„Ég þurfti bara aðeins að finna sjálfa mig aftur“

Lindu Benediktsdóttur líður ótrúlega vel í eldhúsinu og það sem kemur frá henni þar er töfrum líkast. Ljósmynd/Aðsend

Á bak við fallegar kökumyndir og girnilegar uppskriftir Lindu Benediktsdóttur liggur mikil vinna, ástríða og sköpunargleði. Hún hefur lært að njóta þess sem hún gerir og leyfa hugmyndafluginu að blómstra. Þegar hún lauk námi í lífefnafræði þurfti hún að finna gleðina aftur. Hana fann hún í eldhúsinu.

Linda, sem lesendur þekkja sem Lindu Ben, segir leiðina að uppskriftagerðinni hafa ráðist af röð tilviljana. Eldhúsið hafði þó lengi verið hennar staður. Hún ólst upp við heimagerðan mat hjá móður sinni og ömmu og var ung farin að baka sjálf.

Hún man eftir að hafa hringt í móður sína í vinnuna og beðið um leyfi til að baka.

„Já, þú mátt hræra í deiginu en ekki kveikja á ofninum fyrr en ég er komin heim,“ var svarið.

Linda var mjög ung að árum þegar hún bað um leyfi til þess að fá að baka heima hjá sér. Ljósmynd/Aðsend

Á unglingsárum vann hún á sambýli þar sem hún eldaði kvöldmatinn fyrir heimilisfólkið. Síðar valdi hún lífefnafræðina.

„Mér leið ekki vel í náminu, ég var með mikinn prófkvíða og þurfti bara aðeins að finna sjálfa mig aftur eftir námið,“ segir Linda. 

Það er margt sem hægt er að gera með smákökudeigin annað en að baka smákökur. Hér er deigið notað sem botn undir hnallþóru. Ljósmynd/Aðsend

Byrjaði án þess að leita eftir athygli

Linda var ólétt þegar hún var að ljúka náminu. Eftir fæðingu sonar síns fór hún að mynda kökurnar og matinn sem hún útbjó heima og birta myndirnar á Instagram.

„Þetta var áður en Instagram varð vinsælt hér á Íslandi. Þá voru það bara maðurinn minn og nokkrir aðrir sem sáu það sem ég var að setja inn,“ segir Linda. 

Linda vill sýna að hægt sé að bera fram góða köku þótt tíminn til baksturs sé naumur. Ljósmynd/Aðsend

Hún hafi ekki verið að leita að athygli heldur útrás fyrir sköpunargleðina. Myndirnar vöktu þó áhuga og hún var beðin um að deila uppskriftum sínum á öðrum síðum. Að lokum stofnaði hún eigin uppskriftasíðu.

Í dag sinnir hún sjálf uppskriftagerð, ljósmyndun, myndvinnslu og myndskeiðagerð. Á bak við hverja birtingu eru innkaup, tilraunir, lýsing, upptökur og frágangur.

„Og svo er náttúrulega heilmikið uppvask líka.“

Klessupiparkökurnar má mylja niður og bera fram sem botn í ostaköku í skál eins og gert er hér. Ljósmynd/Aðsend

Nýtur sín í vinnunni

Allt sem Linda gerir er einstaklega fallegt og minnir hún sig á reglulega að vera í flæðinu og að njóta sín í vinnunni. 

„Það þarf ekki allt að vera fullkomið,“ segir hún.

Klessupiparkökurnar sem keyptar eru út úr búð eru einstaklega mjúkar og góðar. Þær eru stökkar að utan og mjúkar að innan, líkt og þær séu heimabakaðar. Ljósmynd/Aðsend

„Ég framleiði fallegt efni sem ég vonast til að nýtist fólki. Ég legg hart að mér til að gera það fallegt,“ segir Linda og brosir. 

Markmiðið með uppskriftunum segir hún aðallega vera að auðvelda fólki eldamennskuna. Sama hugsun hafi legið að baki kökublöndunum og smákökudeiginu sem hún hefur þróað.

„Ég vil fara fljótu leiðina og að útkoman sé geggjuð,“ segir hún og bætir við: „Meginástæðan fyrir því að ég framleiði allt efnið mitt á heimasíðunni Lindu Ben er til að gefa fólki innblástur og góð ráð í eldamennskunni. Ég ætlast ekki til þess að allir eldi allt sem ég geri, fari eftir uppskriftum lið fyrir lið - þó að ég viti að sumir geri það. Síðan er frekar hugsuð til að veita innblástur og gleði og að gefa fólki nýjar hugmyndir sem það getur svo gert að sínum.“

Gleðin skín úr andliti Lindu í eldhúsinu með tilbúnu smákökurnar sem nú fást í Krónunni. Ljósmynd/Aðsend

Sonurinn gefur góð ráð

Heima nýtur Linda aðstoðar eiginmanns síns, Ragnars Einarssonar, sem tekur virkan þátt í heimilisstörfunum. Börnin eru líka liðtæk í eldhúsinu og þrettán ára sonurinn er orðinn einn hennar helsti ráðgjafi hennar þegar kemur að því að smakka réttina til. 

Hann segir henni hvað vanti í réttina en kemur líka með hugmyndir að myndatökum og myndskeiðum.

Hér er Klessupiparkökudeigið flatt út og sett sem fylling inn í mjúku kanilsnúðana. Uppskriftina finnur þú inni á Lindaben.is. Ljósmynd/Aðsend

Helgin verður annasöm hjá Lindu. Bakaðar smákökur hennar koma í verslanir þessa helgi og bætast við smákökudeigin sem þar eru fyrir. Þá er hrekkjavaka í dag, laugardag, og dóttir hennar á afmæli á morgun.

Afmælisbarnið hefur þegar ákveðið hvernig kakan á að vera: kanína bökuð í gömlu bökunarformi og skreytt með smjörkremi. En hvert er þemað?

„Hún elskar fjólubláan. Það er ekkert flóknara en það.“

Þeir sem hafa áhuga á að prófa klessupiparköku-kanilsnúðana hennar geta fundið uppskriftina að þeim hér. 

Girnilegir kanilsnúðar tilbúnir á borðið og fyrirhöfnin er ekki mikil.

Girnilegir kanilsnúðar tilbúnir á borðið og fyrirhöfnin er ekki mikil. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅