Hildur Rut töfrar fram hrekkjavökuveislu

Tortillur með graskersandlitum, djöflahorn á glasbrún og brómberjablanda í sprautum. Hildur Rut lætur hugmyndaflugið ráða för í undirbúningi hrekkjavökunnar. Samsett mynd/Aðsend

Köngulóavefir úr sykurpúðum, tortillur með graskersandlitum og kokteilar með djöflahornum. Hildur Rut Ingimarsdóttir hefur sett hrekkjavökuna í aðalhlutverk í eldhúsinu og deilt uppskriftum þar sem framreiðslan er stór hluti af skemmtuninni.

Á matseðlinum eru ostafylltar tortillur með mexíkóskum hrísgrjónum og súkkulaðikaka með mjúku karamellulagi. Drykkirnir fá líka sinn hátíðarbúning: brómberjablöndu er sprautað út í freyðivín og rauður chilipipar verður að djöflahornum á glasbrún.

Hér eru fjórar hugmyndir úr smiðju Hildar Rutar fyrir þá sem eru að leita að góðum hugmyndum fyrir morgundaginn. 

Tortillur með graskersandlitum

Tortillurnar eru fylltar með rjómaosti, krydduðum hrísgrjónum, tómötum og cheddarosti. Útskorin andlitin njóta sín þegar bráðinn osturinn gægist í gegnum augun og munninn. Ljósmynd/Aðsend

  • 8–12 tortillakökur
  • 150 g rjómaostur
  • 1 pakki sterk mexíkósk hrísgrjón, 250 g
  • 150–200 g rifinn cheddarostur
  • 8–10 smátómatar, smátt skornir
  • ½ tsk. laukduft
  • Salt og pipar eftir smekk
  • Chili eftir smekk, má sleppa
  • Ólífuolía til penslunar

Kryddaður sýrður rjómi

  • 1 dós sýrður rjómi, 180 g
  • 1–2 msk. smátt skorið jalapeño úr krukku, má sleppa
  • ½ tsk. laukduft
  • ½ tsk. hvítlauksduft
  • Salt og pipar eftir smekk

Meðlæti

  • Ferskt guacamole

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 180°C með blæstri.
  2. Skiptið tortillakökunum í tvo jafnstóra hópa. Skerið graskersandlit í kökurnar í öðrum hópnum með litlum, beittum hníf.
  3. Smyrjið rjómaosti á heilu tortillakökurnar. Dreifið tómötunum yfir og kryddið með salti, pipar, laukdufti og chili eftir smekk.
  4. Dreifið hrísgrjónunum yfir samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum og stráið cheddarostinum yfir.
  5. Leggið útskornu tortillakökurnar ofan á og þrýstið létt saman.
  6. Raðið á bökunarplötu klædda bökunarpappír og penslið með ólífuolíu.
  7. Bakið í um 8–12 mínútur, eða þar til fyllingin er heit, osturinn bráðnaður og tortillurnar léttgylltar.
  8. Hrærið hráefnunum í kryddaða sýrða rjómann saman og smakkið til.
  9. Berið fram með sýrða rjómanum og guacamole.

Súkkulaðikaka með karamellu og köngulóavef

Mjúkar karamellur fara á milli tveggja laga af súkkulaðideigi. Þegar kakan hefur kólnað er hún skreytt með teygjanlegum sykurpúðaþráðum og litlum nammiköngulóm. Ljósmynd/Aðsend

  • 200 g smjör
  • 3 dl sykur
  • 1 dl púðursykur
  • 4 msk. kakóduft
  • 1 tsk. lyftiduft
  • ½ tsk. salt
  • 1 msk. vanilludropar
  • 4 egg
  • 3½ dl hveiti
  • 100 g súkkulaðibitar

Karamellulag

  • Werther’s Original Soft Caramel 1 poki
  • 2 msk. rjómi

Skraut

  • 11 sykurpúðar
  • Litlar nammiköngulær, fást í Allt í köku

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 180°C. Klæðið um 20 × 30 cm bökunarform með bökunarpappír.
  2. Bræðið smjörið við vægan hita og hrærið sykri og púðursykri saman við.
  3. Takið af hitanum og bætið kakódufti, lyftidufti, salti og vanilludropum út í. Látið kólna lítillega ef blandan er mjög heit.
  4. Hrærið eggjunum saman við, einu í einu, og blandið vel á milli.
  5. Sigtið hveitið út í og hrærið þar til deigið er slétt. Blandið súkkulaðibitunum varlega saman við.
  6. Hellið helmingnum af deiginu í formið.
  7. Bræðið karamellurnar með rjómanum í potti við vægan hita þar til blandan er slétt og seig.
  8. Hellið karamellunni yfir deigið og dreifið varlega með skeið. Hellið afganginum af deiginu yfir og sléttið yfirborðið.
  9. Bakið í 25–30 mínútur, eða þar til kakan er bökuð að utan en enn mjúk í miðjunni. Látið kólna alveg.
  10. Bræðið sykurpúðana í hitaþolinni skál yfir vatnsbaði. Einnig má setja þá á bökunarpappír og hita í ofni við 200°C í tvær til þrjár mínútur. Fylgist vel með.
  11. Látið bráðna sykurpúðana kólna nægilega til að hægt sé að vinna með þá án þess að brenna sig. Notið tvær skeiðar til að teygja úr þeim þræði yfir kökuna þannig að köngulóavefur myndist.
  12. Skreytið með nammiköngulóm og skerið í bita.

French 75 í hrekkjavökubúningi

Hér sjá gestirnir sjálfir um lokahnykkinn. Ginblanda með brómberjasírópi og sítrónu er borin fram í sprautum og sprautað út í freyðivínið við borðið. Ljósmynd/Aðsend

Brómberjasíróp

  • 2 dl sykur
  • 2 dl vatn
  • 125 g fersk brómber 

Ginblanda

Magn fyrir einn drykk. Blandan fyllir um fjórar sprautur, eftir stærð þeirra.

  • 3 cl gin
  • 3 cl brómberjasíróp
  • 2 cl sítrónusafi

Til framreiðslu

  • Prosecco, eftir smekk
  • Sprautur án nálar sem henta til snertingar við matvæli

Aðferð

  1. Setjið sykur, vatn og brómber í pott og látið malla við vægan hita í um tíu mínútur.
  2. Sigtið blönduna og kælið sírópið alveg.
  3. Hristið gin, brómberjasíróp og sítrónusafa saman í kokteilhristara.
  4. Fyllið sprauturnar með blöndunni og geymið í kæli.
  5. Hellið freyðivíni í glas og berið sprauturnar fram með. Sprautið ginblöndunni út í vínið rétt áður en drykkjarins er neytt.

Kokteill með djöflahornum

Spicy Devil’s Sour sameinar gin, granateplasafa, límónu og Cointreau Spicy. Rauðir chilipiprar á glasbrúninni mynda horn og froðan gefur drykknum mjúka áferð. Ljósmynd/Aðsend

Í eitt glas

  • 2 cl gin
  • 3 cl Cointreau Spicy
  • 4 cl granateplasafi
  • 2 cl límónusafi
  • 1 cl sykursíróp
  • 2 cl gerilsneydd eggjahvíta eða aquafaba, vökvinn úr kjúklingabaunadós
  • Klakar
  • 2 rauðir chilipiprar til skrauts

Á glasbrúnina

  • 1 tsk. Tajín
  • 2 tsk. fínn sykur
  • 1 límónubátur

Sykursíróp

  • 1 dl sykur
  • 1 dl heitt vatn

Aðferð

  1. Leysið sykurinn upp í heita vatninu og kælið sírópið fyrir notkun.
  2. Blandið Tajín og fína sykrinum saman á litlum diski. Vætið hálfa glasbrúnina með límónubátnum og dýfið létt í blönduna.
  3. Setjið gin, Cointreau Spicy, granateplasafa, límónusafa, sykursíróp og eggjahvítu eða aquafaba í kokteilhristara.
  4. Hristið kröftuglega án klaka í um 15 sekúndur.
  5. Bætið klökum út í og hristið aftur í um 15 sekúndur, þar til drykkurinn er vel kaldur.
  6. Síið gegnum fínt sigti í glasið og leyfið froðunni að setjast. Ef óskað er eftir meiri froðu má fleyta því sem eftir er í hristaranum yfir drykkinn með skeið.
  7. Skerið litla rauf nálægt breiðari enda hvors chilipipars. Festið þá á sitt hvora hlið glasbrúnarinnar með oddana upp.
  8. Smakkið drykkinn til, enda getur granateplasafi verið misjafnlega sætur.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅