Ástin á Þórsmörk varð að skartgripum
Þórsmörk hefur fylgt Grétu Ósk Björnsdóttur frá blautu barnsbeini og nú hafa fjöllin þar ratað í skartið hennar. Gréta, sem er gullsmiður, skartgripahönnuður og eigandi Grósk Skart, sækir innblástur í íslenska náttúru, handverkshefðir og ævintýraheima.
Hugmyndin að skartgripalínunni Fjallabjálka kviknaði á göngu um Þórsmörk og er línan virðingarvottur við staðinn sem hún kallar sitt annað heimili.
Með Fjallabjálka vildi Gréta fanga fegurð Þórsmerkur og gefa henni nýtt líf í skarti. Samsett mynd/Aðsend
Hver er Gréta Ósk og hvernig kviknaði áhugi þinn á skartgripasmíði og gullsmíði?
„Ég er 30 ára, búsett í Mosó með kærastanum mínum, Sindra, og eins árs guttanum okkar honum Tindi. Ég er mikil útivistarmanneskja og elska nánast allt sem tengist því, t.d. klifur, snjóbretti, fjallgöngur, kajak og margt fleira. Við Sindri erum mikið á flakki og þá aðallega um Ísland, allan ársins hring. Náttúran og ævintýrin hafa alltaf átt stóran þátt í lífi mínu enda kem ég úr sannkallaðri ævintýrafjölskyldu.
Ég er líka dansari, þótt dansinn hafi minnkað með árunum eftir tvö ökklabrot, en ég held fast í listina og sköpunina sem ég öðlaðist þaðan. Þegar ég er ekki á fjöllum eða að skapa eitthvað er ég líklega með nefið ofan í bók og þá helst fantasíu. Ævintýraheimar, álfar og allt sem er smá töfrandi hefur alltaf heillað mig.
Áhuginn á skartgripagerð kviknaði mjög snemma. Ég föndraði endalaust sem barn og allir sem þekkja mömmu mína vita að hjá henni má finna nánast allt sem þarf til sköpunar. Það kom sér vel þegar ég fór að búa til mín eigin höfuðdjásn, innblásin af álfum og fantasíuheimum.
Svo er það þannig að í fjölskyldunni minni ríkir líka sterk þjóðbúningahefð, þar sem nánast hver frænka á sinn upphlut. Þar með hef ég frá unga aldri verið heilluð af víravirkinu sem fylgir íslensku búningunum. Smáatriðin, handverkið og áferðin í vírunum hafa alltaf haft ævintýralegt yfirbragð í mínum augum.
Kannski liggur einmitt þar rauði þráðurinn í því sem ég skapa í dag, einhvers staðar á milli íslenskrar handverkshefðar, náttúrunnar og ævintýraheimanna sem ég hef alltaf elskað,“ segir Gréta.
Sterk þjóðbúningahefð er í fjölskyldu Grétu og víravirki íslensku búninganna hefur heillað hana frá unga aldri. Ljósmynd/Aðsend
Hvenær vissir þú að þú vildir leggja skartgripagerð fyrir þig og hvað heillaði þig mest við handverkið?
„Það var í kveðjupartíi hjá systur minni, þar datt ég á tal við gamla skólasystur hennar sem sagði mér að hún væri að læra gull- og silfursmíði í Tækniskólanum. Ég bara hefði ekki fattað að þetta gæti verið atvinna.
Það kveikti strax eitthvað í mér. Allt í einu var eins og öll púslin féllu á sinn stað, svona aha móment. Áhuginn á sköpun, víravirki og skartgripunum sem höfðu alltaf heillað mig, að þetta gæti orðið að einhverju meira. Ég var aldrei þessi bóklega týpa, átti erfitt með stærðfræði og íslensku. Það hjálpaði ekki að vera með mikla lesblindu en ég lét hana nú samt ekki stoppa mig þegar það kom að því að klára Harry Potter bækurnar áður en myndirnar kæmu út.
En það var þarna sem ég áttaði mig eiginlega á að þetta var nákvæmlega það sem mig langaði að gera.”
Samtal í kveðjupartýi systur hennar opnaði augu Grétu fyrir því að skartgripagerð gæti orðið að atvinnu. Samsett mynd/Aðsend
Hvað varð til þess að þú ákvaðst að stofna þitt eigið merki og hvernig hefur verið að stíga það skref?
„Það urðu ákveðin tímamót í lífinu. Strákurinn minn var að byrja í leikskóla hér í Mosó og ég var í fullri vinnu á gullsmíðaverkstæði niðri í miðbæ. Þetta var einfaldlega ekki alveg að ganga upp og ég fann að ég þurfti að breyta einhverju.
Ég endaði á að finna mér fína „venjulega“ dagvinnu hér í Mosó og við það opnaðist allt í einu ákveðið frelsi, frelsi til að smíða mitt eigið og gefa hugmyndunum sem höfðu safnast upp í hausnum á mér loksins pláss. Ég var með hausinn fullan og mig hreinlega klæjaði í puttana að byrja að smíða.
Þetta hefur verið alveg gríðarlega krefjandi en á sama tíma svo spennandi, skemmtilegt og algjörlega þess virði. Mér finnst þetta alveg ógnvekjandi, skartið sem ég er að smíða er stundum svo persónulegt að mér finnst ég vera að berskjalda mig alveg hrikalega. En ég hef ekki fengið annað en hlýjar móttökur á þessu öllu saman.
Svo skiptir það miklu máli að vera með gott bakland. Ég er endalaust þakklát fyrir stuðninginn sem ég hef frá Sindra og mínum nánustu. Ég bara fann það í sumar þegar ég var á kafi í að smíða fyrir opnunarsýninguna hvað ég er heppin með fólkið mitt. Allir tilbúnir að hjálpa, hvort sem það var að passa, smíða vinnuskúr eða hlusta á mig nöldra,“ segir hún.
Útigönguhöfði í allri sinni dýrð, en fjallið er í aðalhlutverki á Fjallabjálkahring Grétu Óskar. Ljósmynd/Aðsend
Hvernig myndir þú lýsa þínum eigin stíl sem skartgripahönnuður og hvað viltu að einkenni Grósk Skart?
„Stíllinn minn er einhvers staðar þar sem náttúra mætir fantasíu. Ég er mikil „more is more“ manneskja og er sjálf mjög glisgjörn. Ég hef alltaf elskað skart, stóra dinglandi lokka, áberandi hringa og alls konar litríka steina. Fyrir mér þarf skart ekki endilega að vera látlaust eða fínlegt. Það má vera svolítið mikið, má vekja athygli og það má vera ævintýralegt.
Innblásturinn sem ég sæki í úr náttúrunni er þá sérstaklega allt það sem finnst í okkar eigin heimi en gæti alveg eins hafa verið klippt beint út úr fantasíusögu,“ bendir hún á.
Að mati Grétu má skart vera áberandi og bera með sér ævintýrablæ. Með Fjallabjálka vildi hún fanga fegurð Þórsmerkur í skarti. Samsett mynd/Aðsend
Hvernig kviknaði hugmyndin að Fjallabjálka og hvaðan kemur nafnið?
„Hugmyndin að Fjallabjálka kviknaði í Þórsmörk. Ég var að ganga yfir í Langadal frá Húsadal þegar ég horfði yfir í Bása. Þetta er leið sem ég hef gengið margoft áður en samt hugsaði ég, örugglega í þúsundasta skipti: „Vá, þetta er gjörsamlega töfrastaður.“
Mig langaði einhvern veginn að reyna að grípa þessa fegurð og gefa henni nýtt líf í skarti. Í upphafi var það kannski fyrst og fremst fyrir mig sjálfa, því Þórsmörk er staður sem er mér ótrúlega dýrmætur. Úr því varð lína sem mér finnst í raun vera eins konar virðingarvottur við Þórsmörk.
Nafnið Fjallabjálki kom svo til vegna þess að mig langaði ekki að vera alveg of augljós og nefna línuna einfaldlega eftir Þórsmörk. Þetta nafn fannst mér passa betur við mig og það sem ég var að skapa. Nafnið gefur mér líka ákveðið frelsi. Þótt Þórsmörk hafi kveikt hugmyndina vinn ég mikið með fjallalínur og Fjallabjálki þarf því ekki að tilheyra einum ákveðnum stað. Hann getur þróast með mér og gefið mér rými til að vinna síðar með fleiri fjöll og staði sem eru mér dýrmætir. Fyrsti Fjallabjálkinn á samt alltaf rætur sínar í Þórsmörk,“ tekur Gréta fram.
Hugmyndin að Fjallabjálka kviknaði þegar Gréta gekk frá Húsadal yfir í Langadal og horfði yfir í Bása. Ljósmynd/Aðsend
Hvaða tengsl hefur þú við staðinn og hvers vegna stendur hann þér svona nærri?
„Allir sem þekkja mig vita hversu heitt ég elska Þórsmörk og ég veit að ég er langt frá því að vera ein um það. Ég fór fyrst þangað með fjölskyldunni þegar ég var aðeins nokkurra mánaða gömul, en Þórsmörk hafði þá þegar verið fastur punktur í fjölskyldulífinu í mörg ár. Hefðin nær að minnsta kosti aftur þegar mamma var aðeins 7 ára gömul árið 1969, það er allavega fyrsta ferðin sem hún man eftir. Síðan þá mætir fjölskyldan á hverri Jónsmessu. Það var einmitt núna í sumar sem vinkona mín kom með í fyrsta skipti og sagði: „Vá, Gréta. Ég vissi að þú hefur talað um að fjölskyldan þín færi hingað á hverju ári. Ég vissi ekki að þetta væri bara öll ættin!“
Og nú er hefðin farin að teygja sig yfir í næstu kynslóð. Fyrsta útilega Tinds, stráksins míns, var að sjálfsögðu í Þórsmörk. Hann var þá aðeins tveggja mánaða gamall. Þannig að þegar ég horfi á fjallalínurnar sé ég því ekki bara fallegt landslag. Ég sé stað sem hefur fylgt fjölskyldunni minni í gegnum kynslóðir og ég vona að það haldi áfram um ókomin ár. Það er þessi tilfinning sem liggur að baki Fjallabjálka,“ segir Gréta.
Fjölskylda Grétu hefur um áratugaskeið komið saman í Þórsmörk á Jónsmessu og sjálf fór hún þangað fyrst aðeins nokkurra mánaða gömul. Í æsku hljóp hún þar um og ímyndaði sér að hún væri álfur í heimi Tolkiens. Samsett mynd/Aðsend
Hvaða minningar þaðan hafa mótað þig mest og hvernig rata þær inn í sköpunina?
„Það er ábyggilega nördinn í mér sem fékk hvað mest að láta ljós sitt skína í Þórsmörk. Ég hljóp þarna um, klifraði upp á fjöllin, buslaði í ánni og ímyndaði mér að ég væri álfur í Middle-earth. Alveg hrikalegt að segja frá þessu, en kemur eflaust engum á óvart sem þekkir mig. Úff, ég er að opinbera mig sem algjöran lúða. En það var eitthvað við frelsið þarna, að vera úti í náttúrunni, fá að ráfa, klifra, vaða og kanna. Þarna mátti maður einhvern veginn allt og í ímyndunaraflinu gat staðurinn orðið að hverju sem var.
Það er fyrst og fremst ástríða mín fyrir landslaginu sjálfu sem hefur ratað inn í hönnunina. Ég hef gengið þarna svo oft að mér finnst ég þekkja hvern einasta klett, fjallshlíð og tré. Þórsmörk er ekki bara staður sem ég sæki innblástur í heldur líka mitt annað heimili. Kannski er það einmitt þess vegna sem mér finnst landslagið þar svona ævintýralegt. Fyrir mér hafa raunveruleikinn og fantasían alltaf fengið að mætast þar,“ segir hún.
Gréta og Sindri ferðast mikið um Ísland allan ársins hring. Þórsmörk er þó annað heimili Grétu, þar sem raunveruleiki og fantasía mætast að hennar sögn. Þangað fór sonur þeirra, Tindur, í sína fyrstu útilegu aðeins tveggja mánaða gamall. Samsett mynd/Aðsend
Eru ákveðin fjöll eða staðir í Þórsmörk sem má sérstaklega greina í hönnun línunnar?
„Á hringnum má sjá Útigönguhöfða fyrir miðju. Einhvern veginn rataði hann alltaf aftur og aftur inn á myndirnar mínar úr Þórsmörk og því fannst mér eiginlega sjálfsagt að leyfa honum að vera í aðalhlutverki. Þegar horft er upp frá Básum situr hann meira einn og fjallalínan nýtur sín því ekki alveg á sama hátt. En þegar maður færir sig aðeins ofar í landslagið, gengur upp á Valahnjúk eða yfir í Húsadal, þá breytist sjónarhornið. Þá fær hann að rísa upp og þessi fallega fjallalína birtist í allri sinni mynd. Það var þessi fjallalína sem mig langaði að fanga í hringnum. Ekki bara útlínur fjalls, heldur sjónarhorn sem ég hef sjálf horft á aftur og aftur á göngum mínum um Þórsmörk,“ bendir Gréta á.
Hvað vonarðu að fólk upplifi þegar það ber skartgrip úr Fjallabjálka?
„Ég vona alltaf að fólk finni einhverja tengingu við skartið, að það geti sett sína eigin merkingu í það. Kannski minnir hann einhvern á Þórsmörk, ákveðna göngu eða ævintýri með fólkinu sínu. Kannski einfaldlega á þessa tilfinningu að standa uppi á fjalli, horfa yfir landslagið og finna hvað maður er ótrúlega lítill í einhverju svo stóru og fallegu.
Og svo vona ég auðvitað að smá fantasía fylgi með, að þegar þú setur á þig Fjallabjálka færðu þessa tilfinningu að þú sért kannski ekki bara á leiðinni út í daginn, heldur mögulega á leiðinni í eitthvað ævintýri. Það væri allavega týpískt ég,“ segir hún.
Gréta lýsir sér sem glisgjarnri og hefur dálæti á stórum lokkum, áberandi hringum og litríkum steinum. mbl.is/Eyþór
Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri að lokum?
„Mig langar fyrst og fremst að þakka fyrir gríðarlega hlýjar móttökur. Eins og ég sagði þá er skartið sem ég geri mjög persónulegt, ég set mikið af sjálfri mér í það. Þess vegna finnst mér ég vera að berskjalda mig alveg gríðarlega, það er bæði ótrúlega spennandi og ógnvekjandi að sýna öðrum eitthvað sem manni þykir svona vænt um.
Svo bara takk fyrir að taka svona vel á móti mér og litla ævintýraheiminum mínum,“ tekur Gréta fram að lokum.
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗










