Leituðu svara um Mars í íslenskri náttúru

Í myndbandinu er fylgst með rannsóknarleiðangri svonefnds SWIFT-hóps (Southwest Iceland Field Team), sem rannsakaði jarðmyndanir á Íslandi sem líkjast þeim sem finnast á Mars. Skjáskot/Youtube

Vísindasvið Geimferðastofnunar Bandaríkjanna, NASA, hefur birt myndband frá leiðangri rúmlega 30 vísindamanna sem komu hingað til lands til að öðlast betri skilning á aðstæðum á Mars og þróa aðferðir til að leita ummerkja um fornt líf á reikistjörnunni.

Í myndbandinu er fylgst með rannsóknarleiðangri svonefnds SWIFT-hóps (Southwest Iceland Field Team), sem rannsakaði jarðmyndanir á Íslandi sem líkjast þeim sem finnast á Mars.

Myndbandið birtist á YouTube í desember í fyrra en vakið var athygli á því á Facebook-síðu vísindasviðs NASA í gær. 

Rannsökuðu jarðhitasvæði í Kleifarvatni

Í myndbandinu má sjá vísindamennina rannsaka kolefnisrík efni og jarðhitasvæði á botni Kleifarvatns. Þar söfnuðu þeir sýnum af gasi, vatni og setlögum til að kanna hringrás kolefnis, sem gegnir lykilhlutverki í lífi eins og við þekkjum það.

Við Stóru-Laxá rannsökuðu þeir jafnframt setberg sem myndast hefur úr basaltískum jarðlögum. Sambærilegar bergmyndanir eru algengar á Mars og hafa meðal annars verið rannsakaðar af könnunarbílnum Curiosity.

Undirbúa framtíðarferðir til Mars

Sýnin sem safnað var á Íslandi verða rannsökuð nánar á rannsóknarstofum, meðal annars til að greina efnasamsetningu þeirra.

Samkvæmt NASA hjálpa rannsóknirnar vísindamönnum að þróa aðferðir til að greina möguleg ummerki um fornt líf og túlka jarðsögu Mars.

Þekkingin nýtist bæði við rannsóknir könnunarbíla á borð við Perseverance og við undirbúning framtíðarferða manna til reikistjörnunnar.

内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅