Lilja opnar í Kvosinni: „Það verður erfitt að fá borð“
Natalia Lachova og Kristófer Hamilton Lord opna veitingastaðinn Lilju í Kvosinni miðvikudaginn 4. nóvember. Ljósmynd/Gísli Matt
Matreiðslumaðurinn Kristófer Hamilton Lord og konditorinn Natalia Lachova opna veitingastaðinn Lilju að Templarasundi 3 í Kvosinni miðvikudaginn 4. nóvember. Gísli Matthías Auðunsson, matreiðslumaður og einn eigenda Næs í Vestmannaeyjum og Skál í Reykjavík, hefur þegar snætt á staðnum og fer fögrum orðum um matinn og fólkið á bak við hann.
Í færslu á Facebook segir Gísli Matt opnunina vera eitt það mest spennandi sem gerst hafi í íslenskum veitingahúsarekstri í langan tíma. Bæði Kristófer og Natalia störfuðu hjá honum á Slippnum fyrir nokkrum árum, Kristófer í tvö sumur og Lachova í eitt.
„Ég held að ég hafi aldrei haft starfsmann sem hjálpaði mér jafn mikið og Kristófer gerði þegar hann kom til okkar,“ skrifar Gísli.
Starfaði á Kadeau
Hann segir Kristófer hafa hvatt starfsfólkið til að kafa dýpra í hugmyndafræði Slippsins og taka meiri áhættu.
„Hann fékk okkur til að kafa enn dýpra í okkar eigin hugmyndafræði, hvatti okkur til að taka meiri áhættu og kynnti til sögunnar aðferðir og tækni sem urðu með tímanum hluti af okkar eigin sérkennum. Fyrir það verð ég honum ævinlega þakklátur.“
Kristófer hefur meðal annars starfað á Manresa í Kaliforníu, Amass í Kaupmannahöfn, þar sem hann vann sig upp í stöðu yfirkokks, og Kadeau á Borgundarhólmi. Þá tóku hann og Natalia þátt í uppbyggingu veitingastaðarins Air í Singapúr. Að sögn Gísla hefur þau lengi dreymt um að opna eigin stað.
„Gefandi að upplifa þetta allt saman“
Gísli var meðal gesta í prufukvöldverði á Lilju fyrir opnunina. Hann segir hugað hafa verið að hverju smáatriði, allt frá hönnuninni til íslenska hráefnisins sem valið hafi verið af mikilli natni.
„Það sem stóð þó mest upp úr var hversu skýrt maturinn endurspeglaði persónuleika Kristófers og hans eigin sögu sem kokks. Það var eitthvað ótrúlega gefandi við að upplifa þetta allt saman.“
Í matsal Lilju verður boðið upp á um átta rétta smakkseðil sem tekur breytingum eftir árstíðum og framboði hráefna frá framleiðendum í nágrenninu. Seðillinn kostar 19.900 krónur, vínpörun 11.900 krónur og óáfeng drykkjapörun 8.800 krónur. Við barborð verða átta sæti fyrir gesti án bókunar, þar sem hægt verður að panta einstaka rétti og drykki.
Gísli lýkur færslunni með því að hvetja fólk til að tryggja sér borð.
„Ég mæli með því að bóka borð á Lilju á meðan það er enn hægt. Ég hef sterka tilfinningu fyrir því að það verði ansi erfitt að fá þar borð áður en langt um líður.“
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/87/1688757.jpg)