Gervigreindarrisar lofa að virða bann útgefenda
Nú þurfa útgefendur að skrá sérstök bannfyrirmæli fyrir hvern vefþjark sem fer um netið til að safna gögnum. Fyrirhuguð lausn gerir þeim kleift að setja inn ein stöðluð fyrirmæli sem gervigreindarfyrirtæki sem taka upp staðalinn munu þekkja og virða. Ljósmynd/Colourbox
OpenAI, Google, Microsoft og Anthropic hétu því í gær að veita fjölmiðlum og öðrum vefútgefendum sameiginlega leið til að banna söfnun efnis þeirra til þjálfunar gervigreindarlíkana. Fyrirtækin hafa sætt vaxandi gagnrýni og málshöfðunum af hálfu fréttaútgefenda.
Nú þurfa útgefendur að skrá sérstök bannfyrirmæli fyrir hvern vefþjark sem fer um netið til að safna gögnum. Fyrirhuguð lausn gerir þeim kleift að setja inn ein stöðluð fyrirmæli sem gervigreindarfyrirtæki sem taka upp staðalinn munu þekkja og virða.
Nokkrir mánuðir munu þó líða þar til lausnin verður að fullu komin til framkvæmda.
Innleiðing hafin hjá Anthropic
Microsoft hyggst hefja innleiðinguna 1. febrúar 2027 og Google einhvern tíma á næsta ári. OpenAI, sem þróar ChatGPT, segist ætla að taka lausnina í notkun „á næstu mánuðum“. Anthropic, sem þróar Claude, segir innleiðingu þegar hafna.
Tilkynningin kemur á sama tíma og útgefendur standa frammi fyrir mikilli fjölgun vefþjarka sem safna greinum þeirra til að nota við þjálfun gervigreindarlíkana. Sumir útgefendur, þar á meðal dagblaðið The New York Times, hafa leitað til dómstóla.
Í desember 2023 höfðaði blaðið mál gegn OpenAI og Microsoft og sakaði fyrirtækin um að hafa notað milljónir greina þess til að þjálfa ChatGPT, án leyfis eða greiðslu. Fyrirtækin tvö bera fyrir sig undanþágu í bandarískum höfundalögum sem nefnist „fair use“.
Netinnviðafyrirtækið Cloudflare hefur frá því í júlí 2025 sjálfgefið lokað fyrir aðgang gervigreindarþjarka að vefjum nýrra viðskiptavina. Þá gerir staðall sem nefnist Really Simple Licensing útgefendum þegar kleift að innheimta gjald af þjörkum sem heimsækja vefsíður þeirra.
Söfnun áfram heimil þar til stillingu er breytt
Nýja stillingin tekur aðeins til þjálfunar gervigreindarlíkana í framtíðinni. Hún kemur ekki í veg fyrir að vefþjarkar fari um vefina í öðrum tilgangi.
Söfnun efnis verður áfram heimil að sjálfgefnu þar til útgefandi breytir stillingunni, að því er Microsoft segir í bloggfærslu.
Microsoft og Google segja í aðskildum bloggfærslum að hafni útgefendur því að efni þeirra verði notað við þjálfun gervigreindar geti það dregið úr líkum á að efnið birtist í gervigreindarforritum og annarri þjónustu sem byggist á gervigreind.
Meta styður framtakið
Meta lýsti einnig stuðningi við framtakið.
„Við teljum mikilvægt skref að koma á sameiginlegu merki sem miðlar slíkum óskum til margra þjónustuveitenda í einu. Við hlökkum til að vinna með öðrum gervigreindarfyrirtækjum að stöðlunum og innleiðingu þeirra í greininni allri,“ skrifaði Andy Stone, talsmaður Meta, á X.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗