Er þetta vinsælasti eftirréttur Íslands?

Anna Marín Bentsdóttir deilir uppskrift að glæsilegu sítrónutarti sem er meðal eftirlætiseftirrétta hennar. Samsett mynd/Aðsend

Klassískt sítrónutart er án efa einn vinsælasti eftirréttur Íslands. Þessi bragðgóði eftirréttur er sígildur og á sér langa sögu. Þótt margir tengi hann franskri sætabrauðsgerð þekkjast uppskriftir að sítrónufyllingu í deigskel einnig úr gömlum breskum uppskriftabókum. Í handriti sem varðveitt er hjá Penn State-háskólanum í Pennsylvaníu má finna útgáfu með sítrónum, eggjum, sykri og smjöri, sömu grunnhráefnum og enn gefa þessum eftirrétti sitt sérstaka bragð.

Anna Marín Bentsdóttir hefur bakað frá því að hún man eftir sér og meðal annars séð um kaffihúsið hjá Kokku á Laugaveginum. Hún hefur yndi af því að útbúa góðan mat og skapa fallega umgjörð þegar hún býður fólki að borða. Þetta tart er meðal eftirlætiseftirrétta hennar.

„Sítrónutart hefur lengi verið einn af mínum uppáhaldseftirréttum. Stökk tartskel, silkimjúkt sítrónucurd og léttur ítalskur marengs gera þetta að eftirrétti sem hentar við öll tilefni, hvort sem það er fyrir veislu eða með góðum kaffibolla,“ segir Anna Marín.

Gott er að hefja undirbúninginn daginn áður, því deigið þarf að hvíla í kæli og tartið að kólna vel áður en það er skreytt. Í lokin er marengsinum sprautað yfir sítrónufyllinguna og hann brúnaður varlega með gasbrennara.

Klassískt sítrónutart

Stökk skel, silkimjúk sítrónufylling og léttur ítalskur marengs með gylltum toppum. Ljósmynd/Aðsend

Tartskel

  • 170 g smjör við stofuhita
  • 75 g flórsykur
  • 1 egg
  • ½ tsk. salt
  • ½ tsk. vanilludropar
  • 235 g hveiti
  • 1½ msk. möndlumjöl

Aðferð

  1. Hrærið saman smjör, flórsykur, egg, salt og vanilludropa þar til blandan er mjúk.
  2. Bætið hveiti og möndlumjöli út í og hrærið aðeins þar til deigið kemur saman.
  3. Pakkið deiginu inn og kælið í að minnsta kosti eina klukkustund eða yfir nótt.
  4. Fletjið deigið út á milli tveggja laga af bökunarpappír.
  5. Leggið deigið í 28 cm tartform og þrýstið því vel upp með hliðunum.
  6. Skerið umframdeig af köntunum og bætið í göt, ef einhver eru, með afgangsdeigi.
  7. Setjið formið í frysti í um 10 mínútur.
  8. Leggið bökunarpappír yfir deigið og fyllið með bökunarbaunum eða hrísgrjónum. Bakið við 170°C í 10–14 mínútur.
  9. Fjarlægið pappírinn og baunirnar eða hrísgrjónin og látið skelina kólna.

Sítrónufylling

  • 175 g sítrónusafi
  • 150 g smjör
  • 200 g sykur, skipt í 130 g og 70 g
  • 3 egg
  • 2 eggjarauður

Aðferð

  1. Setjið sítrónusafa, 130 g af sykrinum og smjörið í pott og hitið þar til smjörið hefur bráðnað.
  2. Þeytið á meðan egg, eggjarauður og 70 g af sykrinum þar til blandan verður ljós og létt.
  3. Hellið heitri sítrónublöndunni rólega út í eggjablönduna og hrærið stöðugt á meðan.
  4. Hellið öllu aftur í pottinn og hitið við vægan til miðlungshita. Hrærið stöðugt með písk þar til fyllingin hefur þykknað.
  5. Sigtið fyllinguna í skál og hellið henni síðan í bakaða tartarskelina.
  6. Bakið við 170 °C í um 10 mínútur.
  7. Látið tartarið kólna við stofuhita og kælið síðan í ísskáp í að minnsta kosti þrjár klukkustundir, helst yfir nótt.
  8. Takið tartið varlega úr forminu. Ef erfitt reynist að losa það má hita hliðarnar og botn formsins örlítið með gasbrennara. Rennið síðan þunnum spaða á milli botns formsins og tartsins og færið það varlega yfir á kökudisk.

Ítalskur marengs

  • 150 g sykur
  • 45 g vatn
  • 75 g eggjahvítur

Aðferð

  1. Setjið sykur og vatn í lítinn pott og hitið þar til sykurinn hefur leyst upp. Látið sírópið sjóða þar til það nær 115–118 °C.
  2. Þeytið eggjahvíturnar á meðan sírópið hitnar, þar til þær verða léttar og loftkenndar.
  3. Hellið sírópinu rólega niður með hlið hrærivélarskálarinnar á meðan vélin gengur.
  4. Haldið áfram að þeyta þar til marengsinn er stífur og glansandi og skálin orðin volg eða köld viðkomu.

Samsetning og skreyting

  1. Setjið marengsinn í sprautupoka með stút að eigin vali og sprautið honum yfir tartið.
  2. Brúnið marengsinn varlega með gasbrennara þar til hann verður gylltur.
  3. Skerið í sneiðar og berið fram.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅