„Ertu ekki orðinn of seinn í vinnuna?“
Helgi Seljan ásamt ungum Hauki Má Haukssyni á Fiskmarkaðnum. Helgi var þar í mat með Hrefnu Sætran og var svo ánægður með matinn að hann óskaði eftir að hitta kokkinn. Ljósmynd/Úr einkasafni Hrefnu Sætran
Haukur Már Hauksson var aðeins fimmtán ára þegar hann hóf störf á Fiskmarkaðnum, nýkominn úr grunnskóla. Hann hætti reyndar um tíma í upphafi en eitt símtal varð til þess að hann mætti aftur. Nú snýr hann aftur í eldhúsið þar sem kokkaferillinn hófst og matreiðir fyrir gesti dagana 11. og 12. nóvember.
Hrefna Sætran rifjar upp gamla tíma með Hauki.
„Það eru ekki allir sem ráða við það að byrja svona ungir en hann gerði það skynsamlega. Maður stjórnar dálítið sjálfur með veitingastaðnum hversu hratt maður tekur námið,“ segir Hrefna.
Þegar Haukur hafði hætt um stund vantaði mann á vaktina. Einn kokkanna tók þá upp símann og hringdi í hann.
„Ertu ekki orðinn of seinn í vinnuna?“
Haukur mætti og varð hluti af hópnum á Fiskmarkaðnum um árabil.
„Mér þótti alltaf ótrúlega gott að vera á Fiskmarkaðnum. Ég eiginlega ólst þar upp, byrjaði 15 ára og vann hjá Hrefnu í 12 ár. Þannig að Fiskmarkaðurinn var stór hluti af lífi mínu og staður sem mér hefur alltaf þótt mjög vænt um,“ segir Haukur.
Tónlistin tengdi þau saman
Hrefna var 28 ára þegar Haukur byrjaði að vinna fyrir hana. Þrátt fyrir aldursmuninn fundu þau fljótt sameiginlegt áhugamál.
„Við tengdumst vel því við hlustuðum á sömu tónlistina svo við töluðum mikið um tónlist og spiluðum lög hvort fyrir annað. Svo hélst okkar vinátta og við erum bara mjög góðir vinir í dag öllum þessum árum seinna,“ segir hún.
Haukur man vel eftir því þegar hann gekk fyrst inn á Fiskmarkaðinn til að sækja um að verða kokkanemi hjá Hrefnu. Á einni af fyrstu vöktunum kom sameiginlegur tónlistarsmekkur þeirra í ljós.
„Við vorum sem sagt bæði svokallaðir hip hop hausar og gátum því hlustað á tónlistina okkar saman í eldhúsinu, öðrum á vaktinni til mismikillar ánægju,“ segir Haukur.
Hrefna Sætran og Haukur Már Hauksson ásamt Dak Laddaporn Wichangoen Michelin-kokki, sem kom frá Danmörku sem gestakokkur á Food and Fun. Tónlistin tengdi Hrefnu og Hauk saman á fyrstu árum hans í eldhúsi Fiskmarkaðarins. Ljósmynd/Úr einkasafni Hrefnu Sætran
Haukur fór síðar að reka Yuzu og hefur síðan verið mörgum kunnugur fyrir hamborgarana þar.
„Haukur fór svo í að opna Yuzu og elda hamborgara en hann er í grunninn auðvitað geggjaður kokkur,“ segir Hrefna.
Hugmyndin að endurkomunni kviknaði í samtali þeirra. Haukur hafði nefnt að hann langaði að taka eina vakt á Fiskmarkaðnum, einfaldlega sér til skemmtunar. Úr varð tveggja kvölda viðburður þar sem hann kemur með bragðheim Yuzu inn í eldhús gamla vinnustaðarins.
Nick Andrew Torres, yfirkokkur Fiskmarkaðarins, Daniel Ólafsson, betur þekktur sem DJ Danni Delux, Haukur Már Hauksson, Gísli Heiðar Ævarsson, matreiðslumaður á Yuzu og fyrrverandi matreiðslumaður á Fiskmarkaðnum, og Hrefna Sætran undirbúa viðburðinn dagana 11. og 12. nóvember. Ljósmynd/Aðsend
Gömlu Yuzu-réttirnir snúa aftur
Haukur ætlar að endurvekja rétti af matseðli fyrsta Yuzu-staðarins á Hverfisgötu.
„Áður en Yuzu breyttist í hamborgarastað vorum við með fjölbreyttan matseðil með alls konar réttum.“
Hann segir suma þessara rétta enn eiga sér dyggan aðdáendahóp.
„Núna ætlum við að rifja upp gamla tíma og bjóða upp á nokkra af vinsælustu réttunum frá þessum tíma. Þetta eru réttir sem ég er enn reglulega spurður út í og eiga sér greinilega marga aðdáendur.“
Ostakakan sem hann lærði fyrst að gera
Í eftirrétt verður hvítsúkkulaðiostakaka af Fiskmarkaðnum sem á sérstakan stað í minningum Hauks.
„Hún hefur sérstaka þýðingu fyrir mig, enda var þetta fyrsti rétturinn sem ég lærði að gera þegar ég byrjaði á Fiskmarkaðnum og er enn þann dag í dag uppáhaldseftirrétturinn minn,“ segir hann.
Stefnir í fjör bæði kvöldin
Á fimmtudagskvöldinu mun Danni Delux þeyta skífum á Uppi bar. Upphaflega átti miðvikudagurinn að vera rólegri en Hrefna segir bókanir gefa tilefni til að ætla að það verði líflegt bæði kvöldin.
„Planið var að hafa miðvikudaginn rólegri og svo partýstemningu á fimmtudeginum og DJ Danni Delux verður að spila á Uppi þá, en það er komið svo mikið bókað báða dagana að mér finnst líklegt að við höfum partýstemningu líka á miðvikudeginum.“
Á fimm rétta matseðlinum verða þrjár tegundir af edamame, með Yuzu hot sauce, sesam og límónuvínaigrette. Þá verður boðið upp á grillaðan misókjúkling með grænkáli og sesamfræjum, kóngarækju með ástaraldini og eldpipar og ribeye-nautasteik með grilluðum sætum kartöflum, sveppum og brokkolí. Í eftirrétt verður hvítsúkkulaðiostakaka.
Haukur tekur þó af allan vafa um eitt:
„En það verða engir hamborgarar í boði í þetta skiptið!“
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/81/1688101.jpg)




