Íslenskir prjónarar taka yfir fjarfundina
Íslenskir prjónarar eru í aðalhlutverki nýrrar herferðar Íslandsstofu sem hefur það að markmiði að hvetja fólk til að verja minni tíma á óþarfa fundum og meiri tíma í að njóta lífsins.
Salka Sól Eyfeld og Bergþór Pálsson fara fyrir hópi þrjátíu prjónara sem taka að sér að sitja fjarfundi fyrir fólk sem hefur eitthvað skemmtilegra við tímann að gera.
Herferðin ber nafnið AI Knittakers og er óhætt að segja að hugmyndin sé nokkuð óvenjuleg. Í stað þess að nýta gervigreind til að skrifa fundargerðir geta starfsmenn fengið íslenskan prjónara til að mæta á fundinn fyrir sína hönd.
Prjónarinn fylgist með því sem fram fer, les í svipbrigði, þagnir og andvörp fundarmanna og prjónar að lokum eitt orð úr íslenskri ull sem lýsir því sem átti sér stað á fundinum.
Alls taka um 30 prjónarar víðs vegar af landinu þátt í verkefninu en þau Salka Sól og Bergþór eru í aðalhlutverki. Bæði eru þau miklir prjónaáhugamenn og hafa vakið mikla athygli fyrir handverk sitt.
Salka Sól kenndi sjálfri sér að prjóna með hjálp YouTube og hefur meðal annars gefið út prjónabók. Þá vakti hún mikla athygli þegar hún prjónaði lopapeysu handa Volodímír Zelenskí Úkraínuforseta.
Bergþór hefur sömuleiðis verið iðinn við prjónana og hafa glæsilegar peysur hans vakið athygli langt út fyrir landsteinana.
„Gervigreindarritari skráir hvert einasta orð sem sagt er á fundi. Prjónari tekur líka eftir því sem ekki er sagt, þögninni og andvarpinu, og það segir oft meira um fundinn en orðin,“ segir Salka Sól í fréttatilkynningu.
Salka Sól Eyfeld er mikill prjónari og hefur meira að segja gefið út prjónabók. Ljósmynd/Íslandsstofa
Eyðum heilum vinnudegi í óþarfa fundi
Það kannast eflaust margir við að sitja á fundi og velta því fyrir sér hvort tímanum væri ekki betur varið annars staðar.
Samkvæmt könnun sem Íslandsstofa lét framkvæma meðal 4.000 skrifstofustarfsmanna í Bretlandi og Bandaríkjunum verja þátttakendur tæpum átta klukkustundum á mánuði í fundi sem þeir telja óþarfa. Það jafngildir heilum vinnudegi.
Þá sögðust tveir af hverjum þremur vera tilbúnir að senda einhvern annan á fund í sinn stað, að minnsta kosti stundum, og 63% töldu að margir fundir hefðu allt eins getað verið tölvupóstur.
Betra að skella sér til Íslands
Með herferðinni vill Íslandsstofa hvetja fólk til að staldra við og velta því fyrir sér hvernig það ver tíma sínum. Í stað þess að sitja endalausa fjarfundi væri til dæmis hægt að skella sér til Íslands, njóta náttúrunnar, fara í heita laug eða upplifa eitthvað nýtt.
„Við vitum hvað fólkið sem við tölum við vantar: tíma, hvíld, náttúru og fólk sem hlustar. Það er freistandi að halda að tæknin eigi svar við öllu. En einmitt þegar gervigreind er farin að sitja fundina okkar skiptir það mannlega meira máli en nokkru sinni,“ segir Daði Guðjónsson, forstöðumaður markaðssamskipta hjá Íslandsstofu.
Þeir sem vilja láta íslenskan prjónara sitja fund fyrir sig geta bókað þjónustuna án endurgjalds á vefsíðunni AIKnittaker.com. Þjónustan verður í boði á helstu mörkuðum herferðarinnar frá 29. október til 20. nóvember.
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



