Hvernig nærðu rauðvíni úr hvítum jakka?

„Ég fékk spurningu frá lesanda hvernig best væri að ná rauðvíni úr hvítum jakka,“ segir Marta María Arnarsdóttir skólastjóri Hústjórnarskólans.

„Það eru nokkrar leiðir til þess. Best er að vinna á blettinum á meðan hann er ennþá rakur og ef maður hefur hvítvín við höndina þá getur maður hreinlega gluðað því beint á blettinn og þá hverfur hann eins og dögg fyrir sólu. Síðan þvær maður flíkina bara eftir á með hefðbundnum hætti. Maður getur líka þurrkað mesta rakann úr blettunum hreinlega með eldhúspappír eða stráð salti eða matarsóda á blettinn.

Ef maður ætlar að skola blettinn úr með vatni þá þarf maður að muna að nota kalt vatn, ekki heitt vatn, og skola úr efninu frá röngunni en ekki réttunni því þá ýtir maður í rauninni úr við blettinn bara lengra inn í efnið. Svo getur maður notað alls konar efni til þess að ná restinni af rauðvíninu úr, til dæmis glæran uppþvottalög eða sódavatn, edik eða hreinlega milt fljótandi þvottaefni. Þannig að það eru alls konar leiðir til þess að ná rauðvíni úr flíkum, bara alls ekki henda þeim,“ segir Marta María Arnarsdóttir. 

Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent spurningu HÉR. 

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅