„Ég hugsaði bara: Vá, ég ætla að verða svona þegar ég verð eldri“
Andrea Gunnarsdóttir var 22 ára háskólanemi þegar hún fann fyrirmyndina að heimilislífinu sem hana langaði að skapa. Nú deilir hún sjálf uppskriftum á vefnum Sögur úr eldhúsi Andreu, eldar sunnudagsmat á þriðjudögum og skrifar spennusögur þess á milli.
Það er ekki fyrr en nokkuð er liðið á samtalið að Andrea Gunnarsdóttir segir frá því að hún hafi lokið við að skrifa spennusögu. Hún hefur sent handritið til Bjarts og Veraldar og bíður svara. Önnur saga er þegar í smíðum.
Sjálf fer hún varlega í að lýsa þessum hluta tilverunnar.
„Ég er reyndar að reyna fyrir mér sem rithöfundur en það er bara á byrjunarstiginu,“ segir hún.
Það er ákveðin hógværð í því að tala um að reyna fyrir sér þegar eitt handrit er fullskrifað og annað hafið. Sama lítillætið kemur fram þegar hún rifjar upp upphaf matarvefsins síns. Hugmyndin kom frá fólkinu sem sat við matarborðið hennar.
„Fólk fór bara að segja þetta við mig: Þú ættir að vera með matarblogg. Ég hló bara: Ég? Hver er að fara að fylgjast með því?“
Tveimur árum síðar hafði svarið komið í ljós. Fólkið sem vildi fylgjast með var býsna margt.
„Ég ætla að verða svona“
Á vefnum Sögur úr eldhúsi Andreu er heimilismaturinn í aðalhlutverki. Þar birtist matur sem hún eldar sjálf og ber á borð heima hjá sér.
„Ég er mikil mataráhugamanneskja og allt sem ég deili með lesendum vefsins er réttir sem ég er að gera heima hjá mér.“
Áhuginn á eldamennsku kviknaði snemma. Heimilisfræði var uppáhaldsfagið hennar í grunnskóla, þótt hversdagsmaturinn heima hefði ekki alltaf vakið sérstaka tilhlökkun. Um helgar naut pabbi hennar þess hins vegar að elda góðan mat frá grunni og jólamaturinn hjá foreldrum hennar og ömmu og afa var eftirminnilegur.
Eftir að Andrea flutti að heiman liðu þó nokkur ár áður en hún fann almennilega sína leið í eldhúsinu. Hún lýsir matnum frá þeim tíma sem ágætum en hann hefði getað verið betri.
Þá kynntist hún ljúfmeti Svövu Gunnarsdóttur.
„Ég lærði í rauninni allt sem ég kann af henni, bæði í matargerð, uppstillingu, matarmyndatöku og borðskreytingum og öllu saman. Þetta er allt innblásið af henni.“
Andrea var þá 22 ára og í háskóla. Hún hafði ekki mikið á milli handanna en sá eitthvað hjá Svövu sem hún vildi sjálf eiga hlutdeild í.
„Ég hugsaði bara: Vá, ég ætla að verða svona þegar ég verð eldri.“
Hún splæsti stundum í hráefni í betri helgarmat og fikraði sig áfram. Enn sækir hún reglulega í uppskriftir Svövu og segist elda rétti af vefnum hennar tíu til tólf sinnum í mánuði hið minnsta.
Nú heldur Andrea sjálf úti matarvef og miðlar áfram því sem hún hefur lært.
Sunnudagsmatur á þriðjudegi
Andrea er stjórnmálafræðingur að mennt og heimavinnandi. Eiginmaður hennar sér fyrir heimilinu og hún sinnir heimilishaldi, eldamennsku og skrifum. Hún kann vel að meta tímann sem hún hefur til þess.
„Mér finnst alveg dásamlegt að geta verið heima.“
Það gefur henni meðal annars svigrúm til að leggja meira í matinn á venjulegum virkum degi.
„Ég elda alveg mat sem flestir elda kannski bara á sunnudögum, bara á venjulegum þriðjudegi.“
Hún heldur mikið upp á kjötbollur með góðri rjómasósu og sultu, lambakjöt í karríi og ýmsa rétti sem minna á eldamennsku eldri kynslóða. Gúllas og annar matur sem fer vel með kartöflum á líka greiða leið að matarborðinu.
Þótt hún eigi sér trausta uppáhaldsrétti gefur hún sér rými tvisvar í viku til að prófa eitthvað nýtt. Hún hefur jafnframt í huga að lesendur hennar hafi ekki allir sama tíma til eldamennsku.
„Ég reyni að hafa þetta svona sparimat í bland við eitthvað sem fólk getur alveg eldað í daglegu amstri.“
Hlakkar mest til afganganna
Andrea dvaldi í Bandaríkjunum sem skiptinemi í stjórnmálafræði og tók þakkargjörðarhátíðina með sér heim. Þá leggur hún mikið í máltíðina, með sætkartöflustöppu, fyllingu og tilheyrandi meðlæti.
Á jólunum ræður hefðin hins vegar ríkjum. Hamborgarhryggurinn var jólamaturinn á hennar æskuheimili og hafði sömuleiðis verið jólamatur eiginmanns hennar og látinnar eiginkonu hans.
Þau voru því sammála um hvað ætti að vera á borðum. En það er önnur máltíð sem Andrea bíður ekki síður eftir.
„Mér finnst svo gott að borða hamborgarhrygginn kaldan daginn eftir.“
Þá fer hann á ristað franskbrauð með majónesi og sinnepi.
„Ég hlakka mest til þess.“
Þegar talið berst að því hvernig matur tengir fólk rifjar Andrea upp kennara í Boston. Sá hafði gjarnan kex handa nemendunum þegar þeir mættu í tíma. Ekki þurfti meira til að gera andrúmsloftið heimilislegt og láta fólk finna að það væri velkomið.
Sú minning hefur setið eftir hjá henni. Stundum nægir kexpakki á borði. Hjá Andreu urðu matarboðin hins vegar upphafið að heilum uppskriftavef, eftir hvatningu gestanna sem höfðu fengið að njóta eldamennskunnar.
„Mig hefði aldrei órað fyrir því að þetta myndi verða svona,“ segir Andrea Gunnarsdóttir að lokum.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



