„Hafði lítið annað að gera en að versla á netinu“

Þóra Marín Sigurjónsdóttir segir minna vera meira.

Þóra Marín Sigurjónsdóttir segir minna vera meira. Ljósmynd/Aðsend

Þóra Marín Sigurjónsdóttir, flugfreyja hjá Icelandair, er með flottan fatastíl. Þrátt fyrir að finnast skemmtilegt að gera sig til er hún fegin því að vinna í einkennisklæðnaði og þurfa ekki að finna til föt á hverjum degi. 

„Það er alls ekkert alltof langt síðan að ég fór að pæla í fötum eða tísku. En áhuginn byrjaði mest í kórónuveirufaraldrinum man ég. Ég missti vinnuna mína tímabundið og vann annars staðar og hafði lítið annað að gera en að versla á netinu,“ segir Þóra Marín og hlær. 

Hverju tekur þú eftir í klæðaburði annars fólks?

„Hvernig fötin passa á þau aðallega, smekkur fólks er svo mismunandi en mér finnst aðal málið hvernig flíkurnar passa. Mér finnst minna vera meira, ekki of mikið í gangi.“

Þóra Marín Sigurjónsdóttir flugfreyja er hrifin af einföldum fatastíl.

Þóra Marín Sigurjónsdóttir flugfreyja er hrifin af einföldum fatastíl. Ljósmynd/Aðsend

Prófar frekar eitthvað nýtt erlendis

Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum?

Mjög einföldum, ég er ekkert rosalega ævintýragjörn. En ég tek eftir að ég þori frekar að prufa eitthvað nýtt ef ég er í útlöndum. Ég veit ekki alveg af hverju það er. Einfaldur og þægilegt væru lýsingarorðin sem ég myndi nota.“

Hvert sækir þú innblástur?

„Instagram, en ég finn líka mjög oft föt á TikTok. En annars bara frá daglegu lífi og frá náinni og góðri vinkonu minni, Haily Bieber,“ segir Þóra Marín og hlær og á þar við ofurfyrirsætuna Haily Bieber. 

Þóru Marín er komin yfir þrítugt en segir að klæðaburðurinn beri þess ekki merki. Ljósmynd/Aðsend

Klæðir sig ekki í takt við aldurinn

Hvernig klæðir þú þig dagsdaglega?

„Úff, ég er mjög fegin að vinna í einkennisfatnaði og þurfa ekki að pæla í hverju ég á að mæta í í vinnuna. Ég get verið rosalega löt við að klæða mig upp þá daga sem ég er ekki að vinna. Dagsdaglega fer ég í eitthvað sem mér finnst þægilegt og er mest í kósýfötum. Ég er alltaf að bíða eftir að ég byrji að klæða mig í takt við aldurinn en það virðist ekki vera gerast. Mér finnst gaman að pæla í og finna mér föt þegar ég fer eitthvað út. Á venjulegum frídegi er ég mjög fegin að rekast ekki á neinn sem ég þekki þegar ég er að stússast eitthvað,“ segir Þóra Marín og brosir. 

Þóra Marín elskar gallabuxur og támjóa hæla.

Þóra Marín elskar gallabuxur og támjóa hæla. Ljósmynd/Aðsend

Það verður að vera flott skart líka.

Það verður að vera flott skart líka. Ljósmynd/Aðsend

En þegar þú ferð eitthvert fínt?

„Ég elska þegar ég finn góðar, nógu síðar buxur sem eru annað hvort beinar niður eða smá „bootcut“ en það skiptir aðallega máli að þær seu nógu síðar því ég er hávaxin. Támjóir hælar eiga hjarta mitt. Svo elska ég jakka með háum kraga, það er veikleiki minn þessa dagana, svo sætt skart.“

Támjóir hálaskór klikka ekki.

Támjóir hálaskór klikka ekki. Ljósmynd/Aðsend

Flottar gallabuxur eru flottar við allt, sérstaklega gallajakka.

Flottar gallabuxur eru flottar við allt, sérstaklega gallajakka. Ljósmynd/Aðsend

Úlpan á skemmtilega sögu

Áttu uppáhaldsflík?

„Mér finnst mjög erfitt að gera upp á milli Aftur jakkans míns og Saks Potts-úlpunnar minnar en ég held að það sé Saks Potts-úlpan mín. Það er smá saga á bak við hana. Ég sá stelpu í henni á Instagram og reyndi að finna hana en þær voru þá hættar í framleiðslu. Ég þekki síðan stelpu sem átti úlpuna sem síðar varð mín og ég bað hana að láta mig vita ef hún ætlaði einhvern tímann að selja hana því þá ætlaði ég að kaupa hana. Hún er mín í dag og ég er mjög spennt fyrir því að það verði nógu kalt til að ég geti verið í henni aftur.“

Þóra Marín elskar úlpuna sína.

Þóra Marín elskar úlpuna sína. Ljósmynd/Aðsend

Hver er mest notaða flíkin í fataskápnum?

„Það verður að vera Aftur jakkinn minn, bestu vinkonur mínar gáfu mér hann á 30 ára afmælinu mínu.“

Þóra elskar jakka frá Aftur.

Þóra elskar jakka frá Aftur. Ljósmynd/Aftur

Hvar verslar þú helst?

„Ég elska Massimo Dutti, Andrá og Zara.“

Hvað er á óskalistanum fyrir haustið?

„Kalda hælar, Feldur frá Feldi, stigvél úr Andrá og jakka frá Aftur. Ég held samt sem áður að þetta haldist bara á óskalistanum til lengri tíma, en það má alltaf láta sig dreyma,“ segir Þóra Marín að lokum. 

Þóru Marín finnst skipta máli að flíkurnar passi vel.

Þóru Marín finnst skipta máli að flíkurnar passi vel. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅