„Ég held að þetta hafi byrjað hjá pabba“
Undirbúningur er á fullu fyrir söngleikinn Þegar Trölli stal jólunum, sem verður frumsýndur í Borgarleikhúsinu 7. nóvember. mbl.is/Karítas
Ófá börn bíða spennt eftir því að söngleikurinn Þegar Trölli stal jólunum hefji göngu sína á Stóra sviði Borgarleikhússins en frumsýning er 7. nóvember. Tilhlökkunin nær þó langt út fyrir raðir yngstu leikhúsgestanna enda stefnir í einn stærsta jólaviðburð ársins.
Með hlutverk hins græna, loðna og skapstygga Trölla, sem þolir ekki jólin, fer enginn annar en kómíski snillingurinn Björgvin Franz Gíslason. Með honum er einvalalið listamanna, jafnt á sviðinu sem á bak við tjöldin, og saman opna þau dyrnar að einstakri jólaveröld Hvervíkur.
Blaðamaður ræddi við Björgvin er hann rölti frá heimili sínu yfir í Borgarleikhúsið, þar sem hann var að fara í gervaprufu og svo beint á æfingu. Ólíkt Trölla er hann forfallið jólabarn að eigin sögn og í samtalinu bar ýmislegt á góma, allt frá jólaminningum og fyrstu leikhúsferðinni um jólin til Trölla sjálfs.
Endalaust nammi og matur
Ástin á jólunum á sér djúpar rætur hjá Björgvini. Þegar hann rifjar upp jólin í æsku berst talið fljótt að föður hans, listamanninum Gísla Rúnari Jónssyni heitnum.
„Ég held að þetta hafi byrjað hjá pabba. Hann var hinn mesti jólasveinn og vildi ávallt skapa einstakan og eftirminnilegan tíma, sem honum tókst alltaf að gera. Það var hann sem kom með jólin inn á heimilið, enginn vafi á því, og smitaði okkur hin af þessari miklu jólagleði. Hann skreytti hátt og lágt og það skorti ekki góðgæti á heimilinu. Ég man eftir endalausu nammi og hnetum og alveg geggjuðum mat enda var pabbi mikill matgæðingur.“
Pakkarnir voru heldur ekki af skornum skammti. Björgvin segir föður sinn hafa verið mikinn stemningsmann og viljað láta gleðina á aðfangadagskvöld vara sem lengst. Hann pakkaði jafnvel minnstu gjöfum vandlega inn, allt niður í nælur, og pakkafjörið gat staðið langt fram á kvöld.
„Það voru svo margir pakkar, alveg óheyrilega margir. Við vorum oft ekki búin að opna þá alla fyrr en um miðnætti og sátum þá geispandi með hálfopin augun. Þetta gat stundum orðið þreytandi en var samt ótrúlega gaman. Þetta voru alltaf dásamlegar stundir.“ Aðspurður um eftirminnilegustu jólastundina segir Björgvin þær vera svo margar að erfitt sé að gera upp á milli. Nokkrar standa þó upp úr og tengjast óvenjulegum jólagjafaóskum hans í æsku.
„Mér finnst alltaf gaman að rifja upp hvað ég bað um í jólagjöf. Ég var náttúrlega skrýtið barn, sem kemur kannski ekki mörgum á óvart, en eitt árið bað ég um reykvél. Já, reykvél,“ segir hann og hlær. „Á þeim tíma var það eiginlega eins og að biðja um að fá að leigja Ráðhúsið. Reykvélar voru þá á stærð við Yaris og aðeins notaðar í menningarhúsum og á stórum viðburðum. Samt þráði ég að fá eina slíka inn í herbergið mitt.“
Reykvélin var þó ekki það eina óvenjulega á óskalistanum það árið.
„Mig langaði líka í hárkolluna úr Litlu hryllingsbúðinni, tannlæknahárkolluna sem Laddi var með í sýningunni. Pabbi sagði mér að það væri ekki hægt að kaupa hana og ég sætti mig svona nokkurn veginn við það.“
En faðir hans átti eftir að koma honum á óvart. Þegar búið var að opna alla pakkana á aðfangadagskvöld og Björgvin hafði fengið fullt af „geggjuðum gjöfum“, en hvorki reykvél né hárkollu, dró faðir hans allt í einu fram einn pakka til viðbótar.
„Pabbi sagði: „Nei, bíddu, bíddu, það er eitthvað hérna á bak við.“ Svo söng hann tannlæknasönginn á meðan hann tók utan af pakkanum. Þá kom í ljós að hann hafði látið sérgera hárkolluna fyrir mig. Hann fékk Rögnu Fossberg til að gera kollu alveg eins og þá sem Laddi var með. Þetta gladdi mig meira en ég get lýst með orðum. Hárkollan fylgdi mér og fjölskyldunni í langan tíma og var notuð í ótal verkefnum.“
Björgvin Franz Gíslason, Gísli Rúnar Jónsson og Edda Björgvinsdóttir fagna að lokinni frumsýningu á Farsa. mbl.is/Jón Svavarsson
„Fyrstu leikhúsminningarnar skipta miklu máli“
Þar sem sýningin Þegar Trölli stal jólunum verður eflaust fyrsta jólaleiksýningin sem mörg börn eiga eftir að upplifa liggur beinast við að spyrja Björgvin um fyrstu leikhúsminningu hans sem tengist jólunum. Hann þarf að hugsa sig aðeins um og leita í minningabankanum.
„Ég þarf aðeins að fletta þessu upp, hinkraðu aðeins,“ segir hann.
„Ég tengi þetta einhvern veginn við Gosa. Já, þetta var árið 1981 í Þjóðleikhúsinu, með Árna Blandon í hlutverki Gosa. Ég man hvað ég var heillaður. Í sýningunni kom risastór hvalur með rauð augu inn á sviðið og mér fannst það bæði ógnvekjandi og magnað.“
Minningin stendur Björgvini greinilega enn ljóslifandi fyrir hugskotssjónum og í dag fær hann sjálfur að taka þátt í að skapa slíkar minningar fyrir aðra.
„Maður áttar sig á því hvað fyrstu leikhúsminningarnar skipta miklu máli. Það er svo gaman að fá að vera hluti af því, að búa til æskuminningar barna af einhverju fallegu í leikhúsinu. Þetta er undraveröld sem þau gleyma aldrei.“
Jólaminningar fjölskyldunnar tengjast líka kvikmyndum og þar hefur ein verið í sérstöku uppáhaldi í gegnum árin.
„Það er fyndið að segja það, en við elskum How the Grinch Stole Christmas í þessari fjölskyldu. Ég og dætur mínar, sem eru orðnar rígfullorðnar í dag, höfum alltaf elskað Grinch. Ég man að þegar yngri dóttir mín, Dóra Marín, var lítil horfði hún á myndina allt árið um kring. Á endanum þurfti ég að segja: Nei, nú verðum við aðeins að hvíla Grinch,“ segir Björgvin og hlær. „Það var hásumar. En myndin er enn í miklu uppáhaldi hjá okkur og verður án efa spiluð reglulega fyrir jólin, þrátt fyrir að ég sé sjálfur kominn í græna búninginn og fái að upplifa söguna dag eftir dag.“
Jólin og aðventan eru jafnan annasamur tími í lífi Björgvins, með sýningum, tónleikum og öðrum viðburðum. Því kann hann þeim mun betur að meta rólegu stundirnar heima, að sitja inni í stofu með kveikt á kertum, horfa á jólaljósin og ylja sér við bolla af heitu súkkulaði.
„Ég kann mjög vel að meta kyrrðina og samverustundirnar sem fylgja jólunum. Ég hef oft svo mikið að gera sjálfur að ég kemst kannski ekki mikið á tónleika eða aðra viðburði. Ég hef hins vegar verið heppinn að fá að koma fram á Jólagestum Björgvins og ýmsu öðru skemmtilegu. Auðvitað langar mig að gera meira af því að setjast niður og njóta góðra jólatónleika. Það kemur að því einhvern daginn. Í ár ætla ég þó að nýta eina frídaginn minn frá sýningum til að koma fram á tónleikum vinkonu minnar, Katrínar Halldóru Sigurðardóttur, en þar verða fluttar perlur Ellyjar Vilhjálmsdóttur í Eldborgarsal Hörpu.“
Hvað finnst þér skemmtilegast við að vera á sviði á þessum árstíma?
„Það er bara eitthvað einstakt í loftinu. Fólk býr yfir sérlega miklum kærleika og gleði, vill gera eitthvað skemmtilegt og búa til minningar. Þegar ég hef verið að leika á þessum árstíma höfum við líka oft aðlagað sýningarnar að jólunum. Í Elly sungum við Katrín Halldóra, sem Raggi Bjarna og Elly, jólalög og það sama gerðum við í Ladda. Áhorfendur tóku alltaf mjög vel í það.
Það er líka eitthvað notalegt við að koma inn í leikhús á þessum árstíma, fá smá flótta frá veruleikanum og njóta stundarinnar. Það er bara þessi sérstaka tilfinning í loftinu og maður finnur hana alveg uppi á sviði.“
„Ég bókstaflega fraus“
Nú, þegar niðurtalningin að frumsýningu Þegar Trölli stal jólunum er komin á fullt, er ekki úr vegi að spóla aftur á byrjunarreit og heyra hvernig Björgvin komst að því að hann hefði hreppt hlutverk Trölla. Hann vissi ekki að setja ætti verkið upp fyrr en á kynningarfundi Borgarleikhússins í vor. Egill Heiðar leikhússtjóri hafði haldið spilunum þétt að sér.
„Yfirleitt kvisast eitthvað út en þarna hafði ekkert spurst. Svo segir Egill bara: Jæja, stóra sýningin er… og það varð allt vitlaust. Fólk varð svo spennt. Ég varð sjálfur himinlifandi en það hvarflaði ekki að mér að ég myndi fara með aðalhlutverkið. Svo var greint frá því hver ætti að leika Trölla og allt í einu var nafnið mitt komið upp á skjáinn. Ég fraus. Ég bókstaflega fraus og samstarfsfélagar mínir hlógu að viðbrögðunum.“
Hlutverkið er stórt í augum Björgvins og líkir hann því við að dramaleikari fengi tækifæri til að takast á við Hamlet eða Ríkharð III.
„Þetta er minn Ríkharður III. Þetta er það sem ég er góður í. Ég veit ekkert hvort ég gæti leikið Ríkharð III. enda eiga mín orka og minn leikstíll meira heima í svona verki. Trölla þarf að leika af sömu alvöru en hlutverkið kallar á aðra eiginleika sem ég bý yfir.“
Trölli er persóna sem flestir þekkja og fjölmargir hafa túlkað, bæði leikið og talsett, og má þar helst nefna Jim Carrey og Stefán Karl Stefánsson. Hvernig nálgast maður svona þekkt hlutverk og gerir það að sínu?
„Trölli þarf auðvitað að vera persónan sem fólk þekkir, með sömu dýptina og sömu einkenni. Ég þekki vel túlkun Jims Carreys, sem er á heimsmælikvarða, og líka túlkun Stefáns Karls á sviðinu í Bandaríkjunum. Maður er auðvitað alltaf litaður að einhverju leyti af því sem maður hefur séð en á sama tíma þarf maður að finna sína eigin leið. Ég og Valur Freyr Einarsson, leikstjóri sýningarinnar, höfum farið djúpt í persónusköpunina og fundið okkar Trölla. Við leyfum honum að vera bæði einstaklega skemmtilegur og alveg óþolandi.“
Tengsl Björgvins við hlutverkið ná raunar lengra aftur en að þessari uppsetningu.
„Stefán Karl hafði beðið mig um að koma í prufu úti þegar hann var farinn að hugsa meira um að leikstýra. Ég var hins vegar í meistaranámi á þeim tíma og hafði einfaldlega ekki tök á því. Þannig að þetta hlutverk hefur einhvern veginn legið í loftinu lengi. Mig hefur alltaf langað að takast á við það en bjóst kannski aldrei við að það yrði að veruleika. Ég hafði líka oft heyrt að ég ætti að leika Trölla, en að ég væri fyrsta val kom mér í alvörunni á óvart.“
„Ég kann ekki að lýsa þessu öðruvísi“
Björgvin segir sýninguna algjöra orku-, lita- og gleðijólasprengju.
„Þetta verður algjör extravaganza. Ég kann ekki að lýsa þessu öðruvísi. Ég hef, í alvöru talað, aldrei séð svona uppfærslu. Við erum búin að skapa heilan heim sem fær okkur sjálf til að gapa. Hér koma saman ótrúlegar tæknibrellur, skemmtileg lög, dansar og einstök gervi. Þessi sýning hefur allt til að bera og meira til og fólk á von á þvílíkum töfrum.“
Umfang sýningarinnar kallar líka á nýja nálgun, en að sögn Björgvins er þetta í fyrsta sinn sem svokallaðir understudies, eða skuggar, eru notaðir í íslenskri leiksýningu. Leikarar eru þá sérstaklega þjálfaðir til að geta stokkið inn í hlutverk ef einhver forfallast vegna veikinda eða af öðrum ástæðum.
„Þetta er mikil keyrsla í tvo mánuði og það verður ekki hægt að færa sýningar til eða fella þær niður. Með þessu pössum við upp á að jólunum verði ekki stolið af neinum leikhúsgesti.“
Og rétt í lokin: Hvernig myndir þú bregðast við ef Trölli kæmi heim til þín og stæli jólunum?
„Honum myndi aldrei takast það. Ég myndi nú bara setjast niður með honum og gefa honum gott kaffi. Svo myndum við ræða málin,“ segir Björgvin. „Og þótt hann myndi í framhaldinu stela öllum pökkunum, matnum og öllu hinu, þá myndi það litlu breyta. Jólin snúast ekki um það fyrir mér. Það sem skiptir mestu máli eru tengslin og samveran.“
Þar liggur sjálfur kjarni jólanna og um leið boðskapur sögunnar um Trölla. Þótt íbúar Hvervíkur leggi mikið upp úr pökkunum og jólaskreytingunum er það á endanum vinskapurinn og samveran sem gera jólin að jólunum.
„Við viljum tengsl og jólin minna okkur á það. Í sýningunni er einmitt lag sem heitir Hugurinn gildir mest og það segir í raun allt sem segja þarf. Það eru jólin fyrir mér.“
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/72/1687209.jpg)



