Íslensk snyrtivara slær í gegn í Bandaríkjunum
Andlitsmaskinn Imprinting Hydrogel Mask frá íslenska snyrtivörumerkinu Bioeffect hefur hlotið Best of Beauty-verðlaun bandaríska tímaritsins Allure. Verðlaunin hafa verið veitt í þrjá áratugi og þykja ein eftirsóttasta viðurkenningin í snyrtivöruheiminum.
Á hverju ári velur tímaritið þær vörur sem þykja skara fram úr hvað varðar gæði, virkni og upplifun. Rauða Best of Beauty-verðlaunamerkið er orðið vel þekkt meðal snyrtivöruunnenda um allan heim.
Imprinting Hydrogel Mask er hannaður til að auka virkni seruma frá Bioeffect. Maskinn viðheldur raka á yfirborði húðarinnar og skapar þannig kjöraðstæður fyrir vaxtarþáttinn EGF, sem er eitt helsta innihaldsefni snyrtivara fyrirtækisins.
Í umsögn Allure er maskanum meðal annars hrósað fyrir kælandi og róandi áhrif, hversu vel hann helst á sínum stað og fallegan ljóma sem hann skilur eftir á húðinni. Honum er jafnframt lýst sem einstakri dekurupplifun sem henti sérstaklega vel þegar fríska þarf upp á húðina fyrir stórviðburði og sérstök tilefni.
„Það er okkur sérstakt ánægjuefni að sjá Imprinting Hydrogel Mask hljóta þessa virtu viðurkenningu frá Allure. Verðlaunin eru mikilvægur áfangi fyrir BIOEFFECT og undirstrika þann árangur sem vörumerkið hefur náð á alþjóðlegum vettvangi,“ segir Liv Bergþórsdóttir, forstjóri BIOEFFECT.
Í uppáhaldi hjá förðunarfræðingum Hollywood
Maskinn hefur ekki aðeins vakið athygli hjá Allure heldur hefur hann einnig notið vinsælda meðal þekktra förðunarfræðinga og áhrifavalda víða um heim.
Þar á meðal er Pati Dubroff, einn eftirsóttasti förðunarfræðingur Hollywood, sem hefur meðal annars séð um förðun stórstjarna á borð við Margot Robbie, Dakota Johnson og Priyanka Chopra. Dubroff hefur starfað í faginu í yfir þrjá áratugi og leggur mikla áherslu á að undirbúa húðina vel áður en förðun er borin á. Hún hefur sérstaklega mælt með möskunum frá Bioeffect til að gefa húðinni aukinn raka.
Förðunarfræðingurinn Rachel Goodwin er einnig í hópi aðdáenda maskans. Goodwin hefur unnið með fjölmörgum þekktum konum, þar á meðal Emmu Stone, Cindy Crawford og Elizabeth Olsen. Í nýlegum hlaðvarpsþætti fór hún fögrum orðum um maskann og nefndi hann sem eitt af sínum bestu ráðum þegar kemur að því að undirbúa húð fyrir förðun.
Vinsældir maskans ná einnig inn í danska tískuheiminn. Stílistinn og áhrifavaldurinn Emili Sindlev og tískufrumkvöðullinn Pernille Teisbæk hafa báðar sýnt frá notkun sinni á maskanum á samfélagsmiðlum.
„Verðlaunin eru mikilvægur áfangi fyrir Bioeffect og undirstrika þann árangur sem vörumerkið hefur náð á alþjóðlegum vettvangi.“ Ljósmynd/BIOEFFECT
Laufey og Loreen aðdáendur
Íslenskir förðunarfræðingar hafa sömuleiðis tekið vörum BIOEFFECT vel. Ísak Helgason, einn þekktasti förðunarfræðingur landsins, hefur unnið náið með vörumerkinu í gegnum tíðina. Hann átti meðal annars þátt í að koma á samstarfi Bioeffect og sænsku söngkonunnar Loreen, sem hann hefur starfað með um nokkurt skeið.
Þá má nefna förðunarfræðinginn Auði Jónsdóttur, sem hefur búið og starfað í Los Angeles um árabil. Auður hefur meðal annars séð um förðun tónlistarkonunnar Laufeyjar á tónleikaferðalagi hennar um Evrópu.
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/83/1688323.jpg)

