Fast sótt að oddvita Miðflokksins í Hafnarfirði í umræðu um íslenskt mál - „Mér er nákvæmlega sama hvort við erum öll hérna eða allir“

Nokkuð fast var sótt að Einari Geir Þorsteinssyni bæjarfulltrúa Miðflokksins í Hafnarfirði á bæjarstjórnarfundi í gær þegar hann lagði fram tillögu um að bærinn myndi móta sér málstefnu og nota hefðbundið íslenskt mál í öllum tilkynningum og öðru efni sem bærinn sendir frá sér. Lagði Einar Geir sérstaka áherslu á að bærinn myndi leggja af notkun á kynhlutlausu máli. Enginn annarra bæjarfulltrúa tók undir tillöguna og sagði oddviti Sjálfstæðisflokksins meðal annars að honum væri sama um hvaða málfræðilega kyn væri notað og svaraði Einari Geir fullum hálsi eftir að sá síðarnefndi kallaði eftir því að bæjarfulltrúar hefðu skoðun á þessu viðfangsefni.

Einar Geir lagði tillögu sína fram og lagði til að henni yrði vísað til forsetanefndar bæjarstjórnar. Gekk tillagan út á að bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti að Hafnarfjarðarbær noti vandað og hefðbundið íslenskt mál í öllu efni sem gefið væri út í nafni bæjarins og stofnana hans, svo sem í tilkynningum, auglýsingum, á vef og á samfélagsmiðlum. Í samræmi við þetta yrði fylgt opinberum ritreglum og viðtekinni málvenju um málfræðilegt kyn. Þegar vísað væri til fólks almennt eða hóps af óákveðnu kyni yrði notað sjálfgefið málfræðilegt kyn, sem væri hin hefðbundna málnotkun í íslensku, til dæmis allir velkomnir en ekki öll velkomin. Bæjarstjórn fæli forsetanefnd að móta bænum málstefnu á þessum grunni, á grundvelli sveitarstjórnarlaga, og leggja hana fyrir bæjarstjórn eigi síðar en 1. mars 2027.

Að skipta máli

Í greinargerð með tillögunni og í ræðu sinni, þar sem hann mælti fyrir tillögunni, sagði Einar Geir meðal annars að notkun hvorugkyns í stað karlkyns um óákveðinn hóp væri nýjung sem tekin hefði verið upp af ásetningi á síðustu árum. Í skýrslu um kynhlutlaust mál, sem unnin hafi verin að beiðni stjórnar Íslenskrar málnefndar árið 2021, væru rakin atriði sem mæltu gegn því að víkja frá hefðbundinni notkun kynjanna. Þegar sumir tækju upp nýja málnotkun en aðrir ekki gæti það valdið misskilningi. Nýjungarnar gætu verið torsóttar og framandi fyrir þá sem alist hefðu upp við aðra málvenju. Ný málbeiting gæti orðið stéttbundin og skilið á milli þeirra sem töluðu eftir eigin máltilfinningu og þeirra sem hefðu tileinkað sér nýjungarnar. Sveitarfélög ættu að tala til allra íbúa.

Kallaði Einar Geir einnig eftir því að bæjarfulltrúar tækju afstöðu til málnotkunar í efni á vegum bæjarins og vildi meina að hugmyndafræði hefði þar haft áhrif á breytta notkun á kyni. Sagði hann enga formlega ákvörðun hafi verið tekna um þetta og svo virtist sem að starfsfólk bæjarins hefði tekið þetta upp hjá sjálfu sér en það væri eðlilegt að ákvörðun af þessu tagi væri í höndum kjörinna fulltrúa.

Orri Björnsson oddviti Sjálfstæðisflokksins og formaður bæjarráðs var fyrstur annarra bæjarfulltrúa til að taka til máls um tillögu Einars Geirs. Sagði Orri að hann teldi þetta ekki vera aðkallandi viðfangsefni fyrir bæjaryfirvöld. Hann hefði ekki stórar áhyggjur af þessari þróun. Taldi hann að þær reglur sem Einar Geir kallaði eftir myndu hvorki bjarga né farga íslenskri tungu. 

Afstaða

Einar Geir svaraði orðum Orra meðal annars með því að kalla enn á ný eftir að bæjarfulltrúar tækju afstöðu í stað þess að segja að notkun á kynhlutlausi máli á vegum bæjarins skipti ekki máli.

Orri kom þá upp í pontu í annað sinn og var þá öllu harðorðari í garð Einars Geirs:

„Það kemur úr hörðustu átt að krefjast þess að ég taki afstöðu til þessa máls, frá manni sem að sjaldnast allra tekur afstöðu í bæjarráði. Iðkar þann sið að sitja hjá í tíma og ótíma, en í þessu smámáli sem að drepur ekki nokkurn mann þar á maður að taka afstöðu. Afstaða mín er sú að mér er nákvæmlega sama hvort við erum öll hérna eða allir. Mér er bara alveg nákvæmlega sama um það. Ef einhver vill segja allir þá er það fínt ef einhver vill segja öll þá er það líka fínt.“ 

Orri bætti því hins vegar við að það væri lagaskylda að sveitarfélög settu sér málstefnu og það væri fínt að forsetanefnd sæi um það fyrir Hafnarfjörð.

Einar Geir svaraði að bragði að tillaga hans snerist um málnotkun í tilkynningum og öðru efni bæjarins en ekki hvað Orra fyndist. Orri svaraði því þannig að hann væri einn af ellefu bæjarfulltrúum og því hefði það áhrif hvað honum fyndist þegar kæmi að því að greiða atkvæði.

Elín Anna Baldursdóttir varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar tók næst til máls og tók undir með Einari Geir um að Hafnarfjörður ætti að setja sér málstefnu enda væri það bundið í lög. Góð málstefna gæti tryggt það betur að öll hefðu aðgang að upplýsingum frá bænum. Málstefna ætti hins vegar að snúast um inngildingu, að öll finndu fyrir því að þau tilheyrðu samfélaginu. Taldi hún að Einar Geir hefði misskilið þá skýrslu íslenskrar málnefndar sem hann væri að vísa til, þar kæmi fram að skipanir um málnotkun ættu ekki að koma ofan. 

Inngilding

Einar Geir vildi þá vita hvort það væri afstaða meirihlutans, sem samanstendur af Sjálfstæðisflokki, Viðreisn og Samfylkingunni, að málstefna Hafnarfjarðar snerist um inngildingu. 

Elín Anna svaraði að bragði að hún hefði ekki kynnt sér málstefnu fyrr en að Einar Geir lagði sína tillögu fram og hún var sett á dagskrá fundarins en það væri hennar niðurstaða eftir að kynnt sér málstefnu að hún snerist að stórum hluta um inngildingu:

„Um að við öll hér í Hafnarfirði getum skilið það sem sett er fram.“

Taldi Einar Geir það gott að það kæmi fram að meirihlutinn hefði ákveðið að bærinn myndi nota kynhlutlaust mál sem inngildingartól.

Kristín Thoroddsen bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður fræðsluráðs tók næst til máls. Hún taldi mikilvægt að minna á málstefnu bæjarins sem hefði verið í vinnslu síðan 2021, eftir samþykkt bæjarráðs um að henni yrði komið á. Því miður hefði vinnan við stefnan legið niðri en væri nú í höndum stjórnsýslusviðs. Það væri því ekki hægt að samþykkja tillögu sem nú þegar hefði verið samþykkt.

Virðing

Kolbrún Magnúsdóttir bæjarfulltrúi Framsóknarflokkksins velti fyrir sér hvað væri hefðbundið og hver ákvæði það. Það væri ekki ófrávíkjanlegt að ekkert breyttist. Íslenskan tæki breytingum, hana yrði vissulega að varðveita en um leið að leyfa henni að þróast:

„Hluti af því að vanda mál sitt er að hugsa um hverja við erum að ávarpa hverju sinni. Öll velkomin eru tvö einföld og skýr orð. Þannig að ég velti fyrir mér hvaða ávinning sveitarfélagið hefði af því að þrengja svigrúm starfsfólks til að nota þau.“

Vitnaði Kolbrún til jafnréttisstefnu bæjarins:

„Það skiptir okkur öll máli að komið sé fram við okkur af virðingu óháð því hvernig við skilgreinum okkur.“

Valdimar Víðisson oddviti Framsóknarflokksins velti fyrir sér forminu á tillögunni og hvort hún snerist um málstefnu sem þegar væri í vinnslu.

Einar Geir sagði sig greinilega hafa vanmetið um hversu mikið tilfinningamál væri að ræða.

Ítrekaði Valdimar vangaveltur sínar og sagði tillöguna fremur eiga heima hjá bæjarráði en forsetanefnd. Einar Geir breytti þá tillögunni og lagði til að hún yrði lögð fyrir bæjarráð eftir að honum var bent á að það væri ekki hægt að greiða atkvæði um að Hafnarfjörður setti sér málstefnu enda hefði það verið samþykkt 2021. Greidd voru eftir nokkra reikistefnu atkvæði um að vísa tillögu Einars Geirs í heild sinni til bæjarráðs og var það fellt af 10 af 11 bæjarfulltrúum en Einar Geir greiddi einn atkvæði með.

Bókanir

Meirihluti bæjarstjórnar lagði eftir atkvæðagreiðsluna fram bókun um að málstefna fyrir Hafnarfjörð væri þegar í vinnslu. Hún ætti að taka mið af fjölbreyttu samfélagi, tungumáli þess og þeim ólíku aðstæðum sem fólk búi við. Stefnan ætti ekki að vera útilokandi og ekki einskorðast við afstöðu til kynhlutlauss máls.

Einar Geir svaraði með bókun að með vísun til inngildingar væri meirihlutinn að viðurkenna að notkun bæjarins á kynhlutlausu máli væri að einhverju leyti meðvituð stefna en ekki eðlileg málþróun. Sú stefna hefði aldrei verið borin undir bæjarstjórn:

„Allir velkomnir hefur alla tíð náð til allra, óháð kyni. Það er ekki inngilding að gefa í skyn að það mál sem flestir íbúar tala útiloki suma þeirra.“

Bæjarfulltrúar Framsóknarflokksins áttu síðasta orðið í þessari líflegu umræðu:

„Í samskiptum bæjarins við íbúa á að nota vandaða og skýra íslensku. Til þess þarf starfsfólk að hafa svigrúm til að velja orðalag sem hæfir tilefninu og nær til fjölbreytts hóps íbúa. Jafnréttis- og mannréttindastefna Hafnarfjarðar á að endurspeglast í daglegum samskiptum bæjarins. Að þrengja svigrúm til að nota orðalag á borð við öll velkomin í almennum boðum væri skref aftur á bak í jafnréttisbaráttu.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab