Litlar Schwarzwaldstertur með vanillurjóma
Litlar Schwarzwaldstertur Hönnu Þóru G. Thordarson með heslihnetubotnum, vanillurjóma og þunnum súkkulaðiflögum. Ljósmynd/Aðsend
Stökkir heslihnetubotnar, mjúkur vanillurjómi og þunnar súkkulaðiflögur fara saman í þessum litlu Schwarzwaldstertum Hönnu Þóru G. Thordarson. Hver kaka er sett saman úr þremur botnum og fær að lokum létt kakóslör yfir sig.
Uppskriftin á sér sögu í fjölskyldu Hönnu Þóru. Móðir hennar tók hana með sér frá Svíþjóð forðum daga og í huga Hönnu Þóru er tertan fallegur súkkulaðiskógur. Hér hefur hún minnkað hana þannig að hver kaka sómir sér ein og sér á eftirréttardisknum.
Botnana má baka með nokkurra daga fyrirvara og setja kökurnar saman daginn áður en þær eru bornar fram. Þá mýkjast þeir undan rjómanum, sérstaklega ef örlitlu sérríi er dreift yfir þá. Súkkulaðiskrautið og rjómatoppurinn bíða hins vegar fram á daginn sem kökurnar fara á borðið.
Litlar Schwarzwaldstertur
Sex kökur, 6–7 cm í þvermál, hver með þremur botnum.
Hnetubotnar
- 4 eggjahvítur
- 2 dl sykur
- ½ tsk. saltflögur
- 3 dl heslihnetur án hýðis
- Smjör eða matarolía til að smyrja bökunarpappírinn
Fylling
- 3–4 dl rjómi
- 2 tsk. vanillusykur
- 2–3 msk. sérrí, má sleppa
Skraut
- 30–35 g suðusúkkulaði
- 1 msk. kakó
Aðferð
Hnetubotnar
- Ef heslihneturnar eru með hýði, ristið þær á pönnu eða í 200°C heitum ofni í um fimm mínútur. Látið þær kólna lítillega og nuddið hýðinu af með hreinum klút eða milli lófanna. Séu hneturnar þegar afhýddar má sleppa þessu skrefi.
- Malið hneturnar fínt í matvinnsluvél eða blandara. Einnig má rífa þær á fínu rifjárni.
- Hitið ofninn í 175°C með blæstri. Teiknið samtals 18 hringi, 6–7 cm í þvermál, á tvær arkir af bökunarpappír. Leggið pappírinn á bökunarplötur og látið teiknuðu hliðina snúa niður.
- Stífþeytið eggjahvíturnar með helmingnum af sykrinum. Bætið afganginum af sykrinum og saltinu saman við og þeytið örlítið áfram. Blandið möluðu heslihnetunum varlega saman við með sleikju.
- Smyrjið bökunarpappírinn lauslega með köldu smjöri eða strjúkið yfir hann með eldhúspappír vættum í matarolíu.
- Setjið deigið í sprautupoka með um 1 cm breiðum stút. Sprautið því innan hringanna, frá miðju og út að brún.
- Bakið í um 12 mínútur. Látið botnana kólna áður en kökurnar eru settar saman.
Súkkulaðiskraut
- Bræðið suðusúkkulaðið við vægan hita í vatnsbaði. Takið skálina af hitanum rétt áður en allt súkkulaðið er bráðnað og hrærið með sleikju þar til það er slétt.
- Smyrjið súkkulaðinu í þunnt lag á bökunarpappír.
- Setjið í kæli eða frysti þar til súkkulaðið hefur harðnað. Brjótið það síðan í óreglulegar flögur.
Fylling og samsetning
- Þeytið rjómann með vanillusykrinum og setjið í sprautupoka.
- Ef sérrí er notað, dreifið því með skeið yfir þá botna sem eiga að vera neðst og í miðjunni. Efstu botnarnir eru hafðir án sérrís.
- Sprautið rjóma á neðsta botninn, leggið annan botn yfir og sprautið rjóma á hann. Leggið þriðja botninn efst.
- Sprautið litlum rjómatoppi á hverja köku og stingið súkkulaðiflögum í hann.
- Sigtið kakó yfir rétt áður en kökurnar eru bornar fram.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/85/1688585.jpg)