mynd

Nýr veitingastaður, Ós, hefur opnað á Hótel Selfossi og tekið við af Riverside Restaurant, sem hafði verið starfræktur á hótelinu frá árinu 2014. Nafnbreytingunni fylgja nýr matseðill og breyttar áherslur í veitingarekstri hótelsins, sem fagnaði 40 ára afmæli í sumar. 

Undanfarin misseri hafa bæði hótelið og veitingasvæðið gengið í gegnum umfangsmiklar endurbætur. Setustofusvæðið hefur meðal annars verið stækkað og unnið að því að bæta hljóðvist og umhverfi gesta.

„Okkur fannst einfaldlega vera kominn tími á breytingar. Riverside hefur þjónað okkur vel í mörg ár en samhliða þeim breytingum sem hafa orðið á hótelinu vildum við skapa nýtt „konsept“ sem endurspeglar betur þá upplifun sem við viljum bjóða í dag,“ segir Björgvin Jóhannesson, hótelstjóri á Hótel Selfossi. 

Á Ósi er lögð áhersla á óformlegt umhverfi þar sem gestir geta komið saman yfir mat og drykk, hvort sem um er að ræða kvöldverð, léttari rétti eða drykk með vinum.

Andri Björn Jónsson er yfirkokkur á Ós

Andri Björn Jónsson, yfirkokkur Óss, er maðurinn á bak við nýjan matseðil. Þar er meðal annars úrval smárétta sem ætlaðir eru til að deila við borðið.

„Við viljum að upplifunin sé óformleg og skemmtileg. Það þarf ekki alltaf sérstakt tilefni til að fara út að borða. Hugmyndin er að fólk geti komið hingað, fengið sér eitthvað gott í glas, pantað nokkra rétti saman á borðið og átt notalega stund,“ segir Andri. 

Andri Björn Jónsson, yfirkokkur Óss, hefur gert nýjan og spennandi matseðil fyrir staðinn. Ljósmynd/Aðsend

„Við munum einnig byrja með hádegisopnun frá og með 2. nóvember og hvetjum heimafólk til að kíkja við og prófa nýja hádegisseðilinn. Sem dæmi er tilvalið fyrir fyrirtæki á svæðinu að kíkja á okkur í hádeginu, hvort sem það er með samstarfsfólkinu eða í tengslum við fundi. Það er orðið mjög blómlegt veitingalíf á Selfossi og við lítum á Ós sem skemmtilega viðbót við þá flóru. Okkar markmið er að skapa stað sem heimafólk tengir við og líður vel á.“

Vilja styrkja tengslin við heimafólk

Hlynur Friðfinnsson, framkvæmdastjóri Óss, segir viðtökur heimamanna við breytingunum á hótelinu og veitingasvæðinu hafa verið mjög jákvæðar.

Í tilefni af opnuninni var starfsfólki, þeim sem komu að opnun staðarins, vinum og velunnurum hótelsins boðið í opnunarteiti. Þar voru bornar fram léttar veitingar og gestum gefinn kostur á að smakka valda rétti af nýja matseðlinum.

Gestir fögnuðu opnun Óss og smökkuðu valda rétti af nýja matseðlinum. Ljósmynd/Aðsend

Að sögn Hlyns var vel mætt og góð stemning, sem endurspeglar áherslur staðarins á persónulegt, hlýlegt og afslappað andrúmsloft.

„Við höfum fundið fyrir mikilli jákvæðni frá fólki á svæðinu og heimafólk hefur verið sérstaklega duglegt að mæta í tveir fyrir einn tilboðin á Happy Hour, enda erum við með besta Happy Hour bæjarins og eini staðurinn þar sem hægt er að splitta G-inu af dælu. Fólkið hér á Selfossi skiptir okkur auðvitað öllu máli! Hótel Selfoss hefur verið hluti af bæjarlífinu í 40 ár og með Ós viljum við styrkja þessi tengsl enn frekar,“ segir Hlynur.

Gestum gafst kostur á að smakka valda rétti af nýja matseðli Óss. Ljósmynd/Aðsend

Ós er á Hótel Selfossi við Eyraveg, við Ölfusá. Staðurinn er opinn bæði hótelgestum og öðrum gestum.

Glatt var á hjalla við formlega opnun staðarins.

Glatt var á hjalla við formlega opnun staðarins. Ljósmynd/Aðsend

Á matseðlinum er meðal annars úrval smárétta sem ætlaðir eru til að deila við borðið. Ljósmynd/Aðsend

Andri Björn Jónsson yfirkokkur gerði nýjan matseðil staðarins.

Andri Björn Jónsson yfirkokkur gerði nýjan matseðil staðarins. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅