Fara heim með fullt fang af góðgæti

Ásta Búadóttir, matreiðslumaður og grunnskólakennari, heldur vinsæl námskeið.

Ásta Búadóttir, matreiðslumaður og grunnskólakennari, heldur vinsæl námskeið. Samsett mynd

Gleði og samvera eru í fyrirrúmi á jólanámskeiðum Farskólans, sem eru orðin fastur liður í
jólaundirbúningi margra.

Jólastemningin hefur um árabil verið í hávegum höfð á námskeiðum Farskólans – miðstöðvar símenntunar á Norðurlandi vestra. Þar hefur Ásta Búadóttir, matreiðslumaður og grunnskólakennari, kennt vinsæl jólanámskeið þar sem þátttakendur fást meðal annars við smákökubakstur og kertagerð. Margir koma aftur ár eftir ár og fyrir suma eru námskeiðin orðin fastur liður í jólaundirbúningnum.

Farskólinn hefur í 34 ár boðið upp á fjölbreytt nám fyrir fullorðna, meðal annars almenn og starfstengd námskeið, íslenskunám og náms- og starfsráðgjöf. Skólinn býður einnig upp á námskeið fyrir fólk með fötlun í samstarfi við Fjölmennt og hafa jólanámskeið Ástu notið mikilla vinsælda meðal fólks með ólíkar fatlanir.

Hvernig kviknaði hugmyndin að námskeiði í smákökubakstri í aðdraganda jólanna?

„Hugmyndin á sér nokkuð langan aðdraganda. Ég hef kennt lengi hjá Farskólanum og þar erum við alltaf að leita að nýjum og skemmtilegum hugmyndum. Smákökubaksturinn kom fyrst til tals í spjalli mínu við Bryndísi Þráinsdóttur, sem var þá framkvæmdastjóri skólans. Námskeiðið sló strax í gegn og hefur haldið vinsældum sínum síðan. Starfsemin hefur undið upp á sig og nú er smákökubaksturinn hluti af jólafernu hjá Farskólanum. Við bjóðum líka upp á kertagerð, kökuskreytingar og laufabrauðsbakstur. Saman skapa þessi námskeið sanna jólastemningu.“

Að sögn Ástu hlakka nemendur mikið til námskeiðanna á hverju ári. Sumir séu jafnvel farnir að telja niður um leið og nýtt ár gengur í garð.

„Áhuginn hefur alltaf verið mikill og skráningin er góð ár eftir ár. Þetta er nefnilega svo miklu meira en bara bakstur og handavinna; þetta er dásamleg samverustund. Það skapast alltaf frábær andi í hópnum, við setjum jólatónlist á fóninn og gerum virkilega góða stund úr þessu.“

„Allir afslappaðir og glaðir“

Námskeiðið Jólabakstur verður haldið 26. nóvember og yfirleitt taka átta til tíu manns þátt í því hverju sinni. Námskeiðin fara oftast fram í skólaeldhúsum grunnskólanna á svæðinu, en Ásta og aðrir leiðbeinendur hafa einnig farið í sambýli á Hvammstanga, Blönduósi og Sauðárkróki til að kenna. Hvar sem námskeiðið er haldið leggur Ásta áherslu á að laga það að þátttakendunum og óskum þeirra.

„Hópurinn er fjölbreyttur og margir koma með aðstoðarfólk, eftir því hvað hentar hverjum og einum. Fyrirkomulagið er frjálslegt og ég spyr þátttakendur gjarnan hvaða smákökur séu í uppáhaldi hjá þeim. Þau fá að baka það sem þau langar til. Ég er alltaf með uppskriftir og hugmyndir í handraðanum og hef bakað flestar þessar kökur sjálf í gegnum tíðina. Þess vegna getum við yfirleitt orðið við óskum þeirra. Að námskeiði loknu fara þau svo heim með fangið fullt af gómsætum kökum sem þau geta notið sjálf eða deilt með vinum og fjölskyldu.“

Hvað er það við jólanámskeiðin sem stendur helst upp úr hjá þér?

„Ég get varla lýst því hvað þau hafa gefið mér. Það sem stendur alltaf upp úr er gleðin og það er dásamlegt að sjá hvað þátttakendur hafa mikla ánægju af þessu. Þau hlakka til og bíða jafnvel eftir mér, sem mér þykir mjög vænt um. Andrúmsloftið er líka frábrugðið því sem ég þekki úr almennri kennslu. Hér eru allir afslappaðir, glaðir og óhræddir við að spjalla saman. Ég hef líka séð hvernig námskeiðin tengja þátttakendur. Sumir halda áfram að hittast eftir að þeim lýkur og þannig verða til tengsl sem ná út fyrir eldhúsið. Margir koma aftur ár eftir ár og baksturinn er orðinn ómissandi hluti af jólaundirbúningnum hjá þeim.“

Áttu þér uppáhaldssmáköku?

„Kókoskransar eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég hef bakað þá síðan ég var 18 ára og var í húsmæðraskóla. Það er þó erfitt að gera upp á milli smákaka og piparkökur eru til dæmis alltaf vinsælar,“ segir Ásta.

Svissnesku smákökurnar Spitzbuben eru lagðar saman með sultu á milli og flórsykri sáldrað yfir. Ásta prófaði uppskriftina þegar ungan þátttakanda langaði að baka kökurnar sem amma hans hafði bakað. Ljósmynd/Aðsend

Hún rifjar einnig upp bökunarstund þar sem ósk eins þátttakanda varð til þess að hún prófaði nýja uppskrift.

„Fyrir um þremur árum kom á námskeið hjá mér ungur drengur sem átti ættir að rekja til Sviss. Hann langaði mikið að baka svissneskar smákökur sem amma hans hafði alltaf bakað. Við fundum uppskriftina og bökuðum kökurnar saman. Hann var svo ánægður með kökurnar, sem heita Spitzbuben. Ég ætla að deila uppskriftinni að þeim með lesendum. Vonandi fá einhverjir löngun til að prófa þær fyrir jólin.“ 

Spitzbuben – svissneskar smákökur með sultu á milli

Uppskriftin gerir u.þ.b. 50 samsettar kökur.

  • 250 g mjúkt smjör
  • 125 g flórsykur
  • 2 tsk vanillusykur
  • örlítið salt
  • 1 eggjahvíta
  • 350 g hveiti
  • um 200 g rifsberjahlaup eða slétt sulta
  • flórsykur til að strá yfir

Aðferð: 

  1. Hrærið smjör, flórsykur, vanillusykur og salt þar til blandan verður ljós.
  2. Sláið eggjahvítuna létt sundur og hrærið saman við. Bætið hveitinu við og takið deigið saman.
  3. Fletjið deigið aðeins út, hyljið og kælið í að minnsta kosti tvær klukkustundir.
  4. Hitið ofninn í 200°C. Fletjið deigið út í um 2 mm þykkt, gjarnan milli tveggja bökunarpappírsarka.
  5. Stingið út hringi, um 4 cm í þvermál. Gerið lítið gat eða stjörnu í miðjuna á helmingnum.
  6. Raðið á bökunarpappír og kælið í 15 mínútur.
  7. Bakið í miðjum ofni í um sex mínútur. Látið kökurnar kólna.
  8. Vermið sultuna örlítið og smyrjið á heilu kökurnar. Sáldrið flórsykri yfir kökurnar með gatinu og leggið þær ofan á.

Kökurnar geymast í vel lokuðu kökuboxi í um tvær vikur.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅