Meta sætir rannsókn vegna nýrra skilmála
Meta, móðurfélag Facebook og Instagram, hafði ætlað að láta skilmálana taka gildi 20. nóvember en hefur frestað þeim áformum. AFP/Fabrice Coffrini
Breska samkeppniseftirlitið hóf í dag rannsókn á því hvort Meta hyggist þröngva ósanngjörnum skilmálum upp á fjölmiðla. Skilmálarnir myndu heimila fyrirtækinu að nota efni þeirra í eigin vörur, meðal annars gervigreindarlausnir, án þess að útgefendur hefðu nægilegt val um það.
Í tilkynningu frá eftirlitinu, CMA, segir að rannsakað verði hvort nýju skilmálarnir skaði útgefendur fréttamiðla og önnur fyrirtæki sem framleiða efni með ósanngjörnum hætti.
Meta, móðurfélag Facebook og Instagram, hafði ætlað að láta skilmálana taka gildi 20. nóvember en hefur frestað þeim áformum. Eftirlitið segir að skilmálarnir gætu falið í sér misnotkun á markaðsráðandi stöðu.
Rannsakað verður hvort Meta misnoti slíka stöðu með því að þröngva ósanngjörnum skilmálum upp á útgefendur og auglýsendur.
Gæti nýtt fréttaefni í gervigreindarlausnir
Nýju skilmálarnir gætu heimilað Meta að nálgast og nota efni af vefsíðum fréttamiðla til að þróa og bjóða eigin vörur, þar á meðal gervigreindarlausnir.
Talsmaður Meta segir fyrirtækið þegar hafa skuldbundið sig til að breyta ekki skilmálum sínum án samráðs við útgefendur og aðra hagsmunaaðila.
„Við fögnum tækifærinu til að útskýra nálgun okkar fyrir CMA,“ segir talsmaðurinn.
Þúsundir breskra fyrirtækja reiða sig á Meta til að ná til viðskiptavina og almennings. Sé nýjum skilmálum þröngvað upp á þau með ósanngjörnum hætti gæti það brotið gegn samkeppnislögum.
„Útgefendur fréttamiðla og önnur fyrirtæki hafa lýst áhyggjum við okkur og við bregðumst skjótt við til að rannsaka hvort fyrirhugaðar breytingar Meta kunni að brjóta gegn samkeppnislögum,“ segir Sarah Cardell, forstjóri CMA.
Bann lagt á í Noregi til bráðabirgða
Norskur dómstóll bannaði Meta í vikunni að framfylgja nýju notendaskilmálunum til bráðabirgða.
Tíu fjölmiðlar höfðu leitað til dómstólsins og haldið því fram að skilmálarnir myndu ógna réttindum þeirra yfir eigin efni.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗