Þykir vænst um töskuna frá eiginmanninum

Andrea Magnúsdóttir fatahönnuður þykir vænst um Louis Vuitton Neverfull-töskuna sína.

Andrea Magnúsdóttir fatahönnuður þykir vænst um Louis Vuitton Neverfull-töskuna sína. Ljósmynd/Aðsend

Andrea Magnúsdóttir fatahönnuður er vön því að burðast með mikið dót með sér. Uppáhaldstaskan hennar er sú allra praktískasta, hin vinsæla Neverfull frá Louis Vuitton, sem hún kallar skrifstofuna sína. 

„Hún er kannski mesta notaða taskan og er þó alltaf meira en troðfull,“ segir Andrea. 

„Taskan er aðallega praktísk en mér þykir líka extra vænt um hana þar sem ég fékk hana í gjöf frá manninum mínum. 

Ég er alltaf með aðra minni tösku eða buddu, stundum tvær ofan í þessari stóru sem ég kippi svo upp úr þegar ég hoppa inn einhversstaðar. Í buddunni er þetta helsta, gloss, varasalvi, handáburður, skrúfblýantur nálægt skissubókinni og stór hárteygja fyrir fullkominn snúð. 

Svo er ég oftast með tölvu, myndavél, þrífót, skissubók, hleðslutæki, tyggjó, augndropa, gleraugu og sólgleraugu, “ segir hún. 

„Þegar það er rigning og rok þá er ég með hettu og hanska, hvort sem ég er með slegið hár eða greiðslu. Þetta er algjör leikbreytir fyrir konu eins og mig sem úfnar upp við minnstu hviðu,“ segir Andrea.

Louis Vuitton Neverfull er mest notaða taska Andreu en hún er klassísk og praktísk.

Andrea Magnúsdóttir fatahönnuður er með mikið í töskunni.

Andrea Magnúsdóttir fatahönnuður er með mikið í töskunni. Ljósmynd/Aðsend

Það eru nokkrar töskur sem hana langar í. 

„Óskalistinn er sem betur fer langur, það er svo gaman að skoða og láta sig dreyma. Mér finnst Chanel 25 mjög flott, en veit ekki hvort ég færi í svarta eða brúna. En svo væri ég til í að eiga Classic Flap Bag frá Chanel. Og á meðan ég er í draumaheimi er Birkin þar líka,“ segir Andrea. 

25-taskan frá Chanel er á óskalista Andreu í svörtu eða brúnu. Skjáskot/Chanel

Klassíska Flap Bag frá Chanel.

Klassíska Flap Bag frá Chanel.

Birkin-taskan frá Hermés er ein sú klassískasta.

Birkin-taskan frá Hermés er ein sú klassískasta.

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅