Piparkökuskyrkaka með saltaðri karamellusósu
Piparkökurnar eru komnar í búðir og þá er tilvalið að nýta þær í eitthvað meira en að maula með kaffinu. Þær gefa kökubotnum gott kryddbragð og fara sérlega vel með mjúkri skyrfyllingu og saltaðri karamellu. Við getum því byrjað að æfa okkur fyrir allt það skemmtilega sem fram undan er, eitt eftirréttafat í einu.
Þessi piparkökuskyrkaka kemur úr smiðju Evu Laufeyjar Kjaran. Hún þarf ekki að fara í ofn og má gjarnan útbúa daginn áður en hún er borin fram. Þá er aðeins eftir að dreifa karamellusósunni yfir og leggja á borð.
„Ég er svolítið að vinna með piparkökur og saltaða karamellusósu þessa dagana, einfaldlega vegna þess að mér þykir þessi tvenna svo óskaplega góð,“ skrifar Eva Laufey með uppskriftinni.
Piparkökuskyrkaka með saltaðri karamellusósu
„Ég er svolítið að vinna með piparkökur og saltaða karamellusósu þessa dagana,“ skrifar Eva Laufey með uppskriftinni. Ljósmynd/Aðsend
Piparkökubotn
- 400 g piparkökur
- 100 g smjör, brætt
Aðferð
- Bræðið smjörið í potti.
- Myljið piparkökurnar fínt í matvinnsluvél. Einnig má setja þær í poka og mylja með kökukefli.
- Blandið brædda smjörinu vel saman við piparkökumylsnuna.
- Setjið blönduna í kökumót og þrýstið henni jafnt niður á botninn og upp með köntunum.
- Kælið á meðan fyllingin er útbúin.
Skyrfylling
- 500 g vanilluskyr
- 400 ml rjómi
- 2 msk. flórsykur
- 1 vanillustöng
Aðferð
- Þeytið rjómann og blandið skyrinu varlega saman við.
- Sigtið flórsykurinn út í.
- Kljúfið vanillustöngina eftir endilöngu og skafið fræin úr henni. Blandið þeim varlega saman við fyllinguna.
- Dreifið fyllingunni yfir piparkökubotninn og sléttið yfirborðið.
- Kælið í að minnsta kosti þrjár til fjórar klukkustundir, gjarnan yfir nótt.
- Dreifið kaldri karamellusósunni yfir rétt áður en kakan er borin fram.
Söltuð karamellusósa
- 150 g sykur
- 4 msk. smjör
- 1 dl rjómi
- Sjávarsalt á hnífsoddi
Aðferð
- Bræðið sykurinn á pönnu við vægan hita. Farið hægt af stað og gætið þess að hann brenni ekki.
- Takið pönnuna af hellunni þegar sykurinn er bráðinn. Bætið smjörinu saman við í nokkrum skömmtum og hrærið varlega.
- Hellið rjómanum varlega út í og hrærið þar til sósan er samfelld. Gætið að ykkur því að blandan getur freytt og skvett.
- Bætið sjávarsaltinu saman við.
- Látið sósuna kólna alveg áður en henni er hellt yfir skyrkökuna.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
