Þorleifur og Erna Mist selja íbúð með Bulthaup eldhúsi
Þorleifur Örn Arnarsson og Erna Mist Yamagata hafa sett einstaka útsýnisíbúð sína við Sörlaskjól á sölu. Íbúðin er 134 fm að stærð og er í húsi sem reist var 1951.
Fallegt sjávarútsýni er úr íbúðinni sem er smekklega innréttuð. Í eldhúsinu eru sérsmíðaðar innréttingar frá Bulthaup sem eru óvenjulegar. Þær samanstanda af frístandandi eyju úr stáli sem er úti í miðju gólfi og tveimur stórum skápum sem rúma allt sem nútímafjölskylda þarfnast. Eldhúsið setur svip á íbúðina og færir hana upp um nokkur þrep hönnunarlega séð.
Fiskibeinaparket er á gólfinu í stofu og eldhúsi og eru marmaraflísar í gangi. Einnig eru flísar á baðherbergi sem er nýlega uppgert.
Heimili listahjónanna er skemmtilega sett saman. Þar má finna heillandi listaverk, hansahillur og skrautmuni sem njóta sín vel.
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗




