Fundu Red Bull-dósir fyrir 13 milljónir
„Red Bull gefur þér kannski vængi, en ekki í þessu tilviki!“ sagði lögreglan eftir fundinn. Ekki liggur fyrir hvað þjófarnir hugðust gera við allar dósirnar. Erik Mclean/Unsplash
Lögregla hefur fundið rúmlega 23 þúsund stolnar Red Bull-dósir í vöruhúsi í Bridgeview í Illinois í Bandaríkjunum. Verðmæti þeirra er talið nema um 107 þúsund bandaríkjadölum, eða um 13 milljónum íslenskra króna.
Dósirnar eru aðeins hluti af stærri sendingu sem tilkynnt var um að hefði verið stolið í Joliet hinn 7. október. Heildarverðmæti þeirrar sendingar var um 300 þúsund bandaríkjadalir, jafnvirði um 36,6 milljóna íslenskra króna.
People greinir frá og vísar í upplýsingar frá lögreglunni í Cook-sýslu.
„Red Bull gefur þér kannski vængi, en ekki í þessu tilviki!“ sagði í færslu lögreglunnar á Facebook hinn 27. október, með vísan til þekkts auglýsingaslagorðs drykkjarins.
Ellefu vörubretti fundust
Við rannsókn málsins bárust lögreglu upplýsingar um að þýfið væri líklega að finna í vöruhúsi í Bridgeview.
Þegar rannsóknarlögreglumenn fóru á staðinn hinn 26. október fundu þeir ellefu vörubretti með rúmlega 23 þúsund Red Bull-dósum úr sendingunni. Þótt sá fundur sé umtalsverður er enn ófundinn meirihluti sendingarinnar miðað við verðmæti.
Enn er til rannsóknar hverjir stóðu að þjófnaðinum. Þegar People leitaði til lögreglunnar fengust þær upplýsingar að engu væri við tilkynninguna að bæta.
Þetta er ekki eina málið sem tengist þjófnaði á orkudrykknum í Bandaríkjunum í haust. People segir jafnframt frá því að þrír menn frá New York hafi verið ákærðir fyrr í mánuðinum eftir að lögregla fann 146 kassa af Red Bull og annan varning í tengslum við mál í Paramus í New Jersey.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗