Sakfelldir fyrir sprenginguna í Múlagöngum

Frá Múlagöngum. Sprengingin varð aðfaranótt 18. mars 2021.

Frá Múlagöngum. Sprengingin varð aðfaranótt 18. mars 2021. mbl.is/Sigurður Ægisson

Landsréttur staðfesti í dag sakfellingu tveggja manna fyrir stórfelld eignaspjöll í Múlagöngum. Þeir stóðu saman að því að sprengja heimatilbúna sprengju í göngunum í mars 2021.

Við sprenginguna fór rafmagn af göngunum og miklar skemmdir urðu á tæknirými við spennistöð.

Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi annan manninn í sex mánaða fangelsi og hinn í fimm mánaða fangelsi. Refsing beggja er skilorðsbundin til tveggja ára.

Mennirnir kröfðust sýknu fyrir Landsrétti og ákæruvaldið krafðist þyngri refsingar. Landsréttur staðfesti refsingarnar en breytti ákvörðun héraðsdóms um sakarkostnað.

Rafmagnslaust í átta til níu klukkustundir

Sprengingin varð aðfaranótt 18. mars 2021. Við hana lyftist þungur gámur sem hýsti tæknibúnað ganganna. Gólf gámsins skemmdist og búnaður inni í honum færðist úr stað. Samkvæmt frumskýrslu lögreglu komst rafmagn aftur á eftir átta til níu klukkustundir.

Maðurinn sem hlaut fimm mánaða fangelsisdóm viðurkenndi þátt sinn í sprengingunni við skýrslutöku hjá lögreglu viku síðar. Fyrir héraðsdómi dró hann úr aðkomu sinni og sagðist muna lítið eftir atvikum.

Landsréttur taldi framburð hans hjá lögreglu að miklu leyti samræmast frásögnum tveggja annarra sem voru í göngunum og létust áður en ákæra var gefin út.

Landsréttur taldi sannað að mennirnir hefðu báðir tekið þátt í að útbúa sprengjuna og sprengja hana í göngunum. Þeim hefði ekki getað dulist að sprengingin gæti valdið töluverðum eignaspjöllum.

Lagði 1.567.312 krónur til grundvallar

Vegagerðin tók saman kostnað vegna tjónsins og taldi hann nema rúmlega 3,1 milljón króna. Héraðsdómur taldi ljóst að tjónið hefði verið mikið en að gögn málsins nægðu ekki til að staðreyna nákvæma fjárhæð þess.

Landsréttur lagði þrjá kostnaðarliði til grundvallar, samtals 1.567.312 krónur. Þeir vörðuðu tölvubúnað, rafverktakavinnu og viðgerð á gámnum. Við mat á öðrum liðum skýrði rétturinn vafann mönnunum í hag. Stór hluti kostnaðarins í yfirliti Vegagerðarinnar virtist byggjast á áætlaðri vinnu starfsmanna stofnunarinnar.

Að mati Landsréttar sýndu fjárhæðin og ljósmyndir af vettvangi að mikil eignaspjöll hefðu orðið. Rétturinn taldi brotið jafnframt sérstaklega stórfellt vegna þess hve vítaverð aðferðin var og vegna þess að sprengingin beindist að mikilvægu opinberu samgöngumannvirki.

Greiða kostnað við matsgerðina

Við ákvörðun refsingar tók héraðsdómur tillit til þess að rannsókn málsins og útgáfa ákæru drógust úr hófi og að tafir við meðferð málsins fyrir dómi yrðu mönnunum ekki kenndar. Landsréttur vísaði til þeirra forsendna þegar hann staðfesti refsingarnar.

Landsréttur gerði mönnunum að greiða óskipt 1.165.600 krónur vegna matsgerðar sem héraðsdómur hafði látið ríkissjóð greiða. Þeir greiða einnig allan áfrýjunarkostnað málsins.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab