Veisla á vínekru Róberts Wessman
Mikið var um dýrðir á vínekru Róberts Wessman í byrjun mánaðarins þegar uppskerulokum var fagnað. Vinum, fjölskyldu og viðskiptavinum var boðið til veislu þar sem Jökull úr Kaleo tróð upp ásamt fleirum. Við þetta tækifæri var tilkynnt að búast mætti við sérstaklega vel heppnuðum árgangi af vínekrunni þetta árið.
Fjöldi Íslendinga var viðstaddur veisluna sem haldin var á vínekru Róberts í Bergerac í Suðvestur-Frakklandi. Sú er ein af þremur vínekrum Róberts og fjölskyldu hans þar í landi en umfang víngerðarinnar hefur aukist hratt síðustu ár – og vínin batnað að sama skapi.
Hinn kunni veitingamaður Þráinn Freyr Vigfússon var fenginn til að vera gestakokkur á veitingastað Róberts sem er að finna á vínekrunni. Staðurinn er rekinn í samstarfi við franska Michelin-kokkinn Thierry Marx og er vinsæll meðal fólks á svæðinu. Hann fékk nýlega Bib Gourmand-viðurkenningu frá Michelin. Þráinn bauð upp á stóran matseðil þar sem meðal annars var að finna rétti af hinum vinsæla veitingastað hans, Óx.
Hér fá gestir á vínekru Róberts Wessman að kynnast sögu vínhússins og víni sem það framleiðir. mbl.is/hdm
Auk fjölda Íslendinga sem voru á staðnum á fallegu laugardagskvöldi voru einnig gestir frá Þýskalandi, Suður-Kóreu og fleiri löndum sem tengjast vínhúsinu og eiga í viðskiptum við það. Boðið var upp á tónleika undir berum himni og gátu gestir að sjálfsögðu dreypt á vínum hússins. Allt var þetta skipulagt af Georg Leite, kunnum veitingamanni af Kalda bar um margra ára skeið, sem nú starfar sem sölustjóri fyrir Maison Wessman.
Róbert Wessman bauð gesti velkomna og kynnti Jökul vin sinn á svið. Sem kunnugt er hefur Jökull tekið þátt í þróun og framleiðslu vína ásamt Róberti. Hann tilkynnti jafnframt að Lise Sadirac stjórnandi vínekrunnar hefði nýverið tekið við, fyrir hönd vínhússins, verðlaunum sem víngerðarmaður ársins á Bergerac- og Duras-svæðinu. Var það fyrir Tour des Verdots Bergerac-hvítvínið frá árinu 2024. Sadirac hefur stýrt vínekrum Róberts Wessman síðustu fimm árin en vínhúsið hlaut einnig sömu verðlaun árið 2017.
Forsvarsmenn vínhússins segja að útlit sé fyrir að uppskera ársins í ár verði frábær. Róbert Wessman lýsti þessum árgangi sem „einstökum“ í ræðu sinni og samstarfsfólk hans tók undir það.
Andreas Larsson, einn kunnasti vínþjónn heims sem starfar sem sendiherra fyrir vínframleiðslu Róberts, sagði að veðuraðstæður ársins spiluðu stórt hlutverk í uppskerunni og vísaði þar til hitabylgja og gróðurelda. Sagði hann að ef litið væri til baka til frábærra árganga þá ættu þeir margir það sameiginlegt að heitt var og þurrt það ár. Árið í ár liti út fyrir að skila frábæru víni en því miður væri uppskeran ekki mikil.
Lise Sadirac stjórnandi vínekrunnar sagði að um einstakt ár hefði verið að ræða. Hvítvínsuppskeran hefði hafist 19. ágúst en alla jafna væru berin tínd í september. Síðasti uppskerudagur rauðvínsins hefði verið 29. september, tæpum mánuði fyrr en oft áður. „Uppskeran í ár var lítil en þetta er einstakur árgangur. Ég ráðlegg ykkur að panta fyrir fram,“ sagði hún.
Framför á síðustu árum
Tekið er á móti gestum á vínekrunni í glæsilegu húsi þar sem tvö stór verk eftir listamanninn Erró prýða veggi. Þar er líka stór mynd af Róbert og konu hans, Kseniu Wessman, með söngkonunni Noruh Jones sem er meðeigandi í vínhúsinu og leggur nafn sitt við freyðivín og rósavín undir nafninu This Life.
Jökull Júlíusson úr Kaleo og Þorleifur Gaukur tróðu upp á uppskeruhátíð Maison Wessman í byrjun mánaðarins við góðar viðtökur. mbl.is/hdm
Íslenskum gestum var boðið að smakka helstu tegundir rauðvíns og hvítvíns frá Maison Wessman, alla árganga frá upphafi og fram til dagsins í dag. Fólk var almennt sammála um að mikill munur væri á árgöngunum og að augljós framför hefði orðið síðustu ár. Í hópnum voru menntaðir vínþjónar.
Gestum var sömuleiðis boðið í kjallara þar sem vínin fá að þroskast á tunnum. Þar mátti sjá hvernig vínin eru hreyfð á hverjum degi og þau smökkuð af tunnunum. Afar forvitnilegt var að finna muninn á vínum af sömu þrúgu sem ræktuð voru á mismunandi stöðum á vínekrunni en jarðvegur og hæð hafa mikið að segja um útkomuna.
Hermt er að uppskera á vínekrum Maison Wessman verði óvenjuvel heppnuð í ár. Hér sést yfir vínekruna Vignoble des Verdots í Bergerac. mbl.is/hdm
Róbert Wessman er ánægður með hvernig vínhús hans í Frakklandi hefur þróast síðasta áratuginn. Hann hélt ræðu fyrir gesti í Bergerac. mbl.is/hdm
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗








