„Þetta snýst ekki bara um að vera „fotogenískur“ eða fallegur“
„Ég er að ferðast á milli Íslands, Barcelona og Ibiza og vinna á öllum þessum stöðum. Annars er ég mestmegnis að undirbúa útgáfu þriðju línunnar frá Appreciate the Details. Við erum komin með alls konar nýjar vörur og það er margt skemmtilegt og spennandi að gerast. Þetta hefur tekið mestallan tímann minn undanfarnar vikur,“ segir ljósmyndarinn Kári Sverriss í samtali við Smartland en hann er nýkominn frá Ibiza þar sem hann var að mynda nýjustu vörurnar frá Appreciate the Details.
Þótt þú sért góður í að mynda heimili þá ertu þekktastur fyrir það að mynda fólk. Hvað sérðu fyrst þegar þú horfir á manneskju sem þú ætlar að mynda?
„Ég mynda rosalega mikið af fólki og alls konar týpur. Það fyrsta sem ég tek eftir er orkan. Ég velti fyrir mér hvernig ég eigi að nálgast manneskjuna og hvernig sé best að ná því besta fram í henni. Er hún feimin eða opin og frjálsleg? Ég er svolítið góður í að lesa fólk og finna hvernig er best að nálgast það. Svo horfi ég á andlitsdrættina, hárlitinn og líkamsbygginguna. Er einhver hlið sem myndast betur en önnur? Allt þetta skiptir máli. Ég spyr líka yfirleitt: „Áttu þér uppáhaldshlið eða einhverjar óskir um hvernig ég mynda þig?“ Þetta er því sambland af mörgu, en oftast tek ég fyrst eftir orkunni. Síðan horfi ég á manneskjuna og hugsa um hvernig lýsing myndi henta henni,“ segir hann.
Hvað þarf manneskja að hafa til að vera „fotogenísk“ – eða er það bara mýta?
„Sumir eru náttúrulega „fotogenískir“, myndast rosalega vel og eru auðveldir að mynda. En svo getur manneskja verið mjög „fotogenísk“ og samt gefið lítið fyrir framan myndavélina, kannski af því að hún er feimin. Það getur verið jafn erfitt að mynda hana og manneskju sem er ekki jafn „fotogenísk“ en gefur miklu meira af sér.
Þannig að það að vera „fotogenískur“ er ekki allt. Eins og ég nefndi áðan skiptir orkan miklu máli. Ég reyni þess vegna að hjálpa fólki að komast í ákveðinn gír þegar það kemur í myndatöku til mín. Ég spjalla aðeins við manneskjuna fyrst og kynnist henni: hvað henni finnst skemmtilegt, hver hún er og hvað hún stendur fyrir. Þetta snýst ekki bara um að vera „fotogenískur“ eða fallegur. Við erum öll með eitthvað og höfum öll eitthvað að gefa. Það besta kemur innan frá.“
Geturðu séð strax þegar einhver er óöruggur fyrir framan myndavélina?
„Stundum, stundum ekki. En oft kemur fólk til mín og það fyrsta sem það segir er að það sé ekki „fotogenískt“ og myndist ekki vel. Samt næ ég góðum myndum af því. Þetta snýst, eins og ég nefndi áðan, mikið um orkuna og útgeislunina. Ég reyni oft að ná fram þessari útgeislun í augunum.“
Hvað gerirðu til að fá fólk til að sleppa tökunum og sýna eitthvað raunverulegt?
„Þegar fólk mætir til mín byrja ég á að spjalla og reyna að kynnast því aðeins. Hver er manneskjan, hvaðan kemur hún, hvað finnst henni skemmtilegt og hvað skiptir hana máli? Bara létt spjall til að tengjast. Það getur verið ótrúlega ógnvekjandi að koma í myndatöku og setjast fyrir framan ljós og myndavél. Margir verða hræddir eða óöruggir. Þess vegna skiptir miklu máli að fólki líði vel í stúdíóinu. Ég geri mitt allra besta til að hjálpa því að slaka á, set á skemmtilega tónlist og reyni að hafa orkuna létta og góða. Þetta spjall hjálpar líka til við að ná fram einhverju raunverulegu. Ég vil að fólk slaki á, án þess að fara í einhverjar pósur eða reyna of mikið. Bara vera náttúrulegt og vera það sjálft. Það skiptir mestu máli.“
Hefur þú einhvern tíma tekið mynd og hugsað strax: „Þarna er hún“?
„Já, oft. Stundum gerist það alveg í byrjun tökunnar og stundum þegar við erum komin aðeins lengra inn í hana. Þegar ég mynda fyrir stór fyrirtæki erlendis geta tökurnar staðið í tvo daga. Stundum kemur myndin strax í fyrstu umferð og stundum tekur það lengri tíma. Sumir þurfa hálftíma til að komast almennilega inn í þetta. Ég er samt yfirleitt mjög snöggur og sé fljótt ef eitthvað er ekki að virka. Þá þarf kannski að breyta hárinu, fötunum, lýsingunni, uppsetningunni í stúdíóinu, umhverfinu eða sjónarhorninu. Ég hef þjálfað augað í gegnum árin og er mjög fljótur að sjá hvað virkar og hvað þarf að laga.“
Hver er munurinn á fallegri ljósmynd og ljósmynd sem maður gleymir aldrei?
„Mér finnst munurinn liggja í áhrifunum sem ljósmyndin hefur á mann. Hvað vekur hún upp? Það er hægt að túlka sömu ljósmyndina á milljón mismunandi vegu. Tíu manns geta horft á hana og allir haft sína eigin túlkun. Hún getur hreyft við hverjum og einum á ólíkan hátt.
Ljósmynd sem ég gleymi aldrei hefur fyrst og fremst vakið einhverja tilfinningu hjá mér. Myndir geta vakið alls konar tilfinningar, bæði góðar og slæmar. Þær geta verið skemmtilegar, fyndnar eða óþægilegar. Það er hægt að segja svo mikið með einni ljósmynd. Ljósmyndun er í rauninni alþjóðlegt tungumál sem allir skilja.“
Kári tekur alltaf mynd af börnunum sínum þegar hann hittir þau. Hér myndar hann dóttur sína. Ljósmynd/Kári Sverriss
Hvað finnst þér fallegt í dag sem þér hefði kannski ekki þótt fallegt fyrir tíu árum?
„Mér finnst meiri hráleiki fallegur í dag. Náttúrulegri myndir, afslappaðra viðmót og minni tilgerð. Fyrir tíu árum var rosalega mikið „photoshop“ í tísku. Myndir voru lagfærðar aftur og aftur, stundum alveg endalaust. Þegar ég horfi á sumar myndir eftir mig frá þeim tíma hugsa ég að ég hefði aldrei viljað láta vinna þær svona mikið í dag. En þetta var það sem var í gangi hjá blöðunum sem ég vann með. Í dag myndi ég aldrei láta „photoshoppa“ myndir eftir mig svona mikið.“
Er fegurð orðin of einsleit á tímum samfélagsmiðla, filtera og fegrunaraðgerða?
„Já og nei. Það er alls konar í gangi. Það er líka ákveðin hreyfing í átt að náttúrulegra útliti. Margir tala fyrir því að vera náttúrulegir og mála sig minna, og fólk er að láta leysa upp fylliefni í andlitinu. Mér finnst þetta vera að fara í rétta átt. Ég finn fyrir meiri vakningu í dag en fyrir til dæmis fimm árum, þegar mér fannst allir vera að verða svolítið eins. Nú finnst mér fólk frekar vilja vera nær sjálfu sér. En samfélagsmiðlar eru auðvitað ákveðinn heimur þar sem allt getur litið út fyrir að vera fullkomið og frábært. Við sjáum bara brot af raunveruleikanum. Maður á aldrei að trúa öllu sem maður sér þar.“
Hefur Instagram gert okkur betri í að sjá – eða verri?
„Að einhverju leyti betri og að einhverju leyti verri. Við erum fyrst og fremst orðin allt of meðvituð um hvernig við lítum út. Við erum alltaf að rýna í okkur sjálf þegar við ætlum að birta sjálfsmyndir eða aðrar myndir af okkur.
Tæknin og myndgæðin eru líka orðin svo góð, bæði í símum og myndavélum, að hvert einasta smáatriði í andlitinu sést. Mér finnst fólk orðið miklu gagnrýnara á sjálft sig. Margir nota filtera eða fara í alls konar meðferðir og mér finnst samfélagsmiðlar eiga stóran þátt í því.
En það kemur líka margt gott út úr Instagram. Ég fæ fullt af vinnu þar og hef kynnst fullt af flottu fólki í gegnum það. Þetta hefur sína kosti og galla, eins og allt annað.“
Hvað tekurðu fyrst eftir hjá fólki utan vinnunnar?
„Orkunni og nærverunni. Mér finnst það skipta miklu máli. Svo tek ég auðvitað líka eftir stílnum. Stundum sé ég manneskju úti á götu og hugsa: „Þessa manneskju væri ég til í að mynda.“ Þá er einhver ákveðin orka, kraftur eða eitthvað sérstakt við hana sem vekur forvitni mína. Það þarf ekki að vera af því að hún líti út eins og módel. Það er einfaldlega eitthvað við manneskjuna sem fangar athyglina.“
Er eitthvað sem þú hefur lært um konur og karla eftir að hafa horft á fólk í gegnum linsu í öll þessi ár?
„Það sem ég hef helst lært um fólk, karla, konur og bara alla, er að við erum í grunninn öll eins. Við erum bara í mismunandi ytri búningi. Við erum öll með okkar óöryggi eða eitthvað sem háir okkur eða hefur áhrif á okkur í daglegu lífi. Við höfum mismunandi starfsheiti og gerum ólíka hluti, en ég horfi á okkur öll sem jafningja. Við erum ólík í útliti en samt einhvern veginn öll að leita að því sama.“
Hvenær finnst þér fólk fallegast?
„Mér finnst fólk fallegast þegar það er það sjálft og er ekki að reyna að vera einhver annar. Mér finnst myndirnar líka fallegastar þannig, þegar fólk leyfir sér að opna hjartað og sýna orkuna sína og nærveruna. Bara vera það sjálft fyrir framan myndavélina. Ég finn þetta líka hjá sjálfum mér. Ef það er tekin mynd af mér fyrir viðtal og ég reyni að vera einhver annar eða set upp einhverja pósu sem er ekki ég, þá passar það einfaldlega ekki. Mér finnst alltaf fallegast þegar fólk fær að vera það sjálft.“
Hvað finnst þér mest heillandi við manneskju?
„Sagan á bak við manneskjuna. Hver hún er, hvað hún hefur upplifað og gengið í gegnum. Sigrarnir, ósigrarnir, erfiðleikarnir og fallegu hlutirnir. Líka litlu hlutirnir og fallegu augnablikin. Allt þetta sem gerir manneskjuna að þeirri sem hún er.“
Hvað drepur aðdráttarafl samstundis?
„Dónaskapur og hroki. Mér finnst svona neikvæð orka fráhrindandi.“
Hefurðu einhvern tíma orðið skotinn í einhverjum sem þú varst að mynda?
„Nei, en mér hefur alveg fundist bæði karlar og konur sem ég mynda falleg. Það getur líka verið ákveðnir straumar á milli mín og manneskjunnar fyrir framan myndavélina, en ég myndi aldrei taka það lengra. Þetta er vinna fyrir mér. Allir eru fallegir á sinn hátt og mér finnst gaman að mynda alls konar fólk.“
Er auðveldara eða erfiðara að mynda manneskju sem maður elskar?
„Það getur stundum verið erfiðara. Ég sé kannski manneskjuna á einn hátt en hún sér sig á annan og vill láta mynda sig öðruvísi en ég sé hana. Þá getur það orðið aðeins flóknara. En stundum er það líka mjög auðvelt, jafnvel auðveldara. Það fer eftir manneskjunni. Ég elska að mynda börnin mín. Mér finnst þau náttúrulega fallegust í heimi. Í hvert skipti sem ég hitti þau tek ég mynd af þeim, þó það sé bara á símann, til að eiga sem minningu. Mér finnst svo dýrmætt að eiga myndir af fólkinu sem maður elskar. Þannig að mér finnst það ekki endilega erfiðara. Það er bara öðruvísi.“
Hvernig ertu sjálfur fyrir framan myndavélina?
„Ég var í mörg ár mjög feiminn og óöruggur fyrir framan myndavélina og fannst það óþægilegt. En með árunum hef ég lært að láta það ekki stjórna mér hvað öðrum finnst um myndirnar eða hvernig ég lít út á þeim. Ég reyni að koma mér í ákveðinn gír og ná sambandi við innri manninn, þann sem er þarna fyrir innan, og leyfa honum að skína. Leyfa Kára að skína á myndunum.“
Er til mynd af þér sem þér finnst raunverulega sýna hver þú ert?
„Já, það eru margar myndir af mér sem mér finnst sýna hver ég er. Eins og ég hef talað um í þessu viðtali eru það myndirnar þar sem ég fæ sjálfur að skína. Þegar ég er alveg ég, í mínum kjarna, án þess að setja upp eitthvert andlit fyrir aðra eða reyna að vera einhver annar. Þegar ég er ég sjálfur finnst mér það vera fallegustu og bestu myndirnar af mér.“
Þótt Kári Sverriss skilgreini sig ekki sem tískuljósmyndara þá er hann fær á því svði. Ljósmynd/Kári Sverriss
Hvað myndi fólk sem þekkir þig bara í gegnum vinnuna verða mest hissa á að vita um þig?
„Ég veit það ekki alveg. Þótt ég hafi tekið mikið af tískumyndum þá lifi ég ekki og hrærist í tískuheiminum. Ég er ekki að skoða tískublöð alla daga eða alveg upptekinn af tísku. Fólk tengir mig kannski við það vegna verkefnanna sem ég hef gert, sérstaklega áður fyrr. Ég vinn hins vegar við alls konar ljósmyndun: auglýsingar, tísku, mat, hús og heimili. Ég elska að taka myndir og það er ástríðan mín alla daga. Ég vakna spenntur á morgnana fyrir hverju verkefni sem ég fer í. Ég elska líka innanhússhönnun og að stílisera heimili. Mér finnst gott að hafa fallegt í kringum mig og hef mikla ástríðu fyrir litlu hlutunum í lífinu. Ég elska að elda, baka og hafa fallegt heima hjá mér. Kannski vita ekki allir af þeirri hlið á mér.
Ég sé eiginlega allt í myndum, hvort sem það er matur, fólk eða heimili. Ég sé fyrir mér hvernig hlutirnir raðast saman og byggi þá upp á myndrænan hátt. Ég hef verið svona frá því ég var lítill, svolítið dreymandi og alltaf að sjá fyrir mér heilar sögur og myndir. Það er bara hluti af því hver ég er.“
Hver er stærsti misskilningurinn um þig?
„Kannski að ég sé bara tískuljósmyndari. Ég hef unnið mikið við auglýsingaverkefni, myndað leikara, verið ljósmyndari á kvikmyndasettum og tekið matarmyndir fyrir marga veitingastaði. Ég elska ljósmyndun yfirhöfuð og er alls ekki bara í tísku. Ég veit ekki hvort það sé einhver annar misskilningur um mig og ég hef svo sem ekki miklar áhyggjur af því. Það sem skiptir mig mestu máli er að vera sáttur við sjálfan mig og fólkið mitt sem ég elska og þykir vænt um.“
Hvað hefur þú þurft að læra á erfiða mátann?
„Ég hef þurft að læra margt á erfiða mátann. Ég hef aldrei fengið neitt upp í hendurnar og hef alltaf þurft að hafa fyrir mínu.
Það sem ég hef helst lært er að góðir hlutir koma ekki alltaf af sjálfu sér. Maður þarf að hafa fyrir þeim og gera eitthvað á hverjum degi til að þroskast, vaxa og dafna. Verða betri manneskja, betri ljósmyndari og betri faðir.
Ég hef lært þetta í gegnum alls konar reynslu, bæði góða og erfiða. Skemmtileg tímabil, þung tímabil og sorg. Allt þetta hefur gert mig að þeirri manneskju sem ég er í dag og ég er glaður og þakklátur fyrir þann mann sem ég er orðinn.
Ég hef ferðast um allan heim að mynda og unnið með stórum vörumerkjum, en ekkert af því kom af sjálfu sér. Ég fékk fullt af neitum, höfnunum og stundum engin svör. En ég hélt alltaf áfram.
Það er líka eitthvað sem ég hef þurft að læra: þótt einhver segi nei eða svari þér ekki þýðir það ekki að þú sért ekki nógu góður eða getir aldrei orðið það. Kannski var þetta einfaldlega ekki rétta tækifærið á þeim tímapunkti.
Það er gott að hafa þetta í huga þegar maður vill verða ljósmyndari. Reyna að taka höfnunum ekki persónulega, halda áfram og vinna að því að bæta sig.“
Ertu harður við sjálfan þig?
„Já, ég er mjög harður við sjálfan mig, því miður. En ég er að verða betri í að sýna mér mildi og kærleika eftir því sem ég eldist. Ég er alltaf að læra að það sé í lagi að gera mistök og vera ekki fullkominn. Allt þarf ekki alltaf að vera nákvæmlega eins og ég vil hafa það. Ég er að læra að fylgja flæðinu í lífinu, taka hlutunum eins og þeir eru og vera þakklátur fyrir það sem ég hef. Líka að taka ekki höfnunum persónulega. Ef ég fæ ekki eitthvert verkefni er það ekki heimsendir. Ég reyni að gera mitt besta á hverjum degi, vera tilbúinn að læra og þroskast og verða betri í dag en ég var í gær. En líka að sýna mér mildi og kærleika. Ég þarf oft að minna mig á það.“
Hvað hræðist þú mest við að eldast?
„Ég hræðist ekki að eldast, ég hlakka til þess og hlakka líka til þess að verða afi. Mér finnst það bara stórkostlegt. Ég hef aldrei verið í betra formi, bæði líkamlega og andlega. Ég verð 45 ára núna í desember, en finn ekki fyrir því. Mér finnst ég enn vera þrítugur. Það fylgir aldrinum svo mikill þroski og hugarró. Maður verður afslappaðri í lífinu og nær að láta ýmislegt síður á sig fá.“
Hvað finnst þér betra við sjálfan þig eftir því sem þú verður eldri?
„Hvað ég er miklu ánægðari með sjálfan mig. Ég er bara eins og ég er. Á yngri árum var ég miklu harðari við sjálfan mig, sérstaklega varðandi útlitið. Ég bar mig mikið saman við aðra og var alltaf að velta fyrir mér hvernig aðrir væru og hvort ég þyrfti að breyta einhverju hjá mér. Ég hef að miklu leyti náð að hætta því og er oftast frekar sáttur í eigin skinni. Mér líður betur vegna þess að ég næ að sýna mér meiri mildi og kærleika. Ég er ánægður með það sem ég hef áorkað í lífinu, þakklátur og stoltur af sjálfum mér. Ég finn ekki lengur þessa þörf fyrir að rífa mig niður eins og ég gerði áður.“
Hvenær líður þér best í eigin skinni?
„Þegar ég byrja daginn rólega og tek mér tíma fyrir sjálfan mig. Hugleiði, set kannski á mig rauðljósagrímuna og drekk kakó. Mér finnst gott að fá þessa ró í byrjun dags. Mér líður líka vel þegar ég fer í ræktina eða jóga og þegar ég gef mér tíma fyrir vini mína, börnin mín og sjálfan mig.“
Hvaða tímabil í lífi þínu hefur mótað þig mest?
„Að verða pabbi. Börnin mín eru það besta sem hefur nokkurn tíma komið fyrir mig. Ég var tvítugur þegar ég eignaðist fyrsta barnið mitt og bæði börnin hafa mótað mig á sinn hátt. Þau eru mér allt og ég gæti ekki verið þakklátari fyrir þau.
Auðvitað hafa komið tímabil þar sem ég hef unnið mikið og óskað þess að ég hefði verið meira með þeim. Þess vegna legg ég áherslu á að gefa þeim fulla athygli þegar við erum saman. Eiga góðan tíma með þeim og vera raunverulega til staðar.
Annað tímabil sem mótaði mig mikið var þegar ég fór í meistaranám í ljósmyndun í London. Það gjörbreytti ferlinum mínum og mér sem ljósmyndara og listamanni.“
Hefur velgengni breytt þér?
„Ég myndi ekki segja það. Nema kannski að því leyti að hún hefur gefið mér meira frelsi. Ég get leyft mér að ferðast meira og að miklu leyti ákveðið hvenær ég tek mér frí. Ég hef líka frelsi til að búa nánast hvar sem er í heiminum. Velgengnin hefur þannig gefið mér meira svigrúm til að lifa lífinu og hafa gaman.“
Hvað hefur þú fórnað fyrir ljósmyndunina?
„Kannski fyrst og fremst tíma með börnunum mínum og vinum. Ég hef stundum þurft að vera erlendis til að byggja upp ferilinn og þá misst af tíma með börnunum. Ég vona og trúi samt að ég sé þeim fyrirmynd með því að sýna að það sé hægt að fylgja draumunum sínum og vera góður pabbi og til staðar. Mér finnst mikilvægt að fylgja hjartanu og vona að þau taki það með sér úr mínu lífi. Ég elska börnin mín út af lífinu og er mikið til staðar í þeirra lífi í dag.“
Hefurðu einhvern tíma hugsað: „Ég nenni þessu ekki lengur“?
„Já, ég hef alveg hugsað það. Það hafa komið erfiðir tímar, sérstaklega þegar það er rólegt og minna að gera. Ég vinn með stórum vörumerkjum víða um heim og samkeppnin um verkefnin er mikil. Ég þarf stöðugt að sýna að ég sé í takt við það sem er að gerast í auglýsingum, ljósmyndun og tísku. Þannig að ég er stundum í vinnunni þótt ég sé ekki í vinnunni.
Ég hef samt lært að taka mér hvíld og aftengja mig. Það hefur tekið mörg ár. Fyrstu árin, þegar ég fékk oft nei, hugsaði ég stundum hvort ég ætti bara að gefast upp. En ég gerði það aldrei. Í dag hugsa ég þetta ekki lengur. Ég er mjög ánægður með staðinn sem ég er kominn á. Auðvitað langar mig að fara lengra og ég ætla að halda áfram að vinna að því. Ég elska vinnuna mína og vil halda áfram að njóta hennar á hverjum degi.“
Ef þú mættir mynda eina manneskju í heiminum á morgun, lifandi eða látna, hver yrði það?
„Isabella Rossellini. Mér finnst hún ein fallegasta kona sem hefur lifað. Algjör gyðja. Ég væri til í að mynda hana í dag og hefði líka verið til í að mynda hana fyrir tuttugu, þrjátíu eða fjörutíu árum. Mér finnst hún stórkostlega falleg.“
Hver er erfiðasta manneskja sem þú hefur þurft að mynda – án þess endilega að nefna nafn?
„Ég var einu sinni að mynda forsíðuverkefni fyrir Elle hér á Íslandi. Fyrirsætan sem kom til landsins var mjög stjórnsöm, ekki bara gagnvart mér heldur öllu teyminu. Hún heimtaði alls konar hluti og meðferðir ókeypis vegna þess að hún leit á sig sem stórt nafn. Hún var ekki sérstaklega kurteis. Aðstæðurnar voru vissulega erfiðar, en ég hef myndað miklu þekktari fyrirsætur í ískulda, roki og stormi sem hafa verið yndislegar allan tímann og komið vel fram við alla. Þetta er líklega erfiðasta manneskjan sem ég hef myndað. Sem betur fer er þetta eina svona atvikið sem ég man eftir.“
Hver er besta lygi sem ljósmynd getur sagt?
„Kannski að allt sé í lagi hjá manneskjunni þótt það sé það ekki. Stundum sér maður það á mynd og stundum ekki. Eins og við töluðum um varðandi samfélagsmiðla er hægt að fegra hlutina með ljósmyndum. Myndin sýnir ekki endilega hvað er raunverulega að gerast á bak við hana eða hvernig manneskjunni líður.“
Og öfugt: Getur ljósmyndari séð eitthvað í manneskju sem hún sér ekki sjálf?
„Já. Fólk kemur stundum til mín með ákveðnar hugmyndir um hvernig það vill láta mynda sig. Ég sting kannski upp á öðru sjónarhorni, annarri lýsingu eða öðrum fötum og svo verður manneskjan hissa á hvað það virkar vel. Þannig að maður getur alveg hjálpað fólki að sjá eitthvað nýtt í sjálfu sér.“
Ef þú ættir að taka eina ljósmynd sem ætti að segja söguna af lífi þínu hingað til – hvað væri á henni?
„Ég held að á henni væri ég að faðma börnin mín, með myndavélina mína hjá mér og vini mína og fjölskylduna fyrir aftan mig. Ég er ótrúlega þakklátur fyrir allan stuðninginn sem ég hef fengið og fólkið sem ég á að. Ég á yndislega vini og yndisleg börn og er mjög stoltur af mér og mínu fólki.“
Kári Sverriss hefur verið svolítið í því að stílisera heimili og gera fallegt hjá fólki. Ljósmynd/Kári Sverriss
Hvað er ofmetnasta fegurðartrendið í dag?
„Kannski þessi krafa um að allir þurfi að vera mjóir. Mér finnst þetta trend vera komið aftur og mikið rætt um megrunarlyf. En þetta kemur í bylgjum, eins og önnur tískutrend. Núna er eitt útlit í tísku og eftir einhver ár verður það eitthvað annað. Þess vegna finnst mér þessi áhersla ofmetin. Hún mun líka fara úr tísku. Það eru alltaf einhver trend í gangi, hvort sem það er í fegurð, tísku eða ljósmyndun. Í ljósmyndun er til dæmis ákveðin tíska fyrir hráar myndir, sem mér finnst geta verið flottar.“
Hvað finnst þér um fólk sem vill láta „photoshoppa“ sig mikið?
„Mér finnst allir eiga að fá að vera eins og þeir vilja vera. Ég ætla ekki að dæma fólk fyrir að vilja láta „photoshoppa“ sig mikið. Við erum öll með okkar hluti og okkar óöryggi. Ef einhver vill láta lagfæra mynd af sér, þá má viðkomandi það alveg. Hver hefur sitt.“
Hefur einhver beðið þig um svo mikla lagfæringu að þú hafir hugsað: „Þetta ert ekki lengur þú“?
„Já, það gerðist nokkrum sinnum fyrir mörgum árum. Þá var þessi heimur svolítið þannig og fólk bað stundum um mjög miklar breytingar. Ég upplifi þetta ekki lengur hjá fólkinu sem ég vinn með. Í dag er ég yfirleitt bara beðinn um litlar lagfæringar, kannski á húðinni. Það er enginn að biðja mig um að breyta sér eitthvað svakalega mikið.“
Hvað er kynþokkafyllra en útlit?
„Orka, nærvera og útgeislun. Það er númer eitt, tvö og þrjú hjá mér. Líka sjálfsást: að manneskja hugsi vel um sig, sýni sjálfri sér kærleika og næri sinn innri mann. Mér finnst það kynþokkafyllst af öllu. Þegar maður gerir það smitar það út í allt lífið, fjölskylduna, vinina og það sem maður tekur sér fyrir hendur. Mér finnst maður finna fyrir því og sjá það utan á manneskju þegar hún hugsar vel um sig og nærir sig.“
Hvað finnst þér vera mesta „red flag“ í fari fólks?
„Ég er ekki mikið að spá í hvað sé „red flag“ hjá fólki. Við erum öll á okkar ferðalagi í lífinu og eigum að fá að vera eins og við erum. Ég veit hins vegar hvað skiptir mig máli: nærvera og orka. Fólkið sem ég hef í kringum mig er mér dýrmætt og hefur góða nærveru og góða orku. Það er „green flag“ fyrir mér.“
Ef myndavélin þín gæti talað, hvaða leyndarmál myndi hún segja um þig?
„Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja við því. Ég á svo sem engin leyndarmál. Kannski myndi hún bara segja hvað ég er hamingjusamur og þakklátur, bjartsýnn og jákvæður. Að ég elski vinnuna mína, börnin mín, vinina mína og það sem ég geri.
Ég er ekki upptekinn af tísku eða útliti annarra. Ég elska jóga, hugleiðslu, að vera með vinum mínum og borða góðan mat. Ég elska vörumerkið mitt, Appreciate the Details, sem hefur gjörbreytt lífi mínu og gefið mér ótrúlega mikið. En kannski myndi myndavélin helst segja hvað ég er upptekinn af litlu hlutunum. Mér finnst þeir skipta öllu máli. Það gengur í gegnum ljósmyndunina mína og allt sem ég geri, hvort sem ég er að mynda heimili, mat, fólk, tísku eða auglýsingar. Þegar allir litlu hlutirnir koma saman verða þeir að einhverju stóru. Það er það sem ég reyni að rækta í lífinu og vinnunni: að gera litlu hlutina fallega og vel, svo úr þeim verði eitthvað stórkostlegt,“ segir Kári Sverriss með bros á vör.
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗





















