Samstöðin rak fjölmiðlastjörnu á meðan aðrir létu peningana vinna
Vikan var viðburðarík á Smartlandi. Marta María Winkel, fréttastjóri dægurmála mbl.is og höfundur Smartlands Mörtu Maríu, fór yfir fréttir vikunnar og tók saman allt það helsta.
Fjölmiðlastjarna fékk uppsagnarbréf
Fjölmiðlastjörnunni Maríu Lilju Ingveldar-Þrastardóttur Kemp hefur verið sagt upp á Samstöðinni. Þessu greinir hún frá á félagsmiðlum. Hún ætlar þó ekki að láta þetta sökkva sér og hyggst byrja með hlaðvarp.
María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp fékk uppsagnarbréf frá Samstöðinni. mbl.is/Birta Margret Björgvinsdottir
Lifir drauminn í Lundúnum
Vigdís Hafliðadóttir komst inn í nám og lifir nú sínu besta lífi í stórborginni.
Veisla í Lundi!
Björg Hildur Daðadóttir festi kaup á glæsilegu raðhúsi í Lundi í Kópavogi. Innherjaupplýsingar segja að þetta sé ein besta gatan í Kópavogi og að félagslíf sé yfir hámarki.
Að láta peningana vinna fyrir sig!
Spesía hélt glæsilegt boð í Sjávarklasanum þar sem allir helstu Jóakimar Íslands hittust og fögnuðu.
Sjóvá kann að halda partí!
Ef þú ert tjónlaus þá rignir yfir þig peningum ef þú tryggir á réttum stað!
Keypti íbúð á flottum stað!
Telma Fanney Magnúsdóttir keypti íbúð í Garðabænum eftir að upp úr sambandi hennar og Jökuls Júlíussonar slitnaði.
Góða helgi!
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗




