Fimm barna móðir lést eftir rasslyftingu
Fimm barna móðir lést eftir að hafa gengist undir svokallaða brasilíska rasslyftingu á heimili vinkonu sinnar í Gloucester á Englandi. Við rannsókn á andláti hennar kom í ljós að fylliefni sem notað var við aðgerðina hafði borist út í blóðrásina og þaðan til fjölda líffæra, meðal annars heila, hjarta og lungna.
Konan hét Alice Webb og var 33 ára þegar hún gekkst undir fegrunaraðgerðina 23. september 2024. Hún missti meðvitund meðan á aðgerðinni stóð og var flutt í skyndi á sjúkrahús þar sem hún lést.
Málið er nú til rannsóknar fyrir dánardómstól í Bretlandi, þar sem meðal annars hefur komið fram að allt að 1.400 millilítrum, eða 1,4 lítrum, af hýalúrónsýru hafi verið sprautað í rasskinnar konunnar.
Samkvæmt vefnum Húðin.is er hýalúrónsýra sérstakt fylliefni sem bindur vatn í húðinni allt að þúsundfalt og á að gefa því aukinn þéttleika. Sýruna má eining finna í fæðubótarefnum.
Fylliefnið barst til heilans og hjartans
Maðurinn sem framkvæmdi aðgerðina heitir Jordan Parke. Katy Skerrett, dánardómari í málinu, greindi frá því við upphaf réttarhaldanna að Parke hefði látist nokkru eftir andlát Webb, þá 34 ára að aldri.
„Alice var 33 ára gömul fimm barna móðir. Þann 23. september 2024 missti hún meðvitund á heimili vinkonu sinnar meðan hún gekkst undir aðgerð sem nefnist brasilísk rasslyfting,“ sagði Skerrett við setningu dánardómstólsins.
Sjúkraflutningamenn voru kallaðir á vettvang um klukkan níu um kvöldið og fluttu Webb á Gloucestershire Royal-sjúkrahúsið þar sem hún lést þrátt fyrir ítrekaðar endurlífgunartilraunir.
Réttarmeinafræðingurinn Stephen Leadbetter, sem framkvæmdi krufningu á Webb, sagði að dánarorsökina megi rekja til hýalúrónsýrunnar sem sprautað hafði verið í rasskinnar Webb.
Hýalúrónsýran fannst í fituvef og vöðnum, hún fannst einnig í lungum, heila, hjarta, skjaldkirtli og nýrum Webb.
„Það sem hafði borist inn í blóðrásina var hýalúrónsýran sem notuð var við fegrunaraðgerðina,“ sagði Leadbetter fyrir dómi.
Hann taldi líklegt að æð hefði skaddast við aðgerðina og fylliefnið þannig komist inn í blóðrásina. Ekki hefði þó verið hægt að ákvarða nákvæmlega hvar það gerðist.
Leadbetter útilokaði að ofnæmisviðbrögð hefðu valdið dauða konunnar. Hann taldi heldur ekki að staðdeyfilyfið lídókaín, sem notað hafði verið við aðgerðina, hefði átt þátt í andlátinu.
Sögðust hafa verið að æfa sig hvort á öðru kvöldið áður
Allanah Kingston, sjúkraflutningamaður hjá South Western Ambulance Service, lýsti því fyrir dómi hvernig aðkoman hefði verið þegar hún kom á vettvang.
Neyðarkall barst klukkan 21:21, sagt var að kona hefði misst meðvitund við rasslyftingu.
Kingston sagði að búið hefði verið að innrétta hluta af heimilinu sem eins konar snyrtistofu.
Þegar hún ræddi við Parke á vettvangi hefði hann sagt henni að daginn áður hefði þar farið fram þjálfun í notkun fylliefna og að viðstaddir hefðu verið að æfa sig hver á öðrum.
Samkvæmt frásögn hans hafði Webb farið út til að reykja áður en hún missti meðvitund. Hún var þá færð inn á rúm í snyrtistofunni.
Á vettvangi fundust lyfjaglös með áletrunum á kóresku. Sjúkraflutningamenn reyndu að ráða í áletranirnar en án árangurs.
Sýndu lítil viðbrögð þegar konan fór í hjartastopp
Kingston sagði að sér hefði þótt framkoma Parke og Pawlyszyn undarleg meðan sjúkraflutningamenn reyndu að bjarga lífi Webb.
Þegar ástand hennar versnaði voru þau beðin um að bíða í eldhúsinu. Kingston fór síðar til þeirra og tilkynnti að Webb hefði farið í hjartastopp.
„Þau virtust sýna lítil tilfinningaleg viðbrögð við því sem ég sagði þeim,“ sagði hún.
Hún rifjaði upp að Parke hefði farið að tala um reykingavenjur Webb og haldið því fram að hún reykti allt að fjóra pakka á dag.
Að hennar sögn virtust þau hvorki hafa sérstakar áhyggjur af ástandinu né gera sér grein fyrir alvarleika þess.
„Þau virtust ekkert sérstaklega slegin yfir aðstæðunum og virtust ekki skilja hversu brýnt ástandið var,“ sagði Kingston.
Henni þótti einnig undarlegt að hvorugt þeirra virtist vita grunnupplýsingar um Webb, svo sem fæðingardag hennar eða hvernig hægt væri að ná sambandi við nánustu aðstandendur. Þau hafi aðeins geta sent fjölskyldu hennar skilaboð í gegnum Facebook.
„Mér fannst skrýtið að þau skyldu ekki koma á sjúkrahúsið, sérstaklega þar sem þau voru vinir hennar,“ sagði Kingston.
Webb var flutt af vettvangi klukkan 22:41 og kom á sjúkrahúsið fimm mínútum síðar.
Þar fór hún ítrekað í hjartastopp og þrátt fyrir tilraunir heilbrigðisstarfsfólks til að bjarga lífi hennar var hún að lokum úrskurðuð látin.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗