„Ég man eftir dönskum konum á brjóstahöldurunum að rífast um pallíettujakka“

Í nýjasta Dagmálaþætti Mörtu Maríu Winkel og Eddu Gunnlaugsdóttur töluðu þær um þegar fólk bíður í röð eftir að fá að kaupa eitthvað. Þær hafa að sjálfsögðu gert það báðar í gegnum tíðina, Marta María vegna samstarfs H&M við Karl Lagerfeld og Edda vegna samstarfs H&M og Isabel Marant.

„Hefur þú einhvern tímann beðið í röð til þess að fá að kaupa eitthvað?“ spyr Edda.

„Já, ég hef alveg látið mig hafa það að bíða í röð fyrir utan lúxusverslanir í útlöndum, án þess þó að hafa ætlað mér að kaupa neitt. Aðallega til þess að sjá hvað væri til og fá að klappa einhverju góssi.

En eftirminnilegasta röðin sem ég hef beðið í var þegar ég og vinkona mín, Snæfríður Ingadóttir, biðum fyrir utan H&M á Strikinu í Kaupmannahöfn. Ég held að þetta hafi verið árið 2004, þegar Karl Lagerfeld hannaði línu fyrir H&M,“ svarar Marta María.

„Það varð allt vitlaust! Það var ekkert verið að takmarka fjölda viðskiptavina inni í versluninni, heldur var öllum hleypt inn í einu. Ég man eftir dönskum konum á brjóstahöldurunum að rífast um pallíettujakka úr Karl Lagerfeld-línunni. Ég horfði á þær og hugsaði með mér að þær myndu aldrei fara í þennan jakka,“ segir hún.

„Ég keypti hins vegar nokkrar flíkur í þessari ferð sem eru eiginlega nýdottnar í sundur. Þetta var nefnilega alvöru gott góss.

Þetta var á þeim tíma þegar H&M var að stíga sín fyrstu skref í samstarfi við þekkta fatahönnuði. Það þótti gríðarlega stórt að fá Karl Lagerfeld til liðs við sig, enda var hann aðalhönnuður Chanel á þessum tíma og jafnframt með sitt eigið fatamerki. Þarna gafst fólki tækifæri til að eignast flíkur sem litu út eins og þær væru frá Chanel, en voru á viðráðanlegu verði.

Ég man að Snæfríður var á þessum tíma ritstjóri flugtímaritsins Iceland Express og við flugum með því fram og til baka. Við vorum ekki með neinar risatöskur og þurftum því að finna leið til að koma öllum varningnum heim til Íslands. Ég endaði á því að fara í tvennar gallabuxur, græna ullarpeysu sem ég hafði keypt, skyrtu undir henni og kápu yfir allt saman.

Þetta var ótrúlega mikil stemning, en í dag hefur þetta græðgiselement í mér aðeins dempast. Ég er ekki lengur tilbúin að bíða í röð til þess að eignast eitthvað. Ég er náttúrulega orðin svo gömul að ég er farin að spyrja sjálfa mig: Þarf ég þetta raunverulega?“ segir Marta.

„En hefur þú einhvern tímann beðið í röð? Þú ert kannski ekki sú manneskja sem elskar að standa í biðröðum?“

„Nei, það hefur alltaf verið aðeins of mikill mótþrói í mér til þess. En jú, ég hef einu sinni beðið í röð til þess að kaupa eitthvað. Það var þegar Isabel Marant gerði línu fyrir H&M.

Þá bjó ég í London og ég held að ég hafi meira að segja skrópað í tíma til þess að komast í verslunina og kaupa mér leðurbuxur úr línunni. Ég passa samt pottþétt ekki í þær í dag,“ segir Edda.

Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni hér fyrir neðan.  

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅