Rífandi stemmning hjá Benný Sif
Vinkonurnar Steingerður Steinarsdóttir, Guðríður Haraldsdóttir og Nanna Rögnvaldsdóttir létu sig ekki vanta þegar Benný Sif Ísleifsdóttir hélt útgáfuboð. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Mikil stemmning var í vikunni í Bókabúð Forlagsins úti á Granda þegar rithöfundurinn Benný Sif Ísleifsdóttir fangaði útgáfu nýjustu bókar sinnar. Bókin ber nafnið Vetrarþrestir og er söguleg skáldsaga um fólk á krossgötum.
Í útgáfuhófinu las Benný Sif upp úr bókinni og í kjölfarið áritaði hún bækur enda var fólk fljótt að næla sér í glóðvolgt eintak eftir upplesturinn.
Bókin gerist árið 1969 á Austurlandi. Hinriki er ættstór en vinafár ungur maður úr Reykjavík, sem hefur hvorki enst í námi né starfi. Hann reynir fyrir sér í hótelrekstri austur á fjörðum og ræður til sín starfsfólk með það í huga að eignast bæði vin og kærustu – það sem hann helst óskar sér – og fálmar þannig eftir hamingjunni.
Salný Vala Óskarsdóttir, Óskar Garðarson, Særós Eva Óskarsdóttir, Selma Dagmar Óskarsdóttir, Karl Avram Stenberg, Sóldís Alda Óskarsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Guðmunda Kristín Guðmundsdóttir, Kristín Ragna Höskuldsdóttir, Margrét S. Höskundsdóttir og Arnar Sigurðsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Pétur Ísleifsson, Sóley Rut Ísleifsdóttir, Guðrún Sif Erpsdóttir, Irpa Þöll Hauksdóttir og Árdís Björg Ísleifsdóttir mbl.is/Eggert Jóhannesson
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗










