„Svo er alltaf gott að fá sér einn til tvo jólabjóra“
Hjá mörgum byrjar jólagleðin á góðu jólahlaðborði þar sem jólakræsingar koma bragðlaukunum í hátíðarskap. Viktor Örn Andrésson matreiðslumaður, annar stofnandi veitingaþjónustunnar Lux Veitinga, Sælkerabúðarinnar og veitingastaðarins Brasa, er á fullu að undirbúa jólahlaðborð Brasa. Hann segir aðdraganda jólanna einn skemmtilegasta tíma ársins.
Viktor hóf feril sinn sem matreiðslunemi á Hótel Sögu, aðeins sautján ára gamall. Hann útskrifaðist úr matreiðslunámi frá Menntaskólanum í Kópavogi árið 2005. Að námi loknu lá leiðin til Frakklands þar sem hann starfaði á Michelin-veitingastaðnum Domaine de Clairefontaine. Reynsluna þaðan tók hann með sér heim og starfaði meðal annars um árabil sem yfirkokkur í Bláa lóninu. Síðar sneri hann aftur til Frakklands til að keppa í Bocuse d'Or í Lyon, þar sem hann vann til bronsverðlauna.
Í kjölfar keppninnar stofnaði Viktor veitingaþjónustuna Lux Veitingar ásamt Hinriki Erni Lárussyni. Starfsemin hefur vaxið og dafnað síðan og þeir félagar opnuðu veitingastaðinn Brasa í nóvember í fyrra í Turninum á Smáratorgi ásamt Sigurði Helgasyni þar sem undirbúningur jólanna er nú í fullum gangi.
„Við byrjum snemma að undirbúa jólahlaðborðið og ákveðum dagsetningu fyrir sumarið. Fljótlega eftir sumarfrí förum við svo að leggja lokahönd á matseðla og skipuleggja myndatökur ef nýir réttir bætast við.“
Hvað er það að þínu mati sem heillar fólk við jólahlaðborð og gerir þau ómissandi hluta af aðventunni hjá mörgum?
„Ég held að það sé fyrst og fremst stemningin, skreyttir salir í skammdeginu og mikið úrval af mat sem margir hafa beðið eftir í næstum heilt ár. Fólk kemur gjarnan saman í hópum og allir eru með í huga að gera sér glaðan dag.“
Aðspurður segir Viktor að bókanir hafi gengið vel og fyrstu fyrirspurnirnar hafi borist í lok sumars.
„Ég myndi segja að jólahlaðborðið sé 75-80% bókað en enn eru nokkrir dagar lausir fyrir bæði minni og stærri hópa. Núna eru bókanir í jólabrönsinn líka að taka við sér. Við bjóðum upp á hann á sunnudögum frá 13. nóvember og bæði laugardögum og sunnudögum í desember. Í fyrra bókaðist hann upp en þar getur stórfjölskyldan komið saman á góðu verði.
Í hádeginu á virkum dögum erum við svo með þriggja rétta jólaseðil með broti af því besta. Hann er hugsaður fyrir sex til tólf manna hópa, til dæmis fólk úr fyrirtækjum sem vill hittast eða taka fund.“
Jólahefðir með nýju ívafi
Það verður ýmislegt spennandi á boðstólum á jólahlaðborði Brasa. „Við ætlum að byggja áfram á því sem við vorum með í fyrra og flétta suðuramerískt og asískt bragð inn í ákveðna rétti.“
Þó verður sígildum jólaréttum áfram gert hátt undir höfði. Aðspurður segir Viktor suma þeirra ómissandi á jólahlaðborðinu. „Það eru þessir klassísku réttir, meðal annars hangikjöt og graflax.“
Hvernig blandið þið saman gömlu góðu íslensku jólahefðunum og nýjum hugmyndum í matargerðinni?
„Það er ekki hægt að breyta gömlu hefðunum mikið enda býst fólk við að fá ákveðna rétti á hefðbundinn hátt. Nýju hugmyndirnar snúast því helst um að bæta einhverju við sem heillar gestina okkar. Við byrjuðum til dæmis að bjóða upp á sushi með forréttunum á jólahlaðborðinu í fyrra og það var mjög vinsælt.“
Hangikjöt og graflax eru meðal jólakræsinganna á boðstólum, en einnig má finna suðuramerísk og asísk áhrif í völdum réttum. Ljósmynd/Aðsend
Þótt mikið sé að gera í eldhúsinu fyrir jólin, eigið þið einhverjar jólahefðir í starfsmannahópnum sem þið gefið ykkur tíma fyrir?
„Jólahelgarnar eru svolítil törn í veitingageiranum en við reynum að gera eitthvað saman fyrir eða eftir törnina, fara til dæmis á jólatónleika eða annað slíkt. Svo er alltaf gott að fá sér einn til tvo jólabjóra þegar tími gefst.“
Ef þú værir sjálfur gestur á jólahlaðborði Brasa, hvað færi fyrst á diskinn og fyrir hvað myndirðu passa að skilja eftir pláss?
„Graflaxinn fer oftast fyrst á diskinn hjá mér en ég reyni svo að skilja eftir pláss fyrir hangikjötið. Annars er ég mest í forréttunum þegar ég fer á jólahlaðborð, mér finnst þeir bestir.“
Hvaða bragð eða ilmur kemur þér strax í jólaskap?
„Ég myndi segja að hangikjötið komi mér helst í jólaskap, bæði það tvíreykta og ilmurinn þegar verið er að sjóða það fyrir jóladag.“
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/71/1687192.jpg)

