Snjallgleraugu falla undir snjalltækjabann

Inga Sæland, mennta- og menningarmálaráðherra.

Inga Sæland, mennta- og menningarmálaráðherra. mbl.is/Eyþór

Snjallgleraugu falla undir snjalltækjabann í skólum. Þetta kemur fram í svari mennta- og barnamálaráðuneytisins við fyrirspurn mbl.is. 

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði nýlega reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskólum og á frístundaheimilum.

Snjallgleraugun hafa enn sem komið er ekki rutt sér til rúms hér á landi í miklum mæli. Í Noregi hafa slík gleraugu verið bönnuð í skólum Oslóar. 

Er þar meðal annars litið til persónuverndarsjónarmiða. Gleruaugun eru mörg hver útbúin upptökubúnaði sem getur tekið upp myndefni öllum stundum. 

Ray-Ban-snjallgleraugu frá Meta.

Ray-Ban-snjallgleraugu frá Meta. AFP/Michael M. Santiago

Gleraugun falla undir skilgreininguna

„Reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskóla og á frístundaheimilum, nr. 945/2026, tekur til notkunar síma og snjalltækja á skólatíma.

Þar eru m.a. snjalltæki skilgreind sem önnur færanleg tæki en símar sem geta m.a. tengst neti eða öðrum tækjum en eru með sambærilega virkni og snjallsímar.

Snjallúr, spjaldtölvur og þráðlaus heyrnartól eru dæmi um snjalltæki en ekki er um að ræða tæmandi talningu.

Snjallgleraugu falla undir skilgreininguna, eftir því hvaða virkni þau hafa,“ segir í svari ráðuneytisins.

Skólar og frístundaheimili sjá sjálf um útfærslu síma og snjalltækjabannsins.

Skólar og frístundaheimili sjá sjálf um útfærslu síma og snjalltækjabannsins. mbl.is/Karítas

Skólar og frístundaheimili sjá um útfærsluna

Meginregla síma- og snjalltækjabannsins er sú að notkun síma og snjalltækja sem ekki eru í eigu eða umsjá skóla eða frístundaheimilis sé óheimil á skólatíma.

„Ef tiltekin gleraugu falla undir framangreinda skilgreiningu gildir framangreind meginregla um notkun þeirra.“

Hver skóli og frístundaheimili útfærir nánar framkvæmd reglnanna segir ráðuneytið.

Við framkvæmd þeirra verði að taka mið af skólareglum og sjónarmiðum um persónuvernd, sérstaklega ef tækin geta tekið upp mynd eða hljóð.

Ráðuneytis segist ekki vita hvort eða í hve miklum mæli hafi reynt á notkun snjallgleraugna í skólum eða frístundarheimilum.

内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅