„Það er ótrúlega gaman að sjá glampann í augunum á krökkunum“

Steinunn segir að áhorfendur hafi góða ástæðu til að hlakka til, enda sé sýningin skemmtileg fyrir fólk á öllum aldri. Morgunblaðið/Ólafur Árdal

Jólin liggja í loftinu hjá Leikfélagi Kópavogs en félagar þess undirbúa nú jólaleikritið Jólapakkana í leikstjórn Ólafs Þórðarsonar. Verkið verður frumsýnt 14. nóvember og er ætlað allri fjölskyldunni. Steinunn Þorsteinsdóttir framkvæmdastjóri sýningarinnar segir hana henta vel fyrir unga leikhúsgesti.

„Þetta er jólaleikrit fyrir alla fjölskylduna, frá tveggja ára aldri og upp úr. Sýningin er um 50 mínútur, full af litum, gleði, söng og miklum hasar,“ segir Steinunn og bætir við að leikhúsið sé lítið og nándin því mikil. Þurfi yngstu gestirnir hlé sé auðvelt að fara fram og koma aftur inn.

Hún segir viðbrögð barnanna stóran hluta af gleðinni við að setja upp fjölskyldusýningu. „Það er ótrúlega gaman að sjá glampann í augunum á krökkunum þegar þau fara að bregðast við og hjálpa leikurunum á sviðinu. Á svona litlu sviði, í svona mikilli nánd, gerast alltaf einhverjir töfrar.“

Steinunn ásamt hjónunum Steina og Freyju, höfundum sýningarinnar.

Steinunn ásamt hjónunum Steina og Freyju, höfundum sýningarinnar. Morgunblaðið/Ólafur Árdal

Aðspurð um söguþráðinn segir Steinunn jólapakkana vakna til lífsins seint á aðfangadagskvöldi og ekki skilja hvers vegna þeir hafi ekki verið opnaðir. Einn pakkinn er öðruvísi en hinir og þegar hann hverfur verður uppi fótur og fit. Skrímsli virðist leynast meðal pakkanna og þeir þurfa að standa saman, finna þann týnda og sigrast á skrímslinu svo töfrar jólanna glatist ekki.

Steinunn segir boðskapinn snúast um samstöðu og að allir séu jafn mikils virði. „Þótt einn pakki líti aðeins öðruvísi út en hinir er enginn betri en annar. Við erum alls konar en eigum að standa saman.“

Aðspurð hvernig hugmyndin að verkinu kviknaði segir Steinunn:

„Höfundarnir, hjónin Freyja og Steini, eru félagar í Leikfélagi Kópavogs. Þau kynntust í áhugaleikhúsinu á námskeiði hjá Leikfélagi Ölfuss árið 2011 og léku síðar í Rummungi ræningja ásamt tveimur dætrum sínum. Hlátur barnanna varð Freyju minnisstæður og haustið 2015 sagði hún við Steina að sig langaði að skrifa barnaleikrit. Smám saman varð hugmyndin að Jólapökkunum til.

Sumarið eftir leigðu þau sumarhús á Vestfjörðum og skiptust á að sitja við tölvuna og skrifa söguna um jólapakkana. Steini vildi vita hvernig sagan myndi enda en Freyja vildi sjá hvert skrifin leiddu þau. Nú bíða þau spennt eftir að sjá hvort pakkarnir fá börnin til að veltast um af hlátri.“

Leikhópurinn hefur unnið hörðum höndum að undirbúningi sýningarinnar.

Leikhópurinn hefur unnið hörðum höndum að undirbúningi sýningarinnar. Morgunblaðið/Ólafur Árdal

Samverustund á aðventunni

Steinunn segir leikhúsferð á aðventunni veita kærkomið hlé frá öllu jólastússinu.

„Um leið og þú stígur inn í leikhús ertu kominn inn í annan heim. Þú skilur svolítið eftir allt sem þarf að gera og græja, sest niður og það kviknar á einhverju nýju.“

Miðaverð á sýninguna er 2.500 krónur fyrir bæði börn og fullorðna. Steinunn segir að þau hafi ákveðið að halda miðaverðinu í hófi svo fjölskyldan geti farið öll saman í leikhús fyrir jólin.

Leikfélagið fagnar 70 ára afmæli á næsta ári. Steinunn segir fjölbreytta afmælisdagskrá í undirbúningi og Jólapakkarnir séu frábært upptaktur fyrir afmælisárið. „Við erum ótrúlega spennt fyrir jólasýningunni og afmælisárinu sem verður fullt af skemmtilegum uppákomum og leikverkum og hlökkum til að bjóða gesti velkomna í leikhúsin okkar.“

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅