Segir frá leyndarmálinu á bak við langt hjónaband

Björt Ólafsdóttir, fyrrverandi ráðherra og einn af eigendum Iðu.

Björt Ólafsdóttir, fyrrverandi ráðherra og einn af eigendum Iðu. Ljósmynd/Marta María

Björt Ólafsdóttir og eiginmaður hennar, Birgir Viðarsson, kynntust þegar þau voru ung og hafa verið saman síðan. Í hlaðvarpinu Marta María býður heim segir Björt frá því þegar hún sá hann fyrst á Þjóðarbókhlöðunni og hvernig hjónabandið hefur kennt henni að velja sínar orrustur.

„Ég sá bara þennan strák í rauðum anorakk og mér fannst hann ógeðslega sætur,“ segir Björt um fyrsti kynni sín af Birgi manninum sínum. Í gegnum sameiginlega vini lágu leiðir þeirra saman og hittust þau meðal annars á skemmtistaðnum Sirkus.

„Hann var náttúrulega svona hljómsveitargaur, ótrúlega bara miklu meira hættulegur en einhverjir aðrir,“ segir Björt og hlær að minningunni.

Þau hafa verið saman síðan.

Lærði að segja fyrirgefðu

Björt segir að þau hjónin séu ólík að mörgu leyti og að það hafi reynst þeim vel. Hún lýsir sjálfri sér sem skapmikilli og rökvissri manneskju sem geti auðveldlega unnið rifrildi. Það sé þó ekki endilega góður eiginleiki í hjónabandi.

„Ég get tekið bara Morfís-málfundinn og unnið hvert rifrildi bara sem ég vil sko,“ segir Björt og játar að það sé ekki endilega góður eiginleiki. 

Eiginmaður hennar sé hins vegar ekki mikið fyrir að rífast og hafi kennt henni að láta smáatriðin ekki verða að stórmálum.

„Ég hef lært það af honum að segja fyrirgefðu,“ segir Björt. Hún segir mikilvægt að fólk fái að þroskast saman og læra að meta styrkleika hvor annars.

Skipta með sér ábyrgðinni

Björt segir jafnframt að jafnvægi í fjölskyldulífinu skipti miklu máli.

Þegar hún var ráðherra og tvíburarnir voru litlir hafi eiginmaður hennar tekið að sér stóran hluta heimilishaldsins og umönnun barnanna.

Hann hafi stutt hana heilshugar í því að taka að sér ráðherraembættið.

„Auðvitað gerir þú þetta,“ rifjar hún upp að hann hafi sagt.

Hún segir þó ekki ganga til lengdar að annar aðilinn beri alltaf meginábyrgðina á heimilinu.

Þau hafi því skipst á að vera í krefjandi hlutverkum eftir því hvernig aðstæður hafa þróast.

Að hennar mati felist styrkur hjónabandsins meðal annars í því að geta gefið hvort öðru svigrúm til að blómstra.

Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni á hlaðvarpsvef mbl.is og á öllum helstu hlaðvarpsveitum landsins. 

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅