Sögufræg kapella: Pítsustaður fyrir þá sem fullnusta dóma
Mimmo Battaglia, erkibiskup í Napólí, segir þá sannfæringu liggja að baki verkefninu að manneskjan sé alltaf stærri en mistök hennar. Enginn dómur geti afmáð mannlega reisn eða réttinn til vonar. Anastasiia Chepinska/Unsplash
Sögufræg kapella í miðborg Napólí á að fá nýtt hlutverk sem pítsustaður og vettvangur starfsþjálfunar fyrir einstaklinga sem eru að fullnusta dóma eða hafa fullnustað dóma. Markmiðið er að skapa fólki raunveruleg atvinnutækifæri og færa um leið nýtt líf í byggingu sem hefur staðið yfirgefin árum saman.
Corriere della Sera greinir frá verkefninu, sem nefnist Brigata Caterina. Samstarfsyfirlýsing um það var undirrituð hinn 29. október af fulltrúum kirkjunnar, borgaryfirvalda og stofnana sem sinna fullnustu dóma.
Kapellan Santa Caterina de’ Celani stendur í hliðargötu við Via Mezzocannone í sögulegum miðbæ Napólí. Auk pítsustaðarins er fyrirhugað að þar verði kaffihús og aðstaða fyrir menningarviðburði. Staðurinn verður opinn almenningi.
Námskeiðið leiddi til starfs
Verkefnið byggir á reynslu af námskeiðum í pítsugerð sem hafa verið haldin í Poggioreale-fangelsinu. Þar hefur starfsþjálfun þegar skilað þátttakendum út á vinnumarkaðinn.
Einn þeirra er Gennaro, sem sagði við kynningu verkefnisins frá starfi sínu á Pizzeria del Popolo við Piazza Mercato í Napólí.
Antonio Mattone, verkefnisstjóri, segir því fremur um framhald fyrri vinnu að ræða en algerlega nýtt upphaf. Ekki hafi verið ákveðið hámark þátttakenda. Áherslan sé á að byggja upp tengslanet sem geti tekið við sem flestum og stutt þá áfram.
Flókið að breyta kirkju í pítsustað
Gaetano Manfredi, borgarstjóri Napólí, segir verkefnið sameina endurgerð borgarrýmis og áþreifanleg tækifæri til atvinnu og samfélagsþátttöku.
Hann bendir þó á að framkvæmdin sé flókin. Það sé ekki einfalt að afla leyfa til að koma pítsustað fyrir í kirkjubyggingu. Endurgerðin eigi að taka mið af sögulegu gildi kapellunnar.
Gianfranco Marcello, forstöðumaður Secondigliano-fangelsisins, leggur áherslu á að vinna geti styrkt reisn fólks, unnið gegn fordómum og dregið úr líkum á endurteknum brotum.
Enginn verði fastur í fortíðinni
Mimmo Battaglia, erkibiskup í Napólí, segir þá sannfæringu liggja að baki verkefninu að manneskjan sé alltaf stærri en mistök hennar. Enginn dómur geti afmáð mannlega reisn eða réttinn til vonar.
Borg sýni samfélagslegan styrk þegar hún gefi fólki færi á nýju upphafi og láti fortíð þess ekki standa varanlega í vegi fyrir framtíðinni.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/84/1688492.jpg)