Viðurkenna sex stór mistök dómara í síðustu umferð ensku deildarinnar
Dómarar ensku úrvalsdeildarinnar gerðu sex mistök í síðustu umferð deildarinnar samkvæmt niðurstöðu sérstakrar nefndar sem fer yfir umdeild atvik í leikjum.
Þetta er versta frammistaða dómara á einni leikhelgi það sem af er tímabili.
Meðal mistakanna var ákvörðun Farai Hallam að dæma ekki vítaspyrnu þegar Kai Havertz var togaður niður í vítateignum í sigri Arsenal gegn Hull City.
Havertz var rangstæður en hafði ekki gerst brotlegur við rangstöðuregluna þegar brotið átti sér stað. Því hefði átt að dæma vítaspyrnu.
Þá hefði Coventry átt að fá vítaspyrnu gegn Everton þegar James Tarkowski togaði í hár Caleb Yirenkyi. Annað mark Everton í leiknum hefði auk þess átt að vera dæmt af vegna handknattleiks.
Crystal Palace fékk einnig ranglega vítaspyrnu gegn Liverpool.
Tvö mistök voru síðan gerð í leik Ipswich og Bournemouth, þar sem ranglega var dæmd vítaspyrna og Marcus Tavernier slapp við sitt annað gula spjald.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗