Hvað gerist þegar matur er geislaður?

Eyjólfur greinir á milli tvenns konar notkunar geislunar í matvælaiðnaði. Annars vegar er hún notuð til að framkalla breytingar í matvælum, yfirleitt til að lengja geymsluþol þeirra. Hún er meðal annars notuð til sótthreinsunar, til varnar gegn meindýrum og til að seinka þroska ávaxta og grænmetis. Ljósmynd/Colourbox

Matvæli sem verða fyrir röntgengeislun verða ekki sjálf geislavirk og því stafar engin geislahætta af þeim eftir geislunina. Geislun getur hins vegar gert matvælin öruggari til neyslu með því að eyða örverum og lengja geymsluþol þeirra.

Þetta kemur fram í svari Eyjólfs Guðmundssonar á Vísindavef Háskóla Íslands við spurningunni hvort það hafi einhver áhrif á líkamann að borða geislaðan mat. Eyjólfur er læknisfræðilegur eðlisfræðingur hjá Geislavörnum ríkisins og aðjúnkt við Háskóla Íslands.

Í svarinu segir að ekki hafi verið sýnt fram á að geislun matvæla hafi neikvæð áhrif á næringargildi þeirra eða gæði umfram aðrar aðferðir sem notaðar eru til að sótthreinsa matvæli og lengja geymsluþol þeirra.

Notuð til sótthreinsunar og gæðaeftirlits

Eyjólfur greinir á milli tvenns konar notkunar geislunar í matvælaiðnaði. Annars vegar er hún notuð til að framkalla breytingar í matvælum, yfirleitt til að lengja geymsluþol þeirra. Hún er meðal annars notuð til sótthreinsunar, til varnar gegn meindýrum og til að seinka þroska ávaxta og grænmetis.

Hins vegar er geislun notuð við gæðaeftirlit, til dæmis til að leita að beinum í fiski á færibandi. Þá er röntgengeislun notuð til að mynda innri gerð matvælanna, með svipuðum hætti og þegar röntgenmyndir eru teknar af sjúklingum.

Geislunin sem notuð er við slíkt eftirlit er mun orkuminni en sú sem notuð er við sótthreinsun og geislastyrkurinn lægri.

Lítil áhrif á hitastig matvælanna

Við sótthreinsun matvæla er beitt nægilega háum geislaskammti til að valda varanlegum skemmdum á örverum í matnum, meðal annars gerlum og myglusveppum. Geislunin er einnig notuð til að vinna gegn meindýrum og skordýrum.

Hún veldur ekki verulegri hitun matvælanna. Samkvæmt svarinu sýna rannsóknir að áhrif geislunar á næringargildi matvæla séu minni en eða sambærileg við áhrif niðursuðu og gerilsneyðingar.

Í svarinu kemur jafnframt fram að á Íslandi sé aðeins heimilt að meðhöndla þurrkaðar kryddjurtir, krydd og grænmetiskrydd með orkuríkri geislun. Engin slík starfsemi sé þó hér á landi.

Hægt að sótthreinsa eftir pökkun

Geislun hefur lengi verið notuð til að sótthreinsa ýmsar neytenda- og lækningavörur, meðal annars sprautur og einnota hanska.

Einn af kostum aðferðarinnar er að hægt er að geisla vörur og matvæli eftir að þeim hefur verið pakkað, að því er fram kemur í svarinu.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅