Þorsteinn Már stýrir framkvæmdinni
Þorsteinn Már er framkvæmdastjóri byggingar Eldisgarðs Samherja. Hann kom að verkefninu í maí síðastliðnum. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Tuttugasta apríl næstkomandi er ráðgert að ný landeldisstöð Samherja á Reykjanesi taki við fyrstu seiðunum til áframeldis.
Ári síðar verður svo fyrsta slátrun og þar með fer Eldisgarður Samherja að skila tekjum, gangi áætlanir eftir.
Unnið er hörðum höndum að uppbyggingu fyrsta áfanga eldisstöðvarinnar, líkt og fram kom í umfjöllun Morgunblaðsins um Eldisgarð Samherja sl. fimmtudag.
Stefnt að 36 þúsund tonna framleiðslu
Þegar starfsemi hefst er fyrsta áfanga af þremur í byggingu Eldisgarðsins lokið og 22 eldistankar, yfirbyggðir í 400 metra langri byggingu, komnir í notkun.
Í næstu tveimur áföngum bætast svo við 44 eldistankar í viðbót og árleg framleiðslugeta verður komin í 36 þúsund tonn.
Þorsteinn Már Baldvinsson er framkvæmdastjóri byggingar Eldisgarðsins.
Í umfjöllun blaðsins kemur fram að hann hafi komið að verkefninu í maí síðastliðnum, að beiðni stjórnar fyrirtækisins.
Þorsteinn Már lét af störfum sem forstjóri Samherja í lok júní á síðasta ári og hafði þá gegnt því starfi í 42 ár, eða frá stofnun fyrirtækisins 1983.
Í millitíðinni segist hann hafa sinnt ákveðnum öðrum verkefnum, svo sem stjórnarformennsku hjá Síldarvinnslunni.
Tekur ábyrgðina alvarlega
„En svo æxlaðist það þannig að menn fengu mig að þessu til að vera ábyrgur fyrir þessu verkefni. Þetta er kannski ekki alveg það sem ég hafði reiknað með, en úr því maður hefur ágætt þrek enn þá er ágætt að nýta það,“ gantast hann.
Fleki hífður í vegg næstsíðasta eldistank fyrsta áfanga Eldisgarðs Samherja. Í forgrunni er hluti framkvæmdastjórnar verkefnisins, Guðmundur Haukur Sigurðarson, Anna Kristín Leósdóttir, Þorsteinn Már Baldvinsson og Hjörvar Kristjánsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Um leið kveðst Þorsteinn Már taka ábyrgð sína á verkefninu mjög alvarlega.
Staða hans nú sé önnur en þegar hann hafi verið að vinna fyrir sjálfan sig og aðra hluthafa Samherja, því í þessu verkefni séu lífeyrissjóðir og aðrir einstaklingsfjárfestar með um 35 prósenta hlut.
„Og með aðkomu lífeyrissjóðanna þá er maður kominn í vinnu fyrir um 80 prósent Íslendinga og það tel ég vera ábyrgðarhluta,“ áréttar Þorsteinn Már.
Kostnaður við fyrsta áfanga er áætlaður 40 milljarðar króna og er hann fjármagnaður að fullu með hlutafjárútboði og lánum.
Heildarkostnaður við alla áfangana þrjá nemur 550 milljónum evra, eða nærri 80 milljörðum króna á gengi dagsins.
Verið er að steypa milligólf í byggingunni sem hýsir tankana í fyrsta áfanga Eldisgarðs Samherja á Reykjanesi. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Alla umfjöllunina um Eldisgarð Samherja má lesa HÉR.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

